Morgunblaðið - 10.12.2022, Side 26
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 2022
UMRÆÐAN26
HVÍTT SVART KRÓMGRÁTT BRASS KOPAR
LIÐ
IÐ
HEIMAVARNAR
Sundaborg 7 / Reykjavík / Sími 568 4800 / www.oger. is
Mikið úr val s lökkvi tækja fyr ir al lar
aðstæður og í mörgum li tum. Förum
var lega – og verum við öl lu búin.
SLÖKKVITÆKI FYRIR ÖLL
HEIMILI – OG FYRIRTÆKI.
Þjóðaröryggismat í skugga Pútins
Þ
egar þjóðaröryggisstefnan fyrir Ísland var sam-
þykkt árið 2016 lá fyrir áhættumatsskýrsla fyrir
Ísland frá árinu 2009. Matsskýrsla sem íslensk
stjórnvöld létu vinna eftir að Bandaríkjaher
hvarf héðan árið 2006. Þá töldu Bandaríkjamenn að líta
bæri á Rússa sem samstarfsmenn en ekki andstæðinga.
Skýrslan frá 2009 var höfð til hliðsjónar þegar frá
þjóðaröryggisstefnunni var gengið með samþykkt þings-
ályktunartillögu 13. apríl 2016. Síðar sama ár samþykkti
þingið lög um þjóðaröryggisráð.
Í maí 2018 samþykkti þjóðaröryggisráð að lagt skyldi
mat á ástand og horfur í þjóðaröryggismálum. Matið
skyldi liggja stefnumótun og áætlanagerð í málaflokkn-
um til grundvallar. Það ætti að „endurspegla þá breiðu
sýn á þjóðaröryggi“ sem lægi að baki þjóðaröryggis-
stefnunni og skýrslunni frá 2009.
Stýrihópur við skýrslugerðina kallaði eftir áhættu-
matsskýrslum 18 greiningaraðila innan stjórnkerfisins
og bárust þær frá lokum árs 2018 til ársbyrjunar 2020.
Var tillaga að matsskýrslu á þessum grunni samþykkt á
fundi þjóðaröryggisráðs 7. febrúar 2020.
Í byrjun mars 2020 var öllu
skellt í lás hér og annars staðar
vegna COVID-19 faraldursins.
Þá lagði skýrsluhópur þjóðarör-
yggisráðs til að útgáfu matsins
yrði frestað og ráðist í endurmat
vegna faraldursins. Gekk það
eftir og er matsskýrslan dagsett
í febrúar 2021. Fyrstu blaðsíður
hennar snúast um farsóttir og
áhrif COVID-19-faraldursins.
Nú þriðjudaginn 6. desember
2022 lagði forsætisráðherra,
formaður þjóðaröryggisráðs, fyrir alþingi nýja mats-
skýrslu um þjóðaröryggi. Þar hefur mat á áhrifum
COVID-19 vikið fyrir fyrir upphafsköflum sem heita: Ný
staða í öryggismálum Evrópu. – Áfallaþol samfélagsins.
– Hernaðarlegir þættir, fjölþáttaógnir og varnarmann-
virki. – Öryggi landhelgi og landamæra. – Gæsla hafsins
umhverfis Ísland. – Landamæragæsla.
Nýjasta matsskýrslan tekur með öðrum orðum mið
af áhrifum innrásar Rússa í Úkraínu eins og þau voru
orðin 28. október 2022, átta mánuðum eftir að Vladimir
Pútin hóf styrjöldina. Hún hafði þá breyst í tortímingar-
stríð gegn grunnvirkjunum sem skapa íbúum Úkraínu
ljós og yl í vetrarkuldunum.
Enginn veit hve lengi stríðið varir. Nú fyrir jólin kom
í íslenskri þýðingu út bókin Kóreustríðið eftir Max
Hastings. Það hófst að tilefnislausu vegna valdafíknar
einræðisherra Norður-Kóreu sumarið 1950. Hart var
barist í eitt ár en síðan háð þreytistríð í tvö ár. Því lauk
með vopnahléi án friðarsamninga árið 1953. Er friður
þar enn brothættur eins og fréttir herma.
Áhrifa Kóreustríðsins á þróun alþjóðamála gætir enn
á mörgum sviðum. Hér leiddi stríðið til þess að gerður
var varnarsamningur við Bandaríkin í maí 1951 að
tilmælum NATO.
Enginn veit á þessu stigi hver verða varanleg áhrif
innrásar Pútins í Úkraínu eða hvenær stríðinu lýkur. Í
Norður-Kóreu bjó stríðsherrann þannig um hnúta að
alræðisvaldið og stríðsvélin er enn í höndum erfingja
hans. Pútin eru meiri skorður settar en Kim-ættinni í
Norður-Kóreu hvort sem brotthvarf hans af valdastóli
leiðir til friðar eða ekki. Arfleifð Úkraínustríðsins verður
vafalaust sú að mun meiri varkárni gæti í samskiptum
nágranna Rússa við þá en varð eftir hrun Sovétríkjanna.
Mat þjóðaröryggisráðs er að innrásin í Úkraínu hafi
skapað skapast „eitt alvarlegasta hættuástand í öryggis-
málum Evrópu frá lokum síðari heimsstyrjaldar“.
Erfitt er þó að benda á alvarlegra hættuástand í
Evrópu frá 1945. Í Kóreustríðinu urðu til óskráðar sam-
skiptareglur milli frjálsra ríkja og kommúnistaríkjanna
sem drógu úr líkum á beitingu kjarnavopna á vígvellin-
um. Í Úkraínustríðinu hafa vaknað spurningar um hvort
Pútin kunni í neyð sinni að grípa til kjarnavopna. Enginn
veit svarið. Rússneski einræðis-
herrann er óútreiknanlegur en
sagðist þó í vikunni ekki geggjaður
þegar hann kæmi að kjarnavopn-
um.
Þjóðaröryggismatið er að rúss-
nesk stjórnvöld séu „reiðubúin að
beita öllum hernaðarmætti sínum
til að ná pólitískum og hernaðar-
legum markmiðum“.
Engu skipti hvort um sé að ræða
„árásir á hernaðarleg eða borgara-
leg skotmörk eða ofbeldi gegn
almennum borgunum“. Þá hafi stríðið „valdið veruleg-
um efnahagsskaða, eins og eyðileggingu grunninnviða,
orkuskorti, röskun á aðfangakeðjum og leitt til mikillar
spennu í alþjóðasamskiptum“.
Þá segir að „grimmilegt landvinningastríð Rússa gegn
fullvalda ríki í trássi við alþjóðalög“ hafi kippt grund-
vellinum „undan því öryggiskerfi sem hefur verið í gildi í
Evrópu frá lokum kalda stríðsins“.
Minnt er á að NATO hafi á ný „beint sjónum að
hafsvæðinu milli Grænlands, Íslands og Bretlands,
svonefnds GIUK-hliðs, eins og á dögum kalda stríðsins
vegna aukins flotastyrks Rússlands“. Aðstaða hér á
landi hafi „lykilþýðingu vegna liðsflutninga yfir Atlants-
hafið, bæði á friðartímum og á hættu- og ófriðartímum“.
Regluleg tímabundin viðvera liðsafla Bandaríkjanna
á Íslandi hafi farið vaxandi á síðustu árum og tengist
einkum eftirliti þeirra með rússneskum kafbátum á
Norður-Atlantshafi.
Réttilega er sagt að varnarmannvirki í landinu séu
„mikilvæg öryggishagsmunum Íslands og bandalags-
ríkja í tengslum við rekstur ratsjárkerfis og gistiríkis-
stuðning“. Áréttað er mikilvægi þess að tryggja að inn-
viðir og sérfræðiþekking sé fyrir hendi til að taka þátt í
starfsemi NATO og uppfylla alþjóðlegar skuldbindingar
sem því fylgja.
Þegar svo kemur að því hvort styrkja eigi varnir
landsins í ljósi matsins er skilað auðu. Að skapa sér þá
sérstöðu er óskynsamlegt.
Þjóðaröryggismatið er að
rússnesk stjórnvöld séu
„reiðubúin að beita öllum
hernaðarmætti sínum til að
ná pólitískumog hernaðar-
legummarkmiðum“.
Vettvangur
Björn Bjarnason
bjorn@bjorn.is
•Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar
Hannes H. Gissurarson
hannesgi@hi.is
Greinin sem hvarf
Þegar ég hóf rannsókn mína
á landsdómsmálinu hafði ég
óljósar spurnir af því, að einn
dómarinn í landsdómi, Eiríkur
Tómasson, hefði skrifað um
bankahrunið á netinu. Hann hafði
birt grein í Fréttablaðinu 14. febr-
úar 2009 um, að endurskoða þyrfti
stjórnarskrána vegna bankahruns-
ins haustið 2008, og þar sagði í
lokin, að lengri útgáfa væri til á vef
blaðsins. Þessi lengri grein fannst
þar hins vegar hvergi. Ég gróf
hana loks upp í viðauka við próf-
ritgerð nemanda á Bifröst, sem
útvegað hafði sér afrit af henni.
Í greininni sagði Eiríkur, að
þeim, sem hefðu opinbert vald,
hætti til að misnota það. Hvar-
vetna, þar sem of mikið vald hefði
safnast saman á örfáar hendur,
hefði því farið illa. „Dæmi um það
er ægivald íslenskra ráðherra
gagnvart öðrum handhöfum
ríkisvaldsins, en sú samþjöppun
valds á fáar hendur hefur, eins og
bent hefur verið á að undanförnu,
átt sinn þátt í því að valda okkur
Íslendingum meiri búsifjum en við,
sem fædd erum um miðja síðustu
öld, höfum áður kynnst.“ Ég sneri
mér til vefstjóra visis.is sem kunni
enga skýringu á því, að greinin
hefði horfið, en gat sett hana inn
aftur.
Í þessari grein reifaði Eiríkur
beinlínis þá kenningu, að ein orsök
bankahrunsins hefði verið „ægi-
vald“ ráðherra gagnvart öðrum
handhöfum ríkisvaldsins, sem þeir
hefðu misnotað. Hefði verið vitað
um þessa grein, þegar Eiríkur
settist í landsdóm í ársbyrjun
2012, þá hefði hann tvímælalaust
verið talinn vanhæfur til að dæma
í máli Geirs H. Haarde forsætis-
ráðherra. Hann hafði þegar látið
í ljós þá skoðun, að Geir hefði átt
þátt í bankahruninu með því að
misnota „ægivald“ sitt.
Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð
Jesús í Völuspá
Í
Þjóðminjasafni Íslands eru varðveittar þrettán fornar og fag-
urlega útskornar myndfjalir sem eru kenndar við Flatatungu og
Bjarnastaðahlíð í Skagafirði. Talið er að myndirnar séu leifar
af býsanskri dómsdagsmynd sem prýddi dómkirkjuna á Hólum
í Hjaltadal á 12. öld. Dómsdagsmyndin hefur verið endurgerð eftir
hugmyndum Harðar Ágústssonar, listmálara og fræðimanns. Hún
sýnir eldstraum liggja niður frá fótstalli Jesú Krists til vítisloga þar
sem sálir fordæmdra líða píslir.
Pétur Pétursson, fyrrverandi prófessor í guðfræði, setti fram
tilgátu um bein tengsl á milli býsönsku dómsdagsmyndarinnar á
Hólum og erindis í Völuspá (í Konungsbók eddukvæða):
Geisar eimi / við aldurnara,
leikur hár hiti / við himin sjálfan.
Pétur hugsar sér að aldurnari vísi á frelsarann Jesúm Krist. Þessi
hugmynd fær stuðning úr óvæntri átt. Í Íslenskri orðsifjabók nefnir
Ásgeir Blöndal Magnússon að aldurnari kunni að vera tökuorð
úr fornensku en þar er til orðið aldorneru sem merkir ‘björgun
lífs, athvarf’. Ég hef fært
málfræðileg rök fyrir því að
þessi uppástunga sé sennileg
og bæti því við að fornenska
orðið getur líka merkt ‘sá
sem bjargar lífi’. Ef aldurnari
er tökuorð úr fornensku sem
var aðlagað að forníslensku
væri merkingin í Völuspá þessi: ‘Eldur geisar við þann sem bjargar
lífi.’ Út frá tengingunni við dómsdagsmyndina á Hólum virðist láta
nærri að sá lífsbjargari sem um ræðir sé enginn annar en sjálf-
ur Jesús Kristur, hinn ríki og öflugi. Á dómsdegi geisar eldur við
himneskan fótstall frelsarans og liggur niður til vítis.
Óþarft er að taka fram að þessi hugmynd er ekki í samræmi við
viðteknar skýringar á Völuspá. Venjulega er talið að aldurnarimerki
‘eldur’ og merkingin væri þá: ‘Eldur geisar við eld.’ Önnur skýring er
að orðið eigi við ask Yggdrasils, lífstréð í norrænni goðafræði: ‘Eldur
geisar við ask Yggdrasils’. Þessar tilgátur eru svo ólíkar að segja má
að hefðbundnar skoðanir séu komnar í hnút.
Fornenska orðið aldorneru kemur fyrir í heimildum frá 10. öld og
er því a.m.k. 300 árum eldra en Völuspá í varðveittri gerð hennar
(um 1270). Það gæti aldursins vegna verið fyrirmynd forníslenska
orðsins. Engilsaxar urðu kristnir á 7. öld og kristileg tökuorð úr
fornensku eru þekkt í forníslensku, m.a. guðspjall, ummyndað úr
fornensku godspell ‘fagnaðarboðskapur’ (orðrétt ‘gott spjall’), sbr.
grísku evangelion.
Þannig er aldurnari enn einn vitnisburðurinn um náið samband
norrænna manna og Engilsaxa á þeim tíma þegar Völuspá varð til og
vísbending um samruna kristinna og heiðinna hugmynda í mótunar-
sögu kvæðisins. Nánar er fjallað um þessar hugmyndir í nýútkominni
bók sem við Pétur Pétursson ritstýrðum og heitir Rætur Völuspár.
Tungutak
Þórhallur Eyþórsson
tolli@hi.is
DómsdagurÖnnur koma frelsarans. Sú fyrsta var fæðingin 24. desember.