Morgunblaðið - 17.11.2022, Qupperneq 26
FRÉTTIR
Innlent26
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2022
VIKUR
Á LISTA
2
2
2
2
5
1
2
1
2
4
VEÐURTEPPT UM JÓLIN
Höfundur: Sarah Morgan
Lesari: Sólveig Guðmundsdóttir
BROTIN BEIN
Höfundur: Angela Marsons
Lesari: Íris Tanja Flygenring
DAGBÓK KIDDA KLAUFA:
SNJÓSTRÍÐIÐ
Höfundur: Jeff Kinney
Lesari: Oddur Júlíusson
SVIKIN
Höfundur: Laila Brenden
Lesari: Lára Sveinsdóttir
JÓL Í LITLA BAKARÍINU
VIÐ STRANDGÖTU
Höfundur: Jenny Colgan
Lesari: Esther Talía Casey
GRUNUÐ
Höfundur: Laila Brenden
Lesari: Lára Sveinsdóttir
MYRKRIÐ VEIT
Höfundur: Arnaldur Indriðason
Lesari: Þorsteinn Bachmann
ÞAÐ SÍÐASTA SEM HANN SAGÐI MÉR
Höfundur: Laura Dave
Lesari: Þórdís Björk Þorfinnsdóttir
SYSTIRIN Í SKUGGANUM
Höfundur: Lucinda Riley
Lesari: Margrét Örnólfsdóttir
DAUÐALEIT
Höfundur: Emil Hjörvar Petersen
Lesari: Hjörtur Jóhann Jónsson
1.
2.
3.
4.
7.
8.
6.
10.
9.
5.
›
›
›
›
›
›
›
›
TOPP 10
VINSÆLUSTU HLJÓÐBÆKUR Á ÍSLANDI
VIKA 45
fjölgað. „Við vorum með átta þúsund
lítra í gerjunarpláss en erum að fara
í 32 þúsund lítra. Við vonum að þetta
dugi,“ segir hann.
Sveinn og Þórey tóku yfir iðnaðar-
bil við hlið Smiðjunnar til að koma
endurbættu brugghúsi fyrir. Um leið
gefst tækifæri til að stækka veitinga-
staðinn. „Við bætum við 20-30 sætum.
Þá verðum við komin með 80-85 sæti.
Það hefur verið röð út úr dyrum hérna
á sumrin svo það er full ástæða til
að fjölga sætum. Stefnan hefur líka
alltaf verið að bjóða upp á brugghús-
túra en það hefur ekki verið rúm fyrir
það á sumrin því það truflar almenna
afgreiðslu. Bjórferðamennska er alltaf
að aukast og margir ferðast bara á
milli brugghúsa. Það koma ekki allir
til að skoða fossa og fjöll. Við höfum
fengið fyrirspurnir frá fólki sem ætlar
að koma að sunnan um það hvort það
sé eitthvað að sjá á leiðinni,“ segir
Sveinn. Hann bætir við að þar sem
nú sé smærri brugghúsum leyfilegt
að selja vörur sínar á staðnum aukist
enn möguleikar til að sinna þessum
hópi ferðamanna. „Við vorum fyrsta
brugghúsið til að fá leyfi til að selja
bjórinn okkar út. Það hefur gengið
vonum framar. Eina vandamálið hefur
verið að byggja upp lager af bjór til
að selja og vonandi náum við að ráða
fram úr því með þessari stækkun.“
„Við höfum ekki náð að anna eftir-
spurn. Það er auðvitað lúxusvanda-
mál en samt vandamál,“ segir Sveinn
Sigurðsson, veitingamaður á Smiðj-
unni brugghúsi í Vík í Mýrdal.
Sveinn og kona hans, Þórey Rich-
ardt Úlfarsdóttir, hafa staðið í ströngu
að undanförnu við stækkun Smiðj-
unnar sem notið hefur mikilla vin-
sælda síðustu ár. Stríður straumur
ferðamanna liggur um Vík en auk
þess hefur góður rómur verið gerð-
ur að handverksbjór Smiðjunnar sem
meðal annars er seldur í Vínbúðunum.
„Við höfum í raun aldrei frá upphafi
náð að anna eftirspurn. Í júlí og ágúst
eigum við nánast aldrei okkar eigin
bjór. Á veitingastaðnum höfum við
verið með tvær tegundir frá okkur
á þessum tíma í stað tíu. Þá höfum
við ekki getað sent nóg í Vínbúðirnar.
Kerfið þar er þannig að til að halda
sér inni og fá aukna dreifingu þarf að
anna eftirspurn og ef þú getur ekki
afgreitt þangað bjór í tveimur sölu-
hæstu mánuðunum þá gerist lítið,“
segir Sveinn.
Úr 8.000 lítrum í 32.000
Stækkun brugghússins felur í sér að
keypt voru ný og fullkomnari brugg-
tæki. Bæði eru þau stærri en þau sem
fyrir voru en einnig að stærri hluta
sjálfvirk. Sveinn segir að hér eftir
verði hægt að brugga tvisvar á dag
en áður var aðeins hægt að brugga
einu sinni. Öll vinna verður einfaldari
með nýju tækjunum að hans sögn.
Þá verður gerjunartönkum einnig
lEigendur Smiðjunnar brugghúss í Vík í Mýrdal stækka veitingastaðinn og auka framleiðslugetu
brugghússins umtalsvertlHafa aldrei náð að anna eftirspurnlFerðamenn koma vegna bjórsins
StækkaSmiðjuna til aðhafaundan
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Framkvæmdir Þórey Richardt Úlfarsdóttir og Sveinn Sigurðsson í nýuppgerðu og stærra brugghúsi Smiðjunnar í Vík í Mýrdal.
Vinsældir Röð er út úr dyrum á Smiðjunni á sumrin og ekki hefur tekist að
anna eftirspurn í brugghúsinu. Það breytist væntanlega eftir stækkunina.
Velkomin
í okkar hóp!
jsb.is
E
FL
IR
/
H
N
O
TS
KÓ
G
U
R
Ertu búin að skrá þig?
SíðastaTT
fyrir jól
28.11.-17.12.