Morgunblaðið - 10.12.2022, Page 20
FRÉTTIR
Innlent20
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 2022
Barnabílstólar
og kerrur
Þar sem þýskt
hugvit og
heimsklassa
ítölsk hönnun
fara saman
Bíldshöfða 16, 110 Rvk | S. 567 2330 | bilasmidurinn.is
Það bar til tíðinda á Seltjarnarnesi
á dögunum að trönurnar við
Snoppu fuku um koll í stórviðri.
Félagsskapur af Nesinu, sem
kalla sig Trönuvini, fór síðastliðinn
laugardagsmorgun á staðinn og
tók niður það sem eftir stóð af
trönunum. „Gengið var frá því sem
nota má aftur en til stendur að
reisa trönurnar aftur á vormánuð-
um og til gamans að hengja jafnvel
á þær fisk,“ segir Þór Sigurgeirsson
bæjarstjóri og trönuvinur.
Fyrr á árum var Snoppan sem
og Suðurnes, þar sem golfvöllurinn
er nú, undirlögð af trönum. Einnig
voru trönur á Valhúsahæð. Þarna
héngu skreið og hausar og voru að-
stæður til þessarar verkunar taldar
hinar bestu á Nesinu.
Trönurnar sem eftir standa voru
reistar fyrir nokkrum árum, meðal
annars fyrir tilstilli Jóns Snæ-
björnssonar og Seltjarnarnesbæjar.
„Þarna er um menningarverðmæti
að ræða og einstaklega skemmti-
legt að hafa trönurnar þarna við
Snoppu til minningar um það sem
var,“ segir Þór bæjarstjóri.
sisi@mbl.is
Trönuvinir björguðu
trönunum á Nesinu
Trönuvinir Guðmundur Ingi Hjartarson, Stefán Hand, Ingimar Sigurðs-
son, Þór Sigurgeirsson, Guðjón Jónatansson og Jónatan Guðjónsson.
Ferðaþjónustan hefur blómstrað aftur
í Mýrdalnum eftir að öll Covid-bönn voru
aflögð. Því fylgir að sjálfsögðu mikil þörf fyrir
starfsfólk. Nánast allt húsnæði sem losnar
er keypt upp af þeim sem reka ýmiss konar
þjónustu í kringum ferðamenn, og nýta húsin
sem íbúðir fyrir starfsfólk, sem stoppar oft
stutt á svæðinu. Fyrir samfélagið væri betra
að fá í húsin fjölskyldur sem þá yrðu hluti af
samfélaginu.
Nýlega var stofnað í Vík enskumælandi
ráð og á það að vera vettvangur erlendra íbúa
til að koma sínum sjónarmiðum og hugmynd-
um á framfæri, en um 50% íbúa á svæðinu
eru af erlendum uppruna. Formaður nefndar-
innar er Tomasz Chocholowicz.
Þegar lesið er um stofnun slíks enskumæl-
andi ráðs þá veltir maður fyrir sér hvort ekki
hefði frekar þurft að efla íslenskukennslu í
Vík, og þá væri minni hætta á samskipta-
vanda vegna tungumálaörðugleika.
Miklar byggingarframkvæmdir eru í
Vík. Í byggingu er 12 íbúða fjölbýlishús, og
sveitarfélagið gekk nýlega frá viljayfirlýsingu
á öðru fjölbýlishúsi af sömu stærð. Hinun
megin við götuna er að rísa hús með sex
verslunar- og þjónusturýmum á neðri hæð og
sex íbúðum á efri hæð.
Búið er að reisa skólahreystibraut við
Víkurskóla, en hún var sett upp fyrir fjármuni
sem bæði fyrirtæki og einstaklingar í Mýrdal
gáfu til verkefnisins. Það sem eftir stóð lagði
svo Mýrdalshreppur til verkefnisins.
Nýlega var vígt glæsilegt útisvæði við
enduruppgerða smávirkjun við Syngjandann
í Vík. Virkjunin var fyrst reist 1913 af Halldóri
Guðmundssyni en stöðin var notuð til ársins
1936 og afl hennar var 10 KW. Þá setti Bjarni
Runólfsson upp nýja stöð sem stóð þar til
Sogsrafmagnið kom til Víkur 1959. Síðan
hefur stöðin staðið að mestu ónotuð, þar til
nú að Smári Tómasson endurgerði stöðina
ásamt Mýrdalshreppi. Rafmagnið sem hún
framleiðir er notað til að lýsa upp og fegra
umhverfið.
Mikið byggt í Vík í Mýrdal
ÚRBÆJARLÍFINU
Jónas Erlendsson
Vík í Mýrdal
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Vík í Mýrdal Gamla rafstöðin
hefur verið gangsett á ný og
lýsir upp skammdegismyrkrið.