Morgunblaðið - 10.12.2022, Síða 12

Morgunblaðið - 10.12.2022, Síða 12
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 2022 DAGLEGTLÍF12 líta í kringum mig eftir einhverju alvöru, enda orðinn pabbi og hafði skyldum að gegna. Eitt leiddi af öðru og átján ára, árið 2006, fékk ég vinnu á veitingastaðnum í Perlunni og líkaði vel. Áhuginn á matargerð var ekki mikill í fyrstu en hann efldist eftir því sem á leið,“ segir Sveinn sem eftir námssamning starfaði í eitt ár á Hótel Rangá. Hélt þaðan til Noregs og vann í nokk- ur misseri á Renaa í Stavanger; veitingastað sem kominn er með tvær stjörnur hjá Michelin sem segir sitt um gæðin. „Ég lærði mikið á Renaa og að því bý ég svo sannarlega. Vinnubrögð- in voru tekin alveg frá grunni og hvernig beri að gera sem mest úr hráefni. Þarna komst ég til dæmis upp á lag með að elda í kolaofni, þar sem hitastigið getur verið frá 300 til 520 gráða. Einnig vandist ég þarna á að matur og upplifun þurfa að haldast í hendur. Huga þarf að heildarmyndinni þegar matseðill er settur saman,“ segir Sveinn sem nú í bráðum þrjú ár hefur starfað sem yfirmatreiðslumaður í mötuneyti verkfræðistofunnar Eflu. Fer þar fyrir fimm manna hópi sem hvern virkan dag fæðir alls um 300 manns. „Fjölbreytni er boðorð í starfi okkar hér og að enginn fái leið á matnum sakir einsleitni. Að sumu Í matargerðarlist er sú stefna ráðandi nú að hið náttúru- lega bragð fái að njóta sín. Þetta viðhorf er að finna hvarvetna, sem mér finnst vera alveg til fyrirmyndar,“ segir Sveinn Steinsson matreiðslumeistari. Hann er einn liðsmanna íslenska kokkalandsliðsins sem náði 6. sæti á heimsmeistaramótinu í mat- reiðslu sem haldið var í Lúxem- borg á dögunum. Á mótinu tóku Íslendingar þátt í tveimur keppnis- greinum og náðu 6. sæti með 88,86 stigum af 100 mögulegum. Sviss- neskir kokkar fóru með sigur af hólmi með 93,01 stig. Svíar voru í 2. sæti með 90,26 stig. Aðeins munaði þó 1,4 stigum á 2. sæti og því 6. sem Íslendingar lentu í. Snilldartaktar á öllum sviðum Ytra keppti íslenska liðið fyrst í að útbúa þriggja rétta matseðil með heitum réttum og náði þar 3. sæti. Hráefnið var meðal annars lax og lambakjöt í veislu fyrir 110 manns. Hin keppnisgreinin var að setja saman þrettán rétta kvöldverð fyrir 12 manns sem kallaðist Chef’s Table. Efniviðurinn þar var til að mynda hreindýrakjöt, lynghæna, hörpu- skel, þorskur og rækjur. Þarna tókst Íslendingum vel upp. Í endanlegum úrslitum var það svo samanlagður árangur sem fleytti íslenska liðinu í 6. sætið en alls tóku 20 þjóðir þátt. Þórir Erlingsson, forseti Klúbbs matreiðslumeistara, var með liðinu á keppnisstað í Lúxemborg. Eftir honum er haft að sannarlega hafi íslenska liðið stefnt ofar en náðist. Hitt beri að hafa í huga að þarna hafi heimsins bestu kokkar mæst í harðri keppni og þegar kom að stigagjöf hafi jafnræði verið með liðum. Haft hefur verið á orði að Íslandsliðið hafi sýnt snilldartakta á öllum sviðum, en ekki haft þá þjálfun sem þurfti þegar kom að því að steypa styttu úr súkkulaði sem var einn þáttur í keppninni. Sá þáttur hafi í lokin ráðið miklu um heildarfjölda stiga. Allir byrja með 100 stig Keppnismatreiðsla er í raun frá- dráttarkeppni. Allir byrja með 100 stig en síðan koma frádráttarstig þegar horft er horft til hreinlætis, fagmennsku, útlits rétta, bragðs og fleiri þátta. Gullframmistaða er 90 stig, silfur 80 stig og brons 70 stig. Ari Þór Gunnarsson er þjálfari íslenska kokkalandsliðsins sem valið var í fyrir hálfu öðru ári og hefur æft reglulega síðan. Fyrirliði er Sindri Guðbrandur Sigurðsson sem starfar á Héðni Kitchen Bar en önnur sem valin voru í liðið eru, auk Sveins Steinssonar, Aron Gísli Helgason, Gabríel Kristinn Bjarnason, Ísak Darri Þorsteinsson, Erla Þóra Bergmann Pálmadóttir, Jakob Zarioh S. Baldvinsson, Ísak Aron Jóhansson, Chidapha Kruasa- eng, Ívar Kjartansson, Aþena Þöll Gunnarsdóttir, Hringur Oddsson og Marteinn Rastrick. Allt er þetta fólk sem vinnur hjá framúrskarandi veitingastöðum og hefur náð ár- angri í samræmi við háleit markmið sín. Fjölbreytni í leikhúsi „Ég vann sem unglingur hjá verk- takafyrirtæki og var á skóflunni. Sá þó enga framtíð í því. Fór því að leyti virkar þetta líka eins og leik- hús, því hér reynum við að tengja matseðil hvers tíma við ákveðin efni. Þegar til dæmis kóreskir réttir eru á borðum er tónlist þaðan í undirspili hér. Hér gildir líka að vinna sem mest af hráefninu frá grunni, hvort sem það er að baka brauð eða útbúa pylsur. Slíkt skilar alltaf í góðum mat og ánægðu starfsfólki. Hér hjá Eflu hef ég fengið alveg frábær tækifæri til þess að gera skemmtilega hluti í matargerð.“ Sveinn kom nú í vikubyrjun aftur til starfa í mötuneytinu hjá Eflu eftir góða og lærdómsríka daga í Lúxemborg. Hann segist áfram um þátttöku í kokkalandsliðinu en næsta verkefni þess er ólympíumót í Stuttgart sem fer fram í febrúar 2024. Góð liðsheild í Lúxemborg „Heimsmeistaramótið í Lúxem- borg kallaði á strangar æfingar. Þjálfarinn parar saman þau sem best geta starfað og núna finnst mér við hafa náð alveg frábærri liðsheild. Þarna kynntist ég líka frábæru fagfólki sem margt má læra af. En undirbúningur fyrir heimsmeistaramót er þó ekki bara sá að setja saman uppskriftir og þjálfa vinnubrögð. Sjálfur lagði ég ég mig mikið eftir líkamlegri og andlegri þjálfun sem var mjög mikilvægt, þegar kom að keppninni sjálfri sem var í senn skemmtileg og ögrandi,“ segir Sveinn Steinsson að síðustu. Úrvalskokkur í eldhúsi Eflu Veisla! Sveinn Steinsson er meðal bestu kokka landsins. Á heimsmeistaramóti var hráefnið til að mynda lynghæna, lax, og hreindýrakjöt. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Ljósmynd/Brynja Kr. Thorlacius Kokkalandslið Snillingar í langri röð. Að ná 6. sæti þótti gott í keppni við þau allra bestu í veröldinni. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Undirbúningur Sveinn Steinsson sker hangikjöt fyrir jólaborðið. Sögusviðið er Eskifjörður, Breiðdalur, Djúpivogur, Álftafjörður og Kaupmannahöfn. Morð var framið sem leiddi til síðustu aftökunnar á Austurlandi. Þessi bók er vel skrifuð, skemmtileg og fróðleg. Fæst í Eymundsson og beint frá höfundi: hvitaskald@simnet.is. Frjálst Orð ehf, gefur út. Morðið í Naphorni eftir Ásgeir Hvítaskáld er æsispennandi og magnþrungin raunasaga, byggð á sannri sögu sem gerðist á Austurlandi 1784 til 1786.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.