Morgunblaðið - 10.12.2022, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 10.12.2022, Qupperneq 2
FRÉTTIR Innlent2 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 2022 ÚRVAL ÚTSÝN HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓPAVOGUR SÍMI 585-4000 UU.IS STJÖRNUR OG SÓLIR TAÍLANDS *NÝTT* 14. - 28. MARS 2023 ÆVINTÝRALEG SÉRFERÐ SEM ER LJÚF EN ÞÓ INNIHALDSRÍK LÚXUSREISA UM STRANDBÆINN HUA HIN OG HÖFUÐBORGINA BANGKOK FREKARI UPPLÝSINGAR Á UU.IS EÐA SENDA FYRIRSPURN Á ASIUFERDIR@UU.IS Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.isMenning Einar Falur Ingólfssonmenning@mbl.is Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.ismbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is SmartlandMarta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningarmbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Maður var í gær ákærður fyrir til- raun til hryðjuverka og stórfelld brot gegn vopnalöggjöf og meintur samverkamaður hans fyrir hlutdeild í tilraun til hryðjuverka og brot gegn vopnalöggjöf. Við rannsókn málsins í september síðastliðnum héldu rík- islögreglustjóri og lögreglan á höf- uðborgarsvæðinu blaðamannafund þar sem fjallað var um rannsóknina. Mennirnir eru ákærðir fyrir brot gegn a-lið 100. greinar almennra hegningarlaga. Héraðsdómur Reykjavíkur féllst í gær á áframhaldandi fjögurra vikna gæsluvarðhald yfir mönnunum tveimur en ákæra yfir þeim fylgdi gæsluvarðhaldskröfu héraðssak- sóknara. „Nú fer þetta í sinn formlega fer- il innan kerfisins,“ sagði Karl Ingi Vilbergsson, saksóknari hjá embætti héraðssaksóknara, í samtali við mbl. is í gær. Fyrst verður málinu úthlut- að dómara, sem ákveður síðan þing- festingardag. Verði mennirnir fundn- ir sekir eiga þeir yfir höfði sér allt að ævilangt fangelsi. Sveinn Andri Sveinsson, verjandi annars mannanna, segir engar undir- búningsathafnir vera tilgreindar í ákærunni, sem séu forsenda þess að hægt sé að dæma mann fyrir tilraun til hryðjuverka. „Síðan er ákæranmjög loðin. Það er bara talað um tilraun til hryðjuverks gegn ótilteknum hópi á ótilteknum stað,“ segir Sveinn Andri, sem telur ákæruna á mörkum þess að uppfylla skilyrði sakamálalaga um skýrleika. „Almenna reglan er sú að til þess að ákærði í máli geti varist sökum sem á hann eru bornar verður að liggja fyrir hvaða sakir það eru,“ bætir hann við. Gæsluvarðhaldsúrskurður yfir mönnunum hefur verið kærður til Landsréttar og er líklegt að niður- staða í málinu liggi fyrir eftir helgi. lAnnar ákærður fyrir tilraun en hinn fyrir hlutdeild í tilraun Tveir ákærðir í hryðjuverkamáli Freyr Bjarnason freyr@mbl.is Morgunblaðið/Eggert HryðjuverkMennirnir eru ákærðir fyrir tilraun til hryðjuverka og hlutdeild, en einnig vopnalagabrot. „Langur og strangur dagur er að kvöldi kominn en enginn þarf að ör- vænta þar sem við hittumst aftur í fyrramálið,“ sagði Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, eftir fundarhöld gærdagsins þar sem samtök Halldórs sátu á rökstól- um með VR ásamt iðnaðar- og tæknimönnum og Landssambandi íslenskra verslunarmanna hjá ríkis- sáttasemjara. „Þetta mjakast bara,“ sagði Hall- dór við Morgunblaðið af gangi mála í gær en upphaflega hafði staðið til að fundurinn myndi standa til klukkan sex um kvöldið. Hins vegar teygðist nokkuð úr fundinum og lauk honum ekki fyrr en um tíuleytið í gærkvöldi. Það er skammt stórra högga á milli, því næsti fundur verður á dagskrá klukkan ellefu í dag. Ekki náðist í Kristján Þórð Snæ- bjarnarson, formann Rafiðnaðar- sambands Íslands, í gærkvöldi eftir að fundi lauk. Elísabet S. Ólafsdótt- ir, skrifstofustjóri og aðstoðarsátta- semjari, sagði um daginn að allir samningsaðilar væru að leggja sig fram við vinnuna. Telur samning ófullnægjandi Stéttarfélagið Efling samþykkti í gær ályktun þess efnis að kjara- samningur Starfsgreinasambands Íslands væri ófullnægjandi fyrir verkafólk á höfuðborgarsvæðinu og suðvesturhorninu. Kaup- máttarrýrnun yfirstandandi árs sé óbætt auk þess sem samningurinn muni ekki skila kaupmáttaraukn- ingu á næsta ári sambærilegri þeirri sem lífskjarasamningurinn fól í sér. Segir Efling enn fremur í álykt- uninni að hagvöxtur hafi verið 2,4 prósent við undirritun lífskjara- samningsins árið 2019 en sé nú nær sjö prósent. „Miklu meira er því til skiptanna nú. Launafólk á að fá sinn hlut af þessum mikla hagvexti,“ segir í tilkynningu Eflingar um ályktunina. Kveður félagið kauphækkun í samningi Starfsgreinasambandsins mesta hjá þeim hópum verkafólks sem hafi lengstan starfsaldur hjá sama fyrirtæki. Eflingarfélagar séu hins vegar almennt með styttri starfsaldur hjá sama fyrirtæki og fái því minna út úr launatöflu sambandsins en verkafólk á lands- byggðinni. Þá sé samningurinn hagfelldastur fiskvinnslufólki, sem mikið til sé á landsbyggðinni. Framfærslukostnaður á höfuð- borgarsvæðinu sé hins vegar mun meiri og þurfi nýr kjarasamningur fyrir Eflingarfélaga að taka tillit til þessara atriða. Áfram fundað í dag hjá sátta- semjaranum lLangur og strangur viðræðudagur í gærlViðræðurnar að „mjakast“ Atli Steinn Guðmundsson atlisteinn@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn Magnússon FramkvæmdastjórinnHalldór Benjamín sagði löngum degi lokið. Margt var um manninn þegar forseti Íslands, Guðni Th. Jóhann- esson, vígði með formlegum hætti Stéttina, nýtt húsnæði nýsköpunar- og þekkingarklasans sem er við Hafnarstétt 1-3 á Húsavík. Langa- nes ehf. afhenti síðasta hluta hús- næðisins í gær, en það hefur verið endurbætt nokkuð. Valdimar Guðmundsson söngvari lét ljós sitt skína ásamt hljóm- sveit sinni, Lón, og söngkonunni Rakel, en þau héldu svo tónleika í Húsavíkurkirkju um kvöldið. Stéttin er meðal annars á vegum SSNE, Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra, en þar verða til húsa aðilar á borð við Fab Lab Húsavík, Össur, Rannsóknasetur Háskóla Íslands, Heilbrigðiseftirlit Norðausturlands og Þekkingarnet Þingeyinga. lNýtt húsnæði fyrir nýsköpun og þekkingu Forsetinn vígði Stéttina á Húsavík Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Stéttin Guðni vígði þekkingarklasann með því að hringja bjöllu hússins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.