Morgunblaðið - 10.12.2022, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 10.12.2022, Blaðsíða 18
FRÉTTIR Innlent18 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 2022 LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800 SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646 „Með sameiningu á tveimur góðum fyrirtækjum trúi ég að úr verði öflug eining; starfsemi sem getur eflst og þróast. Verið í aðstöðu til að starfa á alþjóðlegum samkeppnismarkaði í skipaviðgerðum en slíkt kallar ámarg- víslega uppbyggingu og fjárfestingar. Tækifærin eru spennandi,“ segir Ólafur Ormsson. Hann er fram- kvæmdast jór i Vélsmiðju Orms og Víglundar hf. í Hafnarfirði sem í síðustu viku keypti allt hlutafé í Stál- smiðjunni-Fram- taki ehf. Kaupin eru gerð með fyrirvara um niðurstöðu úr áreiðan- leikakönnun og samþykki Samkeppn- iseftirlits, sem segir af eða á með vorinu. Kaupverð er ekki gefið upp. Frá virkjunum til skipa Vélsmiðja Orms og Víglundar er gamalgróið fjölskyldufyrirtæki, stofn- að árið 1973 af feðgunumGuðjóni Víg- lundi Guðmundssyni og Eiríki Ormi Víglundssyni. Fyrstu árin var smíði á búnaði fyrir orkuver, til dæmis í Svartsengi, Nesjavöllum og Blöndu- virkjun, stór þáttur í rekstrinum. Í fyllingu tímans, þegar Eiríkur Ormur var tekinn við keflinu, fór fyrirtækið í vaxandi mæli að sinna viðgerðum á skipum, sem í dag er stærsti hlutinn af verkefnum fyrirtæksins. Í eigu vélsmiðjunnar eru tvær flot- kvíar sem eru við Hvaleyrarbakka í Hafnarfirði. Sú stærri var upphaflega smíðuð í Bretlandi fyrir kafbáta, get- ur tekið skip alls að 140 metra löng og 16,5 metra breið. Nýlega voru til dæmis varðskipið Þór og Vestmanna- eyjaferjan Herjólfur í kvínni og nú er þar loðnuskipið Sighvatur Bjarnason VE. Skip sem eru til viðgerða eru lögð að Hvaleyrarbakka. Þá er fyrirtæk- ið með verkstæði við Kaplahraun í Hafnarfirði. „Ég hef verið viðloðandi þetta fyr- irtæki alveg síðan ég var unglingur. Hef lifað og hrærst í þessu og finnst skemmtilegt. Á hverjum degi koma upp alls konar mál sem þarf að leysa, gjarnan með óvenjulegu leiðum sem krefjast útsjónarsemi,“ segir Ólaf- ur Ormsson. Hann er nú tekinn við rekstrinum af föður sínum; er þriðji ættliðurinn sem stýrir fjölskyldufyr- irtækinu þar sem nú starfa um 35 manns. Taka stærri skref „Reksturinn hjá okkur er í góðum farvegi,“ segir Ólafur. „Nú er hins vegar svo komið að við teljum okkur ekki geta þróast lengra að óbreyttu eða náð meiri framlegð úr rekstrin- um. Við urðum því að horfa í kringum okkur til að geta tekið stærri skref. Því leituðum við fyrir nokkru til Stálsmiðjunnar-Framtaks með kaup á fyrirtækinu í huga, sem reyndist vera hljómgrunnur fyrir.” Velta Vélsmiðju Orms og Víglund- ar á yfirstandandi ári er rúmlega einn milljarður króna eða liðlega helmingurinn af veltunni hjá Stál- smiðjunni-Framtaki, sem starfrækir alhliða járnsmiðju í Garðabæ og slipp við Ægisgarð í Reykjavík. Alls eru starfsmenn um 85 talsins. „Við komum út úr þessum kaupum með tiltölulega litla skuldsetningu og til verður öflugt fyrirtæki til að þjón- usta sjávarútveg og stóriðju. Fram- tak er vel rekið fyrirtæki, þar sem til staðar eru góðir starfsmenn með mikla þekkingu og reynslu. Rekstur fyrirtækjanna tveggja er svipaður að mörgu leyti en ólíkur að öðru og því tel ég mikla möguleika til þess að ná fram ýmsum samlegðaráhrifum.“ Ná stórum verkefnum Við Hvaleyrina í Hafnarfirði er Vélsmiðja Orms og Víglundar nú að byggja hús þar sem skrifstofur verða, sem og íbúðir fyrir starfsmenn og áhafnir þeirra skipa sem á hverj- um tíma eru í viðgerð. Deiliskipulag svæðisins heimilar jafnframt að á lóð fyrirtækisins megi reisa allt að 3.500 fermetra iðnaðarhúsnæði. Ólafur Ormsson telur líklegt að á allra næstu árum verði farið í slíkar framkvæmdir enda sé framtíðarstefnan sú að starf- semi sameinaðs fyrirtækis verði öll á sama stað. „Stórt sameinað fyrirtæki ætti að hafa möguleika á stórum viðhalds- verkefnum fyrir íslenskar útgerðir, sem hafa farið með allra stærstu pakkana til skipasmíðastöðva í Fær- eyjum, Danmörku og jafnvel Póllandi. Þarna ætlum við okkur hlutdeild og erum bjartsýnir á að útgerðirnar standi með okkur í því,“ segir Ólafur og bætir við að lokum: „Íslenskur málmiðnaður í dag stendur vel nema hvað við þurfum fleira fólk sem lært hefur málmiðnað og skyldar greinar. Stundum er eins og verið sé að þvinga ungt fólk í bók- legt nám þó áhugi þess sé annars staðar. Því ætti ungt fólk að að kynna sér iðngreinar, þar sem bjóðast ágæt laun og starfsumhverfi og aðstaða starfsmanna er orðin miklu betri en áður var.“ lVélsmiðja Orms og Víglundar kaupir Stálsmiðjuna-Framtakl Stórir í skipaviðgerðumlVilja þróa reksturinn áfram og lengralÖll starfsemin verði í framtíðinni á einum stað á Hvaleyri í Hafnarfirði Leysum málin með útsjónarsemi Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Morgunblaðið/Sigurður Bogi Flotkvíar. Tvö skip í viðgerð. Sú stærri þar sem loðnuskipið Sighvatur Bjarnason hefur verið að undanförnu en hún var upphaflega smíðuð í Bretlandi fyrir hálfri öld svo þar mætti taka upp kafbáta hersins. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Smiðjumenn Frá vinstri talið: Kolbeinn Orri Aðalsteinsson vélvirki, Leif- ur Rósinbergsson rennismiður og Ásbjörn Ásgeirsson stálsmiður. Ólafur Ormsson Borgin hætti við breytingar á Vin ÖBÍ réttindasamtök taka undir áhyggjur Geðhjálpar af niðurskurðartillögum meirihluta borgarstjórnar varðandi Vin dagsetur, úrræði fyrir fólk sem býr við geðrænar áskoranir. Setrið er rekið af Geðhjálp við Hverfisgötu. „Fyrirvaralaus tilkynning borgarinnar um þær breytingar sem fyrirhugaðar eru hefur þegar haft skaðleg áhrif á líðan skjólstæðinga, raskað starf- seminni og gæti jafnvel riðið henni að fullu,“ segir m.a. í yfirlýsingu frá ÖBÍ og er skorað á borgina að endur- skoða ákvörðunina. Vin Dagsetur við Hverfisgötu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.