Morgunblaðið - 10.12.2022, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 2022
DÆGRADVÖL 39
Vísnahorn
Skrattanum er skemmt
Gátan er sem endranær eftir
Guðmund Arnfinnsson:
Mannfýla hinmesta er.
Meinvættur, sem varast ber.
Galdrabrögðumbeitir sá.
Blótsyrði nú innt er frá.
Harpa á Hjarðarfelli á þessa
lausn:
Mannskratti hinnmesti er .
Mammonsskratta varast ber.
Seiðskrattanum sagt er frá.
Svo er skratti blótið þá.
„Þá er það lausnarorðið“ segir
Helgi R. Einarsson:
Skrattinn rakin skepna er.
Skrímsli er hann líka.
Skrattinn beitir brögðumhér.
Sem bölvmenn honum flíka.
Sjálfur skýrir Guðmundur
gátuna þannig:
Skratti mesti skíthæll er.
Skratti er fjörulalli hér.
Seiðskratti er viðsjáll ver.
Víktu,mannskratti, frámér.
Þá er limra:
Er Leópold Loftsson á Heiði,
lauk sínuæviskeiði
og í Helvíti datt inn,
þá hrópaði Skrattinn:
„Ja, hér bar þó vel í veiði“.
Síðan er ný gáta eftir Guð-
mund:
Lengur ekki gefast grið,
geysi brýnt er verkefnið,
kvæðagyðja ljámér lið,
ljúka þarf nú gátu við:
Þykir vart í húsum hæf.
Handlegg tíðum kreppir.
Til tölvubrúks er býsna kræf.
Með bjúgum enginn sleppir.
Þessar limrur flutu með lausn
Helga:
Ekkert liggur á
þó einn dag ég deyi
óttast ég það eigi,
en firra er
að flýta sér,
sem lengst því lopann teygi.
Upphafið
„Ef að ég eiga þigmætti
mér afar vænt umþað þætti,“
sagði afi við ömmu
sem eignaðistmömmu
umárið að afliðnum slætti.
Orðskýringarlimra eftir Davíð
Hjálmar Haraldsson:
Að skip náði landi var lending
og lifandi draugur var sending
en að SigurðurTomm
gerði Theresu bomm
eftir 12 ára barning var hending.
„HELDURÐU NOKKUÐ AÐ HANN SÉ OF
ÞRÖNGUR? ÉG ER KOMIN MEÐ NÁLADOFA
Í FÆTURNA.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
... að fá fiðrildi í magann
hvort í návist annars.
VIÐ JÓN
EIGUM MARGT
SAMEIGINLEGT
DÆS
LÍF OKKAR
BEGGJA SNÝST
UM MIG!
STOPP! ÉG
SKAL BJARGA
GARÐABRÚÐU!
ÞÚ GETUR
BJARGAÐ
TÓBÍASI Í
TURNINUM!
„ÞETTA ER BARA FRUMGERÐIN.
ENDANLEGA ÚTGÁFAN VERÐUR ÚR STEIKTU
DEIGI OG HJÚPUÐ MEÐ SÚKKULAÐI.“
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Fjölskylda
Eiginmaður Margrétar er Sig-
urður Petersen, f. 22.11. 1945, fv.
skipstjóri. „Við höfum lengst búið í
Hlíðahverfi og erum þar af leiðandi
Valsarar, en búum núna í Fossvogi.“
Foreldrar Sigurðar voru Marta
Þórðarson, f. 6.10. 1917, d, 8.6. 1984,
húsfreyja frá Færeyjum, síðast bús.
á Stokkseyri, og Jón Þorgrímur
Jóhannsson, f. 16.6. 1918, d. 9.3. 1971,
lögreglumaður í Reykjavík.
Börn Margrétar og Sigurðar
eru 1) Esther Ágústa Berg, f. 7.7.
1970, yfirverkefnastjóri og hluthafi
hjá EY Íslandi. Maki: Bala Kam-
allakharan fjárfestir. Barnabörn:
Mira Esther, f. 1.12. 2003, og Maya
Teresa, f. 6.8. 2015; 2) Sigfús, f. 7.5.
1975, fisksali og fv. handboltamaður.
Barnabörn: Alexander Sigurður, f.
10.8. 1996, og Eyvör Margrét, f. 6.4.
2013.
Systkini Margrétar: Guðríður
Sigfúsdóttir Haugen, f. 28.10.
1943, d. 29.11. 2019, bjó í Noregi;
Einar Sigfússon, f. 15.12. 1948, býr
í Reykjavík; Dómhildur Arndís
Sigfúsdóttir, f. 23.1. 1950, býr í
Reykjavík; María Kristín Sigfús-
dóttir, f. 6.5. 1952, býr í Reykjavík,
og Sigurður Sigfússon, f. 1.6. 1955,
býr í Reykjavík.
Foreldrar Margrétar voru hjónin,
Ragnheiður Esther Einarsdóttir,
f. 31.10. 1916, d. 5.11. 2002, hár-
greiðslukona og húsmóðir, og Sigfús
Sigurðsson, f. 19.2. 1922, d. 21.8.
1999, verslunarstjóri KÁ á Selfossi,
kaupfélagsstjóri í Stykkishólmi og
ólympíufari. Síðustu árin bjuggu
þau í Reykjavík.
Margrét
Dóróthea
Sigfúsdóttir
Sigríður Einarsdóttir
húsfreyja á Miðbýli og í Austurhlíð
Eiríkur Eiríksson
bóndi á Miðbýli á
Skeiðum og í Austurhlíð í
Gnúpverjahreppi
Guðríður Eiríksdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Einar Þórðarson
lengst af afgreiðslumaður hjá
Smjörlíkisgerðinni Ljóma, Reykjavík
Ragnheiður Esther Einarsdóttir
hárgreiðslukona og húsmóðir á Selfossi,
í Stykkishólmi og Reykjavík
Margrét Jónsdóttir
húsfreyja á Efra-Seli
Þórður Jónsson
bóndi á Efra-Seli á Stokkseyri
Kristjana Elísabet Sigurðardóttir
húsfreyja á Hofsstöðum
Hjörleifur Björnsson
bóndi á Hofsstöðum
í Miklaholtshreppi
Margrét Oddný Hjörleifsdóttir
húsfreyja í Hrísdal
Sigurður Kristjánsson
bóndi í Hrísdal í Miklaholtshreppi
Elín Árnadóttir
húsfreyja á Hjarðarfelli
Kristján Guðmundsson
bóndi á Miðhrauni og síðar
Hjarðarfelli í Miklaholtshreppi
Ætt Margrétar Dórótheu Sigfúsdóttur
Sigfús Sigurðsson
verslunarstjóri hjá Kaupfélagi
Árnesinga á Selfossi, kaupfélagsstjóri
í Stykkishólmi og keppandi í kúluvarpi
á Ólympíuleikunum í London 1948
Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is
Verkfæralagerinn
Ennþá meira úrval af
listavörum
Listverslun.is
Mán.-fös. kl. 9-18, lau. kl. 10-17, sun. kl. 12-16