Morgunblaðið - 12.12.2022, Page 8
FRÉTTIR
Innlent8
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. DESEMBER 2022
Fæst í öllum apótekum
STAKSTEINAR
Leynimakk um
Ljósleiðara
Svo ótrúlegt sem það er þá
beita opinberar stofnanir eða
opinber fyrirtæki því stundum
fyrir sig að eigendurnir, almenn-
ingur, megi ekki fá upplýsingar
um starfsemina af því að stofn-
unin sé með
„skráð skulda-
bréf“. Ríkisút-
varpið hefur
meira að segja
beitt þessari
aðferð við að
halda leynd yfir
starfseminni og
má segja að þá
sé fokið í flest
skjól.
Nýjasta dæmið um leynimakk
í skjóli skráðra skuldabréfa
er dótturfyrirtæki Orkuveitunn-
ar, Ljósleiðarinn. Það opinbera
fyrirtæki áformar að kaupa
eignir af einkafyrirtækinu Sýn
en á í miklum erfiðleikummeð
að fjármagna kaupin, hvað þá að
rökstyðja þau.
Nú hefur Orkuveitan gripið
til þess óyndisúrræðis að fá
stóran lánveitanda til að aflétta
skilyrðum um skuldsetningu
dótturfélaga til að auðvelda
Ljósleiðaranum kaupin og hefur
fengið samþykki borgarráðs.
Allt er þetta í meira lagi
vafasamt af ýmsum ástæð-
um. Þarna er opinbert fyrirtæki
að auka umsvif sín á markaði
og um leið er verið að ákveða að
auka skuldsetningu borgarinnar
sem þegar er skuldum vafin.
Hvernig má vera að þetta ger-
ist án þess að nokkuð heyr-
ist frá borgarfulltrúum? Enginn
býst við neinu af fulltrúum
meirihlutans í þessum efnum,
en hvað veldur því að fulltrúar
minnihlutans þegja?
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
www.mbl.is/mogginn/leidarar
Tveir vopnaðir
menn handteknir
lHöfðu í hótunumvið dyraverði
Tveir karlmenn voru handteknir
í miðbæ Reykjavíkur aðfaranótt
sunnudags þar sem þeir höfðu í
hótunum við dyraverði. Mennirnir
voru vopnaðir hnífum og barefl-
um. Þeir voru vistaðir í fangaklefa
lögreglu.
Þá handtók lögreglan einstakling
sem hafði verið til vandræða fyrir
utan knæpu í miðbænum. Hann
var kærður fyrir brot á lögreglu-
samþykkt og sleppt í framhaldi.
Annar einstaklingur, sem fór ekki
að fyrirmælum, var handtekinn í
miðbænum og vistaður í fangaklefa.
Lögreglan hafði eftirlit sama
kvöld með meirihluta skemmti-
staða í miðbæ Reykjavíkur. Að-
gættu óeinkennisklæddir lögreglu-
þjónar hvort dyraverðir væru þar
að störfum án réttinda og hvort
gestir væru undir lögaldri, að sögn
Jóhanns Karls Þórissonar, yfirlög-
regluþjóns lögreglunnar á höfuð-
borgarsvæðinu. Varð lögregla vör
við tvo gesti undir lögaldri á einum
skemmtistað, sem einnig var með
dyraverði án tilskilinna réttinda.
Síðarnefnda málið hefur verið sent
til ákærusviðs sem tekur ákvörðun
um hvort ákæra verður gefin út.
Þá tilkynnti lögregla að tvö ung-
menni undir lögaldri hefðu verið
stödd á krá á föstudagskvöld. Að
sinni verður ekki gefin út ákæra, en
ef staðurinn heldur áfram að brjóta
þessar reglur, skoðar lögreglan að
loka honum yfir helgi. „Við höfum
áður gripið til þess,“ sagði Jóhann
Karl í samtali við mbl.is í gær.
Að sögn Jóhanns Karls vill
lögreglan nú taka til hendinni í
þessum málaflokki, ekki síst vegna
vaxandi ofbeldis í miðborginni.
„Við erum reglulega með óeinkennt
eftirlit, það verður engin breyting
þar á.“
Morgunblaðið/Ari
Viðbúnaður Lögreglan hafði eftirlit
með meirihluta skemmtistaða.
Jólatrjáasala Flugbjörgunarsveitar-
innar Reykjavíkur byrjar vel í ár og
stefnir í að trén klárist fyrr en síðustu
tvö ár, þegar þau hafa þó klárast ein-
hverjum dögum fyrir jól.
„Við höfum alltaf átt okkar
fastakúnnahóp en nú er náttúrlega
komin töluverð byggð þarna í kring,“
segir Magnús Viðar Sigurðsson, for-
maður sveitarinnar, um hina árlegu
jólatrjáasölu.
„Við reynum eftir mestu getu að
bæta við trjám og erum að reyna það í
ár,“ segir Magnús en bæði eru seld ís-
lensk og dönsk tré. Þá var ákveðið að
brjóta upp á hefðina í ár og selja ekki
aðeins trén á Flugvallarvegi, heldur
einnig á Jóladögum Árbæjarsafnsins
um helgar.
Þar voru fulltrúar sveitarinnar, vel
til fara, að selja tré í gær ásamt hinum
hressustu jólasveinum.
lEftirspurn er meiri en síðustu ár hjá
Flugbjörgunarsveitinni Reykjavík
Bætavið trjám
Morgunblaðið/Óttar
Sveinn Flugbjörgunarsveitin Reykjavík selur trén á Árbæjarsafninu í ár.