Morgunblaðið - 10.12.2022, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 10.12.2022, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 2022 Atvinnuauglýsingar 569 1100 Starfsmaður óskast til bílstjórastarfs auk annarra tilfallinna verkefna hjá Lambhaga gróðrarstöð. Ekki er krafist meiraprófs. Um framtíðar- og fullt starf er að ræða og er vinnutími frá kl. 7–15. Lambhagi er reyklaus vinnustaður og þarf starfsmaðurinn að vera altalandi í íslensku. Starfið er laust frá og með 1. janúar 2023. Umsóknir sendist á haudur@lambhagi.is og er umsóknarfrestur til 20. desember. Starfsmaður óskast Vélstjórar óskast Deutsche Fischfang Union GmbH & Co. KG. leitast eftir að ráða vélstjóra til starfa á frystitogara. Fyrirtækið á og rekur togarana Baldvin NC og Cuxhaven NC ásamt því að koma að rekstri annarra skipa. Um framtíðarstarf er að ræða. Menntunar- og hæfniskröfur • Réttindi VF I eða VF II • Skilyrði að geta unnið sjálfstætt • Góð enskukunnátta • Snyrtimennska • Hæfni í mannlegum samskiptum • Reglusemi skilyrði • Góð færni í rafmagni er kostur Umsóknir berist til Péturs Þórs Erlingssonar, petur@dffu.de Bókari - launafulltrúi Idex ehf og Idex gluggar ehf óska eftir að ráða starfsmann í fullt starf. Idex nafnið á sér yfir 30 ára sögu á íslenskum byggingamarkaði, þekkt fyrir þá gæðavöru er fyrirtækið hefur að bjóða íslenskum bygginga- markaði. Starfssvið: Öll almenn bókhalds-, innheimtu-, toll- og launavinnsla. Samskipti við stjórnendur og endur- skoðanda fyrirtækisins Hæfniskröfur: • Góð og haldbær þekking á bókhaldi, innheimtu, tollskjalagerð og launavinnslu. • Rík þjónustulund og framúrskarandi mannleg samskipti. • Metnaður til að skila góðri vinnu. • Nákvæmni og hugkvæmni. • Reynsla í skilum uppgjörs til endurskoðanda er skilyrði. Umsóknum skal skilað fyrir 18. desember 2022 með tölvupósti til idex@idex.is faxafloahafnir.is Faxaflóahafnir sf. leita að metnaðarfullum og framsýnum einstaklingi til að leiða viðskiptasvið fyrirtækisins • • • • • • • • • • • • • • Menntunar- og hæfniskröfur Reynsla af stjórnun fjármála Reynsla af markaðsmálum, upplýsingatækni og viðskiptaþróun kostur Hæfni til að halda kynningar á íslensku og ensku Háskólamenntun sem nýtist í starfi Færni í samskiptum við fólk og fyrirtæki Skipulagshæfni og reynsla af áætlanagerð Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum Helstu verkefni Umsjón með deildum sviðsins í samvinnu við deildarstjóra Umsjón með viðskiptaþróun fyrirtækisins Umsjón með daglegri starfsemi á skrifstofu Faxaflóahafna sf. og stýring verkefna Gerð og frágangur stjórnendaupplýsinga og kynningar fyrir stjórn Umsjón með gerð fjárhagsáætlunar og eftirlit með samningum á sviði rekstrar Umsjón með arðsemisútreikningum og gerð viðskiptaáætlana Önnur þau störf, sem viðkomandi kunna að vera falin af yfirmanni og falla innan eðlilegs starfsviðs hans Viltu vera hluti af góðri liðsheild? Faxaflóahafnir er stærsta höfn landsins þar sem starfa um 75 manns og er umráðasvæði hennar í Reykjavík, Akranesi, Grundartanga og Borgarnesi. Fyrirtækið leggur áherslu á að vera leiðandi í umhverfis- og öryggismálum auk þess að vera í vegferð að þróa snjallar og grænar hafnir. Viðskiptasvið er eitt af stoðsviðum í skipuriti Faxaflóahafna og þar starfa sjö manns. Sviðsstjóri heyrir beint undir hafnastjóra. Starfsmaðurinn mun hafa aðstöðu á skrifstofu Faxaflóahafna að Tryggvagötu 17 í Reykjavík. Við hvetjum hæfileikaríkt og metnaðarfullt fólk til að sækja um starfið, óháð kyni, en fyrirtækið hefur skýra jafnréttisstefnu og vill auka fjölbreytileika í starfsliði sínu. Nánari upplýsingar um starfið gefur Gunnar Tryggvason, hafnarstjóri gunnart@faxafloahafnir.is Umsókn, ásamt ferilskrá sendist til Faxaflóahafna sf., á netfangið olafur@faxafloahafnir.is, eigi síðar en sunnudaginn 18. desember n.k. Sviðsstjóri viðskiptasviðs

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.