Morgunblaðið - 10.12.2022, Side 1
AUKIÐ
ÖRYGGI
SÆFARENDA
200 MÍLUR 32 SÍÐUR
10 | 12 | 22
• Stofnað 1913 • 290. tölublað • 110. árgangur •
LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 2022
14
dagar til jóla
Jólasveinalitabókin er á
jolamjolk.is
Laugavegi 174, 105 Rvk. www.hekla.is/idBuzz
Nýr rafmagnaður
Íslenska liðið getur
spilað um verðlaun
„Það er
ekkert sem
mælir á móti
því að Ísland
geti spilað um
verðlaun,“
sagði Alfreð
Gíslason,
landsliðsþjálf-
ari Þýskalands
í handbolta,
í samtali við
Morgunblaðið, um möguleika
íslenska liðsins á HM karla í
Svíþjóð og Póllandi í byrjun
næsta árs. „Íslenska liðið er
komið með frábærlega skemmti-
lega kynslóð núna. Liðið er með
gríðarlega sterka leikmenn eins
og Aron, Ómar Inga og svo hefur
Gísli Þorgeir komið svakalega
vel inn,“ sagði Alfreð meðal
annars. » 41
Alfreð
Gíslason
Króatar sendu Brasilíumenn heim frá Katar
Brasilía er úr leik á heimsmeistaramótinu í
knattspyrnu eftir óvænt tap gegn Króatíu í
átta liða úrslitunum í Katar í gær. Allt stefndi
í sigur Brasilíu eftir að liðið komst yfir í fram-
lengingu en Króatar jöfnuðu og sigruðu síðan
í vítaspyrnukeppni. Þeir fögnuðu að vonum
vel eftir að Brasilíumenn skutu í stöng úr
síðustu vítaspyrnu sinni en Króatía er komin í
undanúrslit HM í annað skiptið í röð.» 40
AFP/Adrian Dennis
„Það duttu allir úr takti og þar á með-
al í menningarneyslu. Það tekur tíma
að koma öllu í gang,“ segir Magnús
Geir Þórðarson þjóðleikhússtjóri.
Lengri tíma virðist ætla að taka að
koma menningarstarfi í sama horf og
það var fyrir Covid en margir héldu.
Áætla má að miðasala sé um það bil
20% minni í sviðslistageiranum og í
tónleikabransanum er höggið jafnvel
enn meira.
„Svo virðist sem fólk forgangsraði
tíma sínum ákveðnar en áður. Áhrif
þess á menningarlífið erlendis eru
þau að fólk fer sjaldnar á viðburði
og svo virðist sem stóru viðburðirnir,
topparnir, haldi sínu en þeir minni
verði frekar fyrir barðinu á þessari
þróun,” segir Magnús Geir sem kveðst
telja að Ísland hafi komið betur út
en víða erlendis. „Menn hafa áætlað
gróflega að það vanti enn ef til vill um
20% upp á það sem var fyrir Covid, en
það er ekki nákvæm greining enda of
snemmt að segja nákvæmlega til um
það,“ segir Magnús sem kveðst bjart-
sýnn á að geirinn rétti úr kútnum.
lMinna selst af miðum í leikhús og á tónleika en fyrir Covid
lUm það bil 20% samdrátturlSama þróun og víða erlendis
Geirinn enn í sárum
Menningargeirinn» 4
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Airwaves Stemning var á hátíðinni.
Titringur er í tónleikahöldurum.
LTINGAR-
KONAN
BIRNA
YB
NÝR SKÁLDVERULEIKI 42
Veita ekki svör
um áhrif aukinnar
skuldsetningar
Orkuveita
Reykjavíkur
(OR) þarf að
breyta skilmál-
um á lánum sín-
um til að rýmka
til fyrir frekari
skuldsetningu
samstæðunnar.
Þannig skapast
svigrúm fyrir
Ljósleiðarann til
að skuldsetja sig enn frekar og
standa þannig straum af kaupum
á grunnneti Sýnar. Áætlaður
kostnaður við kaupin er um
þrír milljarðar króna en skuldir
Ljósleiðarans eru nú þegar um 14
milljarðar króna.
Borgarráð samþykkti á fundi
sínum í fyrradag erindi frá stjórn
OR um að breyta skilmálum á
lánasamningi OR og Evrópska
fjárfestingarbankans að fjár-
hæð 70 milljónir evra, eða um 10
milljarðar króna. Tillagan var
samþykkt á stjórnarfundi OR í
lok október.
Morgunblaðið leitaði svara
hjá Brynhildi Davíðsdóttur,
prófessor við Háskóla Íslands og
stjórnarformanni OR, um kaup
Ljósleiðarans á grunnneti Sýnar,
hvort þau kaup væru í samræmi
við eigendastefnu, áhrifin á
skuldsetningu samstæðunnar og
fleira sem er málinu tengt. Hún
vildi þó ekki svara spurningum
blaðsins efnislega.» 22
Brynhildur
Davíðsdóttir