Morgunblaðið - 17.11.2022, Qupperneq 51
ÍÞRÓTTIR 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2022
Frá Haukum til
Bandaríkjanna
Körfuknattleikskonan Elísabeth
Ægisdóttir, leikmaður Hauka,
hefur samið við Liberty-há-
skólann í Virginíu og mun hún
leika með körfuboltaliði skól-
ans samhliða námi. Hún mun
klára yfirstandandi tímabil með
Haukum og síðan heldur hún út
til Bandaríkjanna en liðið leikur í
Conference USA-deildinni. Emma
Sóldís Hjördísardóttir samdi
einnig við skólann á dögunum og
verða hún og Elísabeth því áfram
liðsfélagar.
Morgunblaðið/Eggert Jóhannesson
Virginía Elísabeth Ægisdóttir mun
klára tímabilið með Haukum.
Breytingar í
Hafnarfirði
Knattspyrnumarkvörðurinn
Sindri Kristinn Ólafsson hefur
gert þriggja ára samning við FH
og kemur hann til félagsins frá
uppeldisfélagi sínu Keflavík,
þar sem hann hefur leikið allan
ferilinn og á að baki 82 leiki í
efstu deild. Þá hefur markvörð-
urinn Atli Gunnar Guðmundsson
yfirgefið FH-inga en hann kom
til félagsins frá Fjölni árið 2021
og lék í tvö tímabil í Hafnarfirði.
Alls á hann að baki 61 leik í efstu
deild með FH og Fjölni.
Morgunblaðið/Óttar Geirsson
2025 Sindri Kristinn Ólafsson
skrifaði undir þriggja ára samning.
Ísland komið í úrslit
Eystrasaltsbikarsins
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Úrslit Aron Elís Þrándarson tryggði Íslandi 6:5-sigur í bráðabana í vítaspyrnukeppni gegn Litháen í gær.
lVann Litháen í vítaspyrnukeppnilMætir Lettlandi í úrslitaleik á laugardag
EYSTRASALTSBIKARINN
Gunnar Egill Daníelsson
gunnaregill@mbl.is
Íslenska karlalandsliðið í knatt-
spyrnu tryggði sér í gærkvöld sæti
í úrslitaleik Eystrasaltsbikarsins
með því að hafa betur gegn Litháen
í Kaunas þar í landi í undanúrslit-
um mótsins. Markalaust var eftir
venjulegan leiktíma og var strax
gripið til vítaspyrnukeppni að
honum loknum. Þar reyndist Ísland
hlutskarpara, skoraði úr öllum
spyrnum sínum og vann 6:5 eftir
bráðabana.
Andri Lucas Guðjohnsen, Stefán
Teitur Þórðarson, Arnór Sig-
urðsson, Mikael Anderson, Sverrir
Ingi Ingason og Aron Elís Þránd-
arson skoruðu úr vítaspyrnum
íslenska liðsins en Natanas Zebr-
auskas klúðraði síðustu spyrnu
Litháens með því að skjóta framhjá
markinu.
Spyrnur Stefáns Teits, Arnórs
og Arons Elísar voru ansi tæpar
þar sem Edvinas Gertmonas varði
þær allar í netið. Það mátti þó einu
gilda þar sem fyrsti leikur Íslands
á mótinu, þar sem liðið er gestur í
fyrsta sinn, endaði með sigri.
Úrslitaleikur gegn Lettlandi
Íslenska liðið var á heildina litið
sterkari aðilinn í leiknum, þá sér í
lagi í fyrri hálfleik, þar sem liðinu
tókst að skapa sér fjölda góðra
færa.
Var það með nokkrum ólíkindum
að engum af þeim Jóhanni Berg
Guðmundssyni, Ísak Bergmann
Jóhannessyni eða Hákoni Arnari
Haraldssyni skyldi takast að skora
úr dauðafærum sínum í fyrri
hálfleik.
Í síðari hálfleik var fátt um fína
drætti þar sem Íslandi reyndist erf-
iðara að skapa sér færi þótt liðinu
hafi tekist vel að halda boltanum,
líkt og í þeim fyrri. Þar hafa sex
skiptingar Arnars Þórs Viðarsson-
ar landsliðsþjálfara eflaust haft
sitt að segja enda óumflýjanlegt að
leikur liðsins riðlist eitthvað við svo
margar skiptingar.
Ísland mætir Lettlandi í úr-
slitaleik Eystrasaltsbikarsins á
laugardag og fer sá leikur fram í
Riga. Lettland skákaði Eistlandi í
hinum undanúrslitaleiknum í gær
og þurfti einnig vítaspyrnukeppni
til þess að knýja fram sigurvegara
í þeim leik. Staðan var jöfn, 1:1, að
loknum venjulegum leiktíma og
hafði Lettland betur í vítaspyrnu-
keppninni, 5:3, eftir að hafa skorað
úr öllum fimm spyrnum sínum.
Hörður sá rautt
Hörður Björgvin Magnússon,
sem lék vel í vörn Íslands, fékk
heimskulegt rautt spjald þegar sex
mínútur voru til leiksloka í leiknum
í gær og verður því í leikbanni í
úrslitaleiknum á laugardag. Fékk
hann tvö gul spjöld með stuttu
millibili; það fyrra fyrir að stöðva
skyndisókn og það síðara fyrir að
kasta boltanum í leikmann Lithá-
ens sem var að tefja.
Hörður Björgvin átti góðri
samvinnu að fagna með Sverri
Inga Ingasyni, sem lék sinn fyrsta
landsleik í tæpa 20 mánuði í gær, í
miðvarðarstöðunum tveimur og því
skarð fyrir skildi að vera án hans í
úrslitaleiknum.
Jóhann Berg Guðmundsson sneri
einnig aftur í íslenska liðið eftir
rúmlega árs fjarveru og komst vel
frá sínu í sínum 82. landsleik.
Aron Einar Gunnarsson tók ekki
þátt í leiknum í gær vegna veikinda.
Það fór bókstaflega allt á
hliðina á dögunum þegar lands-
liðskona í knattspyrnu gagnrýndi
KSÍ fyrir að hafa ekki fengið
treyju að gjöf frá sambandinu
eftir að hafa leikið sinn 100.
A-landsleik.
Reyndar hefur aðeins einn
leikmaður karlalandsliðsins verið
heiðraður með hundrað leikja
treyju að gjöf frá sambandinu og
það er Aron Einar Gunnarsson.
Aðrir fengu sínar treyjur eftir
landsleik númer 103 og landsleik
númer 105.
Reyndar má líka alveg setja
spurningarmerki við þá ákvörðun
að gagnrýna sambandið sem þú
spilar fyrir opinberlega. Þetta
hefði eflaust orðið skilvirkara ef
það hefði verið hent í eins og eitt
símtal til eða frá, jafnvel í bún-
ingastjóra kvennalandsliðsins,
þar sem það var nú einu sinni
búningastjóri karlalandsliðsins
sem tók það upp hjá sjálfum sér
að heiðra leikmenn karlaliðsins
með treyjunum.
Ég efast stórlega um að KSÍ
myndi skora hátt í samræmdum
mælingum íslensku ánægju-
vogarinnar. Það sést á öllum
umræðum á samfélagsmiðlum
og svo auðvitað á mætingu á
knattspyrnuleiki á vegum lands-
liða Íslands.
Persónulega finnst mér
formaður sambandsins ekki hafa
svarað nægilega vel fyrir þau
mál sem hafa brunnið heitast
á landanum. Til dæmis þegar
Eiður Smári Guðjohnsen var
látinn fara, eða þegar ákveðið
var að spila vináttulandsleik
gegn Sádi-Arabíu og nú síðast
þegar landsliðskona gagnrýndi
sambandið opinberlega.
Það er mikil eftirspurn eftir
því sem formaður sambandsins
hefur að segja, bæði þegar vel
gengur og sérstaklega þegar það
er eitthvað semmiður fer. Mér
finnst formaður KSÍ alls ekki
hafa verið afgerandi í því að taka
afstöðu í stóru málunum, sem
kann ekki góðri lukku að stýra.
Þá virðist oft auðveldara að setja
inn færslu á Facebook frekar en
að svara í símann.
BAKVÖRÐUR
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Keppir á sterk-
ustu mótaröð
Evrópu
Atvinnu-
kylfingurinn
Guðmundur
Ágúst Krist-
jánsson úr
GKG tryggði
sér í gær
keppnisrétt á
Evrópumóta-
röðinni í golfi á
næsta keppn-
istímabili.
Guðmundur lék afar vel á
lokaúrtökumóti fyrir mótaröðina
á Infinitum-golfsvæðinu sem
er rétt við bæinn Tarragona á
Spáni. Guðmundur lék hringina
sex á samtals 18 höggum undir
pari en hann lék best á öðrum
hring, eða á sjö höggum undir
pari. Kylfingarnir sem enduðu
í 25 efstu sætunum tryggðu sér
þátttökurétt á mótaröðinni en
Guðmundur hafnaði í 19.-22. sæti.
Hann er annar íslenski
kylfingurinn sem afrekar að fá
keppnisrétt á Evrópumótaröðinni
á eftir Birgi Leifi Hafþórssyni, en
Birgir náði áfanganum árin 2006
og 2007.
Guðmundur
Á. Kristjánsson
Annar sigur meistaranna í röð
Danielle Rodriguez var stiga-
hæst Grindvíkinga þegar
liðið vann öruggan sigur gegn
Breiðabliki í úrvalsdeild kvenna
í körfuknattleik, Subway-
deildinni, í Smáranum í Kópa-
vogi í 10. umferð deildarinnar í
gær.
Leiknum lauk með 89:65-sigri
Grindavíkur en Rodriguez skor-
aði 23 stig, tók fimm fráköst og
gaf sjö stoðsendingar.
Jafnræði var með liðunum
í fyrri hálfleik en Grindavík
leiddi 40:37 í hálfleik. Grinda-
vík skoraði hins vegar 36 stig í
þriðja leikhluta, gegn 17 stigum
Breiðabliks og þar með var leik-
urinn búinn.
Elma Dautovic skoraði 20 fyrir
Grindavík, ásamt því að taka
níu fráköst, og þá skoraði Hulda
Björk Ólafsdóttir 20 stig einnig.
Sanja Orozovic var stigahæst
hjá Blikum með 22 stig, 10 frá-
köst og fimm stoðsendingar.
Þá átti Aliyah Collier stórleik
fyrir Njarðvík þegar liðið tók á
móti Fjölni í Ljónagryfjunni í
Njarðvík.
Leiknum lauk með stórsigri
Njarðvíkur, 92:67, en Collier
skoraði 30 stig, tók tíu fráköst
og gaf sex stoðsendingar.
Jafnræði var með liðunum í
fyrsta leikhluta en síðan ekki
söguna meir. Njarðvík leiddi
54:35 í hálfleik og lét forystuna
aldrei af hendi í síðari hálfleik.
Raquel Laneiro skoraði 14 stig
fyrir Njarðvík en Taylor Jones
var stigahæst hjá Fjölni með 31
stig og 16 fráköst.
Kiana Johnson var stigahæst
í liði Vals með 28 stig þegar liðið
vann nauman sigur gegn ÍR í
Skógarseli í Breiðholti.
Leiknum lauk með 76:74-sigri
Vals sem leiddi með fimm stigum
í hálfleik, 46:41. ÍR komst stigi
yfir, 72:71, þegar tvær mínútur
voru til leiksloka en Valskonur
voru sterkari á lokamínútunum.
Ásta Júlía Grímsdóttir skoraði
16 stig fyrir Val en Jamie Cherry
var stigahæst í liði ÍR-inga með
27 stig og sjö fráköst.
Morgunblaðið / Kristinn Magnússon
Barátta Blikinn Birgit Ósk Snorra-
dóttir reynir að verjast Grindvík-
ingnum Daniellu Rodriguez.
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is