Morgunblaðið - 17.11.2022, Page 53

Morgunblaðið - 17.11.2022, Page 53
MENNING 53 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2022 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ Indie wire RALPH FIENNES NICHOLAS HOULT ANYA TAYLOR-JOY Painstakingly Prepared. Brilliantly Executed. KOMIN Í BÍÓ - TRYGGÐU ÞÉR MIÐA USA TODAY ENTERTAINMENT WEEKLY EMPIRETHE PLAYLISTNEW york post KEMUR Í BÍÓ Á MORGUN SCREENDAILY IGN VANITYFAIR THEHOLLYWOOD REPORTER 87% 89% Í slenska orðið „leikskáld“ er eins og það hafi verið hannað með Samuel Beckett í huga. „Leikritahöfundur“ nær engan veginn yfir það sem gerðist þegar hann settist niður og hugsaði upp þessi makalausu verk. Framlag hans er langt í frá bundið við sköpun persóna og texta, sem þó væri nógu mikið afrek einn og sér; ljóðrænn, harmrænn, heim- spekilegur og aulafyndinn eins og hann einatt er. Ekkert annað af helstu leikskáldum heims á í safni sínu verk án orða, og fá gefa eins nákvæm fyrirmæli um sviðsbúnað, hreyfingar og leiktæknileg atriði. Allt er þetta hluti þess listaverks sem Beckett sendir frá sér. Svo sterk er sýn hans að einstaka myndir öðlast sjálfstætt líf, skapa merkingu í huga áhorfandans/les- andans, eða jafnvel þeirra sem bara heyra af þeim. Biðin endalausa eftir Godot. Gamla fólkið í öskutunnun- um í Endatafli. Krapp og segul- böndin hans. Og síðast en ekki síst hin káta og þrautseiga Winnie í Hamingjudögum, grafin upp að mitti og síðar enn dýpra. Þessu stórkostlega sviðsljóði um fráleita lífsbaráttuna, kraftinn sem rekur okkur áfram án sýnilegs tilgangs í skeytingarlausum og óskiljanlegum heimi. Það er gaman að sjá hvernig Edda Björg Eyjólfsdóttir, Árni Pétur Guðjónsson og leikstjórinn Harpa Arnardóttir mæta þessu heildstæða verki, þar sem hver hreyfing og hver þögn er fyrirskipuð af höfundi. Í fyrri hlutanum verður ekki betur séð en fyrirmælunum sé hlýtt út í ystu æsar. Í þeim síðari er skipt rækilega um gír og engu líkara en fyrirmæli Becketts úr Ekki ég, annarri og enn róttækari einræðu konu, séu heimfærð upp á síðustu ræðu Vinníar. Textinn verður að flaumi, öll afstaðan örvæntingar- fyllri og myrkari, og bjallan sem vekur Vinní hvern morgun hringir aftur og aftur, líkt og tíminn standi í stað. Strangt tekið er ekki gert ráð fyrir listrænum ákvörðunum leikstjóra á borð við þessa í leikhúsi Becketts, en þetta er feikiáhrifaríkt hér. Sem gildir um sýninguna alla. Stærsta heiðurinn af því á vitaskuld Edda Björg Eyjólfsdóttir sem Vinní. Það er virtúósabragur á textaflutningnum og þeim Hörpu hefur tekist að gæða fyrirskrifaðar athafnir Vinníar eðlilegu lífi. Til- finningaleg innistæða, tímasetning og hrynjandi, allt óbrigðult. Það síðastnefnda gerir flauminn í síðari hlutanum að ógleymanlegum tutt- ugu mínútum. Þýðing Árna Ibsen hljómaði sönn og ljóðræn í frábær- um flutningnum. Eiginmanni Vinníar bregður nokkrum sinnum fyrir, stundum aðeins röddinni. Árni Pétur skilar þessu vel, er kostulegur þegar þess þarf og harmrænn ef það á við. Tvísæi sem einkennir mjög verk Becketts fyrir svið og bók, en ekki síst Hamingjudaga. Hægt er að skoða leikmyndina sem tvö aðskilin verk: hauginn þar sem hjónin búa og bakgrunninn, sem hér er myndbandsverk. Brynja Björnsdóttir er höfundur leikmynd- ar en myndbandið samvinnuverk- efni hennar, Ólafs Ágústs Stefáns- sonar lýsingarhönnuðar og Ísidórs Jökuls Bjarnasonar sem semur tónlistina. Haugurinn er vel útfærður. Ekki beint raunsæislegur, en gefur þó til- finningu fyrir að þetta sé jarðvegur. Enn sjást einhverjar gróðurtægjur. Efnið spilaði listavel á móti smartri stemmingslýsingu Ólafs Ágústs Stefánssonar, sem hefur látið fyrir- mæli Becketts um skerandi birtu lönd og leið. Myndbandsbakgrunnurinn fannst mér ekki eins góð hugmynd. Það truflaði að kornakurinn sem þar er sýndur er í kolröngum hlutföllum við leikarana. Þó ágætt sé að þau Brynja og samverkamenn henn- ar hafi ekki fallið í þann pytt að staðsetja Vinní og Villa í einhverj- um náttúruvana „eftirhrunsheimi“ (e. Post-Apocalyptic), eins og svo oft er gert, þá skapaði þessi ofvaxni en þó natúralíski hveiti- akur óraunveruleikatilfinningu sem þjónar ekki verkinu. Beckett talar um sviplausa sléttu svo langt sem augað eygir. Ekkert sem truflar eða blandar sér í túlkun verksins. Ég held að það sé best, nóg er nú samt um að hugsa varðandi hlutskipti og lífsviðhorf Vinníar. Og þó tónlist Ísidórs Jökuls sé verulega eftirtekt- arverð, dramatísk og stemmingsrík, þá þótti mér hún líka of plássfrek, setja of sterkt mark á stemninguna. Þegar þessum atriðum er ýtt til hliðar í huganum stendur eftir frábærlega unnin leiksýning, borin uppi af framúrskarandi vinnu leikaranna í einlægu samtali við einhverja mögnuðustu rödd leik- bókmenntanna. Ævi og ástir haugbúa Ljósmynd/Auðunn Níelsson Framúrskarandi „… stendur eftir frábærlega unnin leiksýning, borin uppi af framúrskarandi vinnu leikaranna í einlægu samtali við einhverja mögnuðustu rödd leikbókmenntanna,“ segir í rýni um Hamingjudaga. LEIKLIST ÞORGEIR TRYGGVASON Borgarleikhúsið Hamingjudagar Eftir Samuel Beckett. Íslensk þýðing: Árni Ibsen. Þýðing yfirfarin: Hafliði Arngrímsson. Leikstjórn: Harpa Arnar- dóttir. Leikmynd og búningar: Brynja Björnsdóttir. Tónlist og hljóðmynd: Ísidór Jökull Bjarnason. Lýsing: Ólafur Ágúst Stefánsson. Myndbandshönnun: Ólafur Ágúst Stefánsson, Ísidór Jökull Bjarnason og Brynja Björnsdóttir. Hár og gervi: Harpa Birgisdóttir. Leikarar: Edda Björg Eyjólfsdóttir og Árni Pétur Guðjónsson. Leikfélag Akureyrar frum- sýndi í Svarta kassanum í Menningar- húsinu Hofi 2. september 2022, en rýnt í uppfærsluna þegar hún var tekin til sýningar á Nýja sviði Borgarleikhússins laugardaginn 5. nóvember 2022. Eitruð karlmennska í skáldsögum Rósa María Hjörvar flytur sjötta fyrirlestur hádegisraðar RIKK – Rann- sóknastofnun- ar í jafnréttis- fræðum við HÍ á haustmisseri 2022, í fyrir- lestrasal Þjóðminjasafns í dag, fimmtudag, kl. 12. Yfirskriftin er Hinsegin Ísland í alþjóðlegu sam- hengi. Fyrirlestur Rósu nefnist „Eitruð karlmennska og perlu- festar í óbyggðum norðursins. Hinsegin þræðir í Gróðri jarðar, Sjálfstæðu fólki og Höfundi Íslands“. Rósa María Hjörvar Flytur erindi um mikilvægi kerfa Kerfið: Tilurð, áhrif og upplausn er yfirskrift hádegiserindis sem Gunnar Þór Jóhannesson, pró- fessor í ferðamálafræði við HÍ, heldur í hádeginu í dag, fimmtu- dag, í Ljósmyndasafni Reykjavík- ur í Grófarhúsi. Erindið hefst kl. 12.10 og er í tengslum við sýningu Elvars Arnar Kjartanssonar, Kerfið, með ljósmyndaverkum. Gunnar Þór mun leggja út af ljósmyndum Elvars og fjalla um mikilvægi ólíkra kerfa fyrir sam- félög. Sérstaklega verður horft til hugmynda franska heimspekings- ins Brunos Latours um svokölluð gerendanet. Dæmi verða tekin úr rannsóknum á ferðamennsku á Íslandi og Grænlandi til að varpa ljósi á tilurð, áhrif og upplausn kerfa. Ljósmynd/Elvar Örn Kjartansson Skólpdælustöð Eitt verka Elvars Arn- ar á sýningunni í Ljósmyndasafninu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.