Morgunblaðið - 12.12.2022, Page 1
DRAUMAR ENG-
LENDINGA OG
PORTÚGALA ÚTI
HM Í KATAR 26
VILL EFLAAND-
LEGAHEILSU
STARFSFÓLKS
VEITIR RÁÐGJÖF 10
SORGARÞRÍ-
HYRNINGUR
ÖSTLUNDS BESTUR
EFA Í HÖRPU 29
• Stofnað 1913 • 291. tölublað • 110. árgangur •
MÁNUDAGUR 12. DESEMBER 2022
jolamjolk.is
Giljagaur
kemur í kvöld
dagar til jóla
12
Kjaraviðræður VR, Landssambands
verslunarmanna, samflots iðn- og
tæknigreina og Samtaka atvinnu-
lífsins (SA) hjá ríkissáttasemjara
stóðu enn yfir þegar Morgunblaðið
fór í prentun á tólfta tímanum í gær-
kvöldi. Fundurinn hófst klukkan tíu
í gærmorgun.
Fulltrúar samninganefnda yfirgáfu
einungis Karphúsið til þess að snæða
kvöldverð. Aðalsteinn Leifsson rík-
issáttasemjari sagði fyrir fundinn
að búið væri að skipuleggja þéttan
vinnudag, sem reyndist raunin.
Fulltrúar samninganefndanna
hafa fundað linnulítið alla helgina og
voru settir í fjölmiðlabann síðdegis
á laugardegi.
Ríkissáttasemjari kvaðst aðspurður
grípa til þessa ráðs til að gefa samn-
inganefndunum næði til að vinna
vinnuna sína.
Starfsgreinasambandið og SA náðu
samkomulagi um nýjan skammtíma-
kjarasamning 3. desember síðast-
liðinn, sem hefur verið gagnrýndur
harðlega af forystumönnumEflingar
og VR.
lSamningafulltrúar í fjölmiðlabanni
Maraþonfund-
urstóðennyfir
Myndavélin vakti áhuga Stekkjastaurs er hann kom til byggða
„Stekkjastaur kom fyrstur, stinnur eins og tré. Hann laum-
aðist í fjárhúsin og lék á bóndans fé,“ segir meðal annars í
jólasveinavísum Jóhannesar úr Kötlum en von var á fyrsta
jólasveininum, Stekkjastaur, til byggða í nótt. Ef til vill
ákvað hann að hafa vaðið fyrir neðan sig og vera tíman-
lega á ferðinni. Í það minnsta varð Eggert Jóhannesson
ljósmyndari Morgunblaðsins var við forvitna veru í gær
sem virtist þykja nokkuð til myndavélarlinsunnar koma,
eins og sjá má.
Morgunblaðið/Eggert
„Þetta er bara tímaskekkja, þetta
á heima á hálendinu. Það er miklu
skynsamlegra að fara yfir Kjöl, þar
eru tvær línur fyrir og þetta myndi
bara fara eftir þeim,“ segir landeig-
andi í Hvalfjarðarsveit.
Ráðgert er að Holtavörðuheiðar-
lína 1, loftlína, verði lögð ámilli Klafa-
staða í Hvalfirði og að nýju tengi-
virki á Holtavörðuheiði. Lagnaleiðin
liggur að hluta til yfir eignarlönd í
Hvalfirði og Borgarfirði. Landsnet
hefur boðað fundmeð landeigendum
í dag þar sem áformin verða kynnt
betur. Tveir landeigendur telja and-
stöðuna vera þaðmikla að ríkið þurfi
að grípa til eignarnáms til þess að
fá lagninguna í gegn. Annar þeirra
segir í samtali við Morgunblaðið að
það sé fráleitt að leggja þessa nýju
línu við byggð. » 4
Telja aðþaðkomi
til eignarnáms
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Raflínur Landsnet hefur boðað
fund í dag með landeigendum.