Morgunblaðið - 10.12.2022, Side 43

Morgunblaðið - 10.12.2022, Side 43
MENNING 43 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 2022 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ RALPH FIENNES NICHOLAS HOULT ANYA TAYLOR-JOY Painstakingly Prepared. Brilliantly Executed. FORSALA HAFIN - KEMUR Í BÍÓ 16. DESEMBER FRÁ ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU OKKUR ENCANTO KOMIN Í BÍÓ SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI USA TODAY ENTERTAINMENT WEEKLY EMPIRETHE PLAYLISTNEW york post 84% SCREENDAILY IGN VANITYFAIR THEHOLLYWOOD REPORTER 91% 71% Stefanía er fjöllistamaður og hefur komið að ýmsu þrátt fyrir ungan aldur. Smásagna- safn hennar Skyggnur kom t.d. út fyrir stuttu og plata þessi er gefin út af Smekkleysu. Hún er með gráðu í hljóðtækni og -upptöku, auk þess með B.A. í heimspeki og ritlist, og fyrir sjö árum síðan afhenti hún rektor Háskóla Íslands, Jóni Atla Benediktssyni, málverk eftir sjálfa sig sem skartar píku „sem mótvægi við öllum þeim fjölda listaverka af berrössuðum karlmönn- um“ sem prýða þá annars ágætu stofnun æðri mennta. Stefanía er nú í námi við LHÍ á tónsmíðabraut og sinnir hún meira að segja öðru tónlistarverkefni meðfram sólóferli, síðpönkssveitinni Virgin Orchestra. Allt undir og allt hægt greinilega! Förum aðeins í tæknileg atriði áður við stökkvum út í greiningarlaugina. Þess má geta að þetta er önn- ur plata Stefaníu. Í fyrra kom út verkið Season in Space sem er til muna tilraunakenndara en Monstermilk, tveir fimmtán mínútna hlutar sem dansa á mörkum sveims og óhljóðalistar. En, verandi búinn að hlusta á Monstermilk, heyrir maður vel að hér er sama listakonan á ferð. Bergþóra Kristbergsdóttir (klarínett), Rún Árnadóttir (strengir), Hafrún Birna Björnsdótt- ir (strengir) og Jón G. Breiðfjörð (trommur) lögðu öll til hljóðfæraleik. Curver Thoroddsen hljóðblandaði og hljómjafnaði, Kinnat Sóley hannaði og skreytti umslag og Sóley Stefáns- dóttir fær sérstakar þakkir fyrir andlegt pepp og ráðgjöf. Fyrirsögn mín er tilraun til að tefla saman andstæðunum sem ég heyri í verkinu. Það er blíða og fegurð en myrkir skuggar á stjái um leið, nær alls staðar. „Horft til sólar úr ræsinu,“ sagði ég við kollega minn þegar við vorum að spá í eigindum þessarar plötu. Svona „ýjað að fegurð“ í krafti höfundar sem er staddur á undarlegum stað, erfiðum jafnvel. Þetta eru hughrifin, platan fær mann til að hugsa og er ekki að „gefa sig“. Stefanía sýnir m.ö.o. alls ekki á öll spil. Maður krafsar eftir merkimiðum þegar hlutir eru óljósir. Mannskepnan vill skilja. Hvaða hljóðheimur er þetta? Söngvaskáldsins? Já. Meðal annars. Hér er gotneskur strengur, hvort heldur með tilliti til umslags, samverkafólks eða hljóðmyndar. En þetta er ekki ódýrt skandi- popp með rökkurblæ. Þetta er of skrítið fyrir þann stimpil (því stimpill getur það verið). Smá Cat Power, Mouldy Peaches gerir vart við sig og við siglum líka nánast til San Francisco, hvar Residents ráða ríkjum og vinur minn David Lynch myndi glotta við tönn, myndi hann heyra þetta verk. Platan rúllar áfram líkt og við séum allan tímann á milli svefns og vöku. Í hálfgerðu og mjög svo þægilegu móki. Söngröddin er þannig líka, hæfilega fjarlæg, jafnt í blöndun sem tóni. „Easy“ byrjar sæmilega eðlilega en flosnar svo upp í tilraunagraut, afar flott vinnsla þar. „Fuck The Pain Away“ (ekki Peaches lagið) er dásam- legt. Rólegt, nánast hikandi, en á sama tíma með einhverjum ómótstæðilegum svartagaldri. Þverstæðurnar sem er unnið með hér, hvernig þeim er stefnt saman, þetta gengur virkilega vel upp. „White Flag“ er eitt skýrasta dæmið þar um. Lagið býr yfir strengjum sem dýpka plötuna vel og við erum dregin inn í kammer- skotinn draugaheim, ævintýralegan þar sem allt getur gerst. Röddin er biðjandi og falleg – strengirnir líka – en það lúrir eitthvað grimmt og ekki eins fallegt rétt undir yfirborðinu. Það er þetta „x“ sem gefur Monstermilk vigt og galdrar fram nokk einstaka stemningu frá fyrsta tóni til hins síðasta. Skapar fegurðin óhamingjuna? TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Stefanía Pálsdóttir er höf- undur að Monstermilk, plötu sem ferðast um í nokkurs konar andvökuheimi, töfrum slungnum og dulúðugum. Ljósmynd/Gunnlöð Jóna ListakonaMeðMonstermilk hefur Stefanía Pálsdóttir skapað afar órætt en um leið aðlaðandi verk. Elvar Örn segir frá verkefninu Kerfinu Kerfið er yfir- skrift sýningar Elvars Arnar Kjartanssonar sem stendur yfir í Ljós- myndasafni Reykjavíkur. Í verkunum leitast hann við að draga upp á yfirborðið hið ósýnilega kerfi sem liggur að baki nútímaþægindum sem við tökum sem sjálfsögðum hlut. Í dag, laugardag kl. 14, mun Elvar Örn segja frá sýningunni ásamt því að veita innsýn í ljósmyndaverkefni sem hann hefur unnið að á Græn- landi. Aðgangur er ókeypis. Elvar Örn Kjartansson Rakel McMahon í Undirgöngum Sýning Rakelar McMahon, Ég sé stjörnurnar en ég sé ekki heiminn, verður opnuð í Galleríi Undirgöngum við Hverfisgötu 76 í Reykjavík í dag, laugardag, kl. 16. Sýningin samanstendur af höggmynd – textaverki sem er sérstaklega unnið fyrir sýningar- rýmið. Innblástur að verkinu er sóttur í grísku goðsögnina um Ekkó og Narsissus. Verkið vísar einnig í hugmyndir Jungs um undirmeðvitundina, æskuminn- ingar og drauma. Rakel nam við LHÍ, hefur haldið fjölmargar einkasýningar, tekið þátt í samsýningum á Íslandi og erlendis og verk hennar eru í eigu helstu opinberra safna. Rakel notar ólíka miðla í verkum sínum – teikningu, málverk, gjörninga, texta og hljóð. Listakonan Rakel McMahon við verk sitt í Galleríi Undirgöngum. Maður krafsar eftir merkimiðum þegar hlutir eru óljósir. Mannskepnan vill skilja. Hvaða hljóðheimur er þetta?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.