Morgunblaðið - 10.12.2022, Blaðsíða 23
FRÉTTIR
Erlent 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 2022
Smiðjuvegi 34 • gul gata Kópavogi • biljofur@biljofur.is
Viðgerðir // Bilanagreining // Varahlutir // Smurþjónusta
Sérhæfð þjónusta fyrir
Rótgróið fyrirtæki, starfrækt frá 1992
Tímapantanir
544 5151
biljofur.is
120 OG 200 LJÓSA
INNI- OG ÚTISERÍUR
Við Fellsmúla | Reykjavík | Sími: 585 2888 | rafmark.is
BÚLGARÍA
Bilun skerðir starf-
semi kjarnavers
Slökkva verður
á öðrum
kjarnaofninum
í kjarnorkuver-
inu Kozloduy í
Búlgaríu í dag.
Ástæðan er
gufuleki sem
uppgötvaðist
í síðustu viku.
Ekki er talin
nein hætta á
kjarnaslysi vegna þess ástands
sem nú er uppi í verinu.
Er þetta í þriðja skipti á þessu
ári sem stjórnendur Kozloduy
neyðast til að skerða orkufram-
leiðslu vegna tæknivandræða.
Framkvæmdir við kjarnaverið
hófust árið 1970 og þegar mest lét
keyrði verið á sex kjarnaofnum.
Í dag eru einungis tveir þeirra
í notkun, ofn 5 (tekinn í notkun
1987) og ofn 6 (tekinn í notkun
1991). Sá ofn sem nú er til vand-
ræða er ofn 6. Óljóst er hvenær
verður kveikt á honum á ný.
Tækni Gufubólstrar
frá kjarnorkuveri.
Einn er sagður látinn eftir mik-
inn eldsvoða í verslunarmiðstöð
í úthverfi Moskvu. Eldurinn er
sagður hafa brunnið á svæði sem
talið er vera um 7.000 fermetrar
að stærð. Mikil skelfing greip
um sig þegar eldsins varð vart og
hafa myndbönd verið birt á sam-
félagsmiðlum sem sýna fólk forða
sér út úr verslunarmiðstöðinni.
Fréttaveita AFP segir yfir 70
slökkviliðsmenn á 20 bílum hafa
glímt við eldinn. Óttast er að um
altjón sé að ræða eftir brunann.
Ámyndbandi sem birst hefur
má sjá þegar byggingin var alelda
og þak hennar hrunið. Fáeinum
sekúndum seinna sprakk öll
framhlið hússins með miklum
látum, að líkindum vegna gass.
Höfuðborg Rússlands
Altjón í
eldsvoða
í Moskvu
AFP/Alexander Nemenov
arhópar nú þegar fjarlægt fjórar
stórar brúareiningar sem skemmdust
í sprengingum. Búið er að koma nýj-
um einingum upp að hluta og virðist
vinna ganga vonum framar – hvað
Rússa snertir. Þótt varnarmálaráðu-
neytið breska hafi áætlað verklok í
september 2023 sögðust Rússar sjálf-
ir miða við júlí sama ár. Svo virðist
sem báðir hafi haft rangt fyrir sér
því þeir sérfræðingar sem greint hafa
gervitunglamyndirnar segja Rússa
eiga stutt eftir.
Vestrænar leyniþjónustur fylgdust
grannt með framvindu mála eftir að
brúin féll að hluta snemma í október.
Fyrir lok mánaðar voru Rússar búnir
að undirbúa uppbygginguna, en í nóv-
ember var ekki lengur hægt að fylgj-
ast með verkinu í gegnum gervitungl
vegna slæms skyggnis vikum saman.
Myndirnar nú koma því mörgum á
óvart.
Nýjar gervitunglamyndir sýna góðan
gang í viðgerðum Rússa á brúnni sem
tengir Rússland við Krímskaga. Brú
þessi féll að hluta þegar sprengingar
urðu þar í október sl., að líkindum
af völdum árásar Úkraínumanna.
Stutt er síðan varnarmálaráðuneyti
Bretlands taldi víst að brúin yrði ekki
komin í fulla notkun fyrr en í septem-
ber á næsta ári, en allt þykir nú bend-
ir til að það muni gerast mun fyrr.
Brúin gegnir mikilvægu hlutverki
fyrir stríðsrekstur Rússa í Úkraínu.
Um hana hafa hermenn og þunga-
flutningar farið til átakasvæða en eftir
að hún skemmdist gat brúin einungis
tekið léttan varning og það í takmörk-
uðum mæli.
Byggingakranar eru nú á prömm-
um víða við brúna og hafa viðgerð-
Mikill gangur í brúarvinnuRússa
lViðgerðarhópur virðist langt á undan
áætlunlStefndu fyrst á júlímánuð
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
AFP/Rosavtodor
Lífæð Brúin til Krímskaga er mikið mannvirki og skiptir innrásarher Rússlands í Úkraínu máli.
Nú finnur þú það
sem þú leitar að
á FINNA.is