Morgunblaðið - 10.12.2022, Side 8
FRÉTTIR
Innlent8
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 2022
Fiskislóð • Bíldshöfði • Smáratorg • Helluhraun • Baldursnes • www.gaeludyr.is
Jólagjafir
gæludýranna
færðu hjá
okkur
STAKSTEINAR
Má ekki fara hag-
kvæmari leið?
Þórarinn Hjaltason
samgönguverkfræðingur
ritaði prýðilega grein um sam-
göngumál á höfuðborgarsvæð-
inu í Morgun-
blaðið í gær. Þar
kemur fram, en
kemur engum
ökumanni
á óvart, að
umferðartafir
á höfuðborgar-
svæðinu séu
„óeðlilega mikl-
ar miðað við
önnur borgarsvæði af svipaðri
stærð“. Fjárveitingar hafi skort
til uppbyggingar þjóðvegakerf-
isins á svæðinu og ef svæðis-
skipulagi hefði verið fylgt væri
umferðarástandið svipað nú og
um síðustu aldamót.
Enn verra er að áherslurn-
ar sem nú liggja fyrir eru
rangar. Myndarleg fyrirhuguð
fjárframlög í tengslum við sam-
göngusáttmálann svokallaða
breyti því ekki að umferðartafir
muni enn vaxa verulega næsta
áratuginn. Og vandinn eins og
Þórarinn lýsir honum er að
stærstur hluti samgöngusátt-
málapakkans á að fara í „veg-
stokka og borgarlínu, sem gera
takmarkað gagn miðað við
kostnað“.
Þá bendir Þórarinn á að
fram hafi komið tillögur um
mislæg gatnamót sem séu 2-3
sinnum ódýrari en vegstokkarn-
ir og létta borgarlínu sem skili
svipuðu og sú risavaxna en sé
3-4 sinnum ódýrari.
Hvernig stendur á því við
núverandi aðstæður, með
Reykjavíkurborg í stórkostleg-
um rekstrarvanda og ríkissjóð
ofþaninn, að ekki er skoðað í
alvöru að fara hagkvæmari og
betri leið í þessum efnum?
Þórarinn
Hjaltason
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
www.mbl.is/mogginn/leidarar
Lægra eigið fé en fyrir tíu árum
lÞau 5% semmestar eignir áttu vorumeð 2.294milljarða kr. í eigið fé 2021
Eigið fé þeirra 5% framteljenda sem áttu mestar
eignir við árslok 2021 var 2.294 milljarðar kr.
samkvæmt niðurstöðum álagningar 2022. Hlutfall
eigin fjár þeirra af eigin fé allra framteljenda var
39,0% og er það tæplega 12 prósentustigum lægra
en tíu árum áður. Þetta er á meðal þess sem kem-
ur fram í svari fjármálaráðherra við fyrirspurn
Loga Einarssonar, þingmanns Samfylkingarinnar.
Í svarinu kemur einnig fram að eigið fé þess 1%
framteljenda sem áttu mestar eignir við árslok
2021 hafi verið 996 milljarðar kr. Hlutfall eigin
fjár þeirra af eigin fé allra framteljenda var 16,9%
og er það 7 prósentustigum lægra en tíu árum
áður.
Þá var eigið fé þess 0,1% framteljenda sem
mest áttu við lok árs 2021 325 milljarðar kr. og
var hlutfall eigin fjár þeirra af eigin fé allra fram-
teljenda 5,5%. Það er tæplega 3 prósentustigum
lægra en fyrir tíu árum.
518milljarðar í heildartekjur
Logi spurði einnig um tekjur hinna tekjuhæstu,
með og án fjármagnstekna, og voru heildartekjur
með fjármagnstekjum hjá tekjuhæstu 5% framtelj-
enda 518 milljarðar kr. árið 2021. Var hlutfall tekna
þeirra af heildartekjum allra framteljenda 23,0%,
sem er 2,3 prósentustigum hærra en tíu árum fyrr.
Heildartekjur með fjármagnstekjum hjá efsta
1% framteljenda voru 226 milljarðar kr. Hlutfall
tekna þeirra af öllum tekjum var 10,0% og er það 3
prósentustigum hærra en fyrir tíu árum. Þá voru
heildartekjur hjá tekjuhæsta 0,1% framteljenda
samtals 94 milljarðar kr. Hlutfall tekna þeirra af
heildartekjum var 4,2% og er það 2,4 prósentu-
stigum hærra en fyrir tíu árum samkvæmt svari
fjármálaráðherra.
Kristbjörn Þór Árnason
Andlát
Kristbjörn Þór
Árnason skipstjóri
andaðist á Heil-
brigðisstofnun
Norðurlands á
Húsavík 5. desember
sl., 85 ára að aldri.
Kristbjörn, sem ætíð
var kallaður Bóbi,
var landsþekktur
aflaskipstjóri.
Kristbjörn fæddist
18. ágúst 1937 á
Húsavík, sonur hjón-
anna Árna Krist-
jánssonar og Kristín-
ar Sigurbjörnsdóttur
frá Ásgarði. Hann
bjó alla sína tíð á Húsavík.
Kristbjörn byrjaði aðeins 16 ára
gamall til sjós. Það var með Maríusi
Héðinssyni, skipstjóra á Stefáni
Þór frá Húsavík. Síðan lá leið hans
í Stýrimannaskólann þar sem hann
náði sér í tilskilin réttindi enda átti
sjómannsstarfið vel við hann. Hann
gerðist síðan stýrimaður á Helga
Fló ÞH í lok sjötta áratugarins. Það
var síðan 1963 sem hann réð sig
sem skipstjóra á Báruna KE frá
Keflavík sem var í eigu Einars ríka,
eða Einars Sigurðssonar útgerðar-
manns. Síðan var hann skipstjóri
hjá sömu útgerð á skipum, svo sem
Engey RE, Akurey RE, Örfirisey
RE, og Sigurði VE. Lengst var hann
skipstjóri á Sigurði.
Bóbi fór sína síð-
ustu veiðiferð fyrir
útgerðina sumarið
2009 á Sigurði
VE eftir langa og
farsæla sjómennsku.
Hann var alla tíð
mikill veiðimaður
og fiskaði vel um
ævina, síld og loðnu.
Heildaraflinn var
vel á aðra milljón
tonna, sem líklega
er einsdæmi. Þótti
mjög eftirsóknar-
vert fyrir sjómenn
að munstra sig á
skip hjá Bóba.
Afrek Kristbjörns vöktu mikla
athygli, bæði hér innanlands og eins
erlendis. Forseti Íslands, Ólafur
Ragnar Grímsson, sæmdi hann
fálkaorðunni 17. júní 2010 fyrir vel
unnin störf í þágu íslenskrar þjóðar.
Þá fékk hann alþjóðleg verðlaun á
Sjávarútvegssýningunni 2008 fyrir
afburðaskipstjórn. Sjómannadeild
Framsýnar á Húsavík veitti honum
einnig heiðursmerki sjómannadags-
ins.
Eftirlifandi eiginkona Kristbjörns
er Birna Sigurbjörnsdóttir. Þau
eignuðust tvö börn, Aðalbjörgu og
Árna Björn, sem lifa föður sinn.
Útför Kristbjörns verður gerð frá
Húsavíkurkirkju miðvikudaginn 14.
desember klukkan 14.