Morgunblaðið - 12.12.2022, Síða 21

Morgunblaðið - 12.12.2022, Síða 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. DESEMBER 2022 ✝ Aðalheiður Björnsdóttir fæddist í Reykjavík þann 28. september 1934. Foreldrar hennar voru Björn Jónsson, vélvirkja- meistari, f. 8. okt. 1905, d. 23. jan. 1981, og Anna Lilja Jónsson, fædd Jen- sen, f. 15. júní 1905, d. 28. maí 1975. Að- alheiður var í miðju systkina- hópsins en þau voru fimm tals- ins. Elst var Guðrún Ester, f. 1928, d. 2000, Eva Sigríður, f. 1931, d. 2001, Hrafnhildur Steingerður, f. 1940, d. 2016, og Björn Haraldur, f. 1946, d. 2012. Þann 6. maí 1961 gekk Að- alheiður að eiga Ingvar Stefán Kristjánsson frá Arnarnúpi, f. 20. mars 1931, d. 4. mars 1979. Foreldrar hans voru Guðbjörg Kristjana Guðjónsdóttir og Kristján Guðmundsson búfræð- ingur, bændur á Arnarnúpi í Dýrafirði. Synir Aðalheiðar og Ingvars Stefáns eru Brynjar, framkvæmdastjóri, f. 1961, dótt- ir Brynjars er Guðrún Birna, gift Katrínu Hermannsdóttur, börn hennar eru Elvar Gauti, Díana og Kristján Ingi, Ingvar, fram- kvæmdastjóri, f. 1966, synir hans eru Stefán Ás og Jón Goði, kvæntur Kristínu Stef- ánsdóttur, börn hennar eru Þóra Kristín og Kári. Reynir, fram- kvæmdastjóri, f. 1972, kvæntur Þóru Björk Waltersdóttur, börn þeirra eru Aðalheiður Esther og Dagur Fannar, Reynir átti fyrir Daníel Stefán. Aðalheiður ólst upp í Reykja- vík, fór um tvítugt til náms í Hússtjórnarskólann í Sorö í Danmörku. Aðalheiður vann ýmis störf, s.s. verslunarstjóri í Pennanum en síðustu árin hjá Lífeyrissjóði sjómanna og Gildi. Hún starfaði einnig við sjálf- boðaliðastörf í mörg ár sam- hliða annarri vinnu í Grensás- kirkju og var m.a. í stjórn kven- félagsins. Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 12. desem- ber 2022, klukkan 13. Það er með miklu þakklæti og söknuði sem mig langar að minn- ast móður minnar. Aðalheiður eða Heiða eins og hún var oftast köll- uð var hetja í mínum augum. 44 ára gömul varð hún ekkja með þrjá drengi á aldrinum 6 til 18 ára. Mamma og pabbi voru mjög sam- rýmd og samhent alla tíð. Í veik- indum pabba, sem barðist við krabbamein í mörg ár, var haft eftir honum að betri eiginkonu og móður sona sinna væri ekki hægt að hugsa sér. Ég er svo einlæg- lega sammála pabba. Hún er ein- stök fyrirmynd. Með lífsvilja og gleði að vopni sigraðist hún á hverri raun, alltaf stóð hún upp aftur þar til yfir lauk. Mamma hafði yndi af ömmu- börnunum og var alltaf tilbúin að gæta þeirra. Hún vann öll verk sín af alúð og sýndi ótrúlega þolin- mæði alla tíð. Hún hristi fram úr erminni stórveislur, hvort sem þær voru í fjölskyldunni eða í kirkjunni hennar. Það var aðdá- unarvert hversu fallegt heimili hún hélt og hvað hún nostraði við sumarhúsið á Laugarvatni sem hún og pabbi höfðu nánast lokið við að reisa þegar hann féll frá í blóma lífsins. Mamma gekk í öll verk, bar á bústaðinn, bakaði, hélt öllu hreinu og vann fullt starf vel fram á áttræðisaldur. Mamma var líka mikil listakona. Þegar henni fannst vanta myndir á veggina á heimilinu gerði hún sér lítið fyrir og málaði myndir sem sumar hanga uppi á veggjum á heimilum okkar bræðra nú. Hún saumaði út bæði veggmyndir og áklæði á stóla o.fl. Litið til baka er erfitt að skilja hvernig hún fór að þessu öllu. Allt var gert áreynslulaust og af þeirri þolinmæði sem einkenndi hana alla tíð. Mamma hafði ákveðnar skoð- anir en fór vel með þær. Það var henni mikilvægt að við bræðurnir ynnum fyrir okkur og yrðum sjálf- stæðir. Eftir að við vorum fluttir að heiman hafði hún t.d. skoðanir á því hver okkar ynni ákveðin verk fyrir hana, t.d. var ekki sama hver skipti um ljósaperu og hver sæi um tæknimálin og fjármálin. Við bræður brostum stundum að þessu en nú eru þetta dýrmætar minningar. Mamma var yfirleitt kát og hress. Hún tókst á við hverja áskorun af æðruleysi. Hún hafði gaman af því að ferðast bæði til útlanda hin síðari ár og í íslenskri náttúru. Þær voru ófáar útileg- urnar sem hún og pabbi fóru með okkur bræðurna í gamla appels- ínugula tjaldinu. Seinna átti sum- arbústaðurinn hug hennar allan og hún naut þess að fara í þann sælureit og spila á spil eða yatzy. Meðan pabba naut við var spilað reglulega við vinahjón heima í Safamýrinni. Mamma var lífsglöð, hún fylgdist t.d. með öllum frétt- um og íþróttum fram á síðasta dag. Ég á eftir að sakna þín, elsku mamma mín, sakna þess að koma við í búðinni fyrir þig og spjalla um lífið og tilveruna. Það eru bara nokkrir mánuðir síðan þú ljómaðir í brúðkaupinu okkar Kristínar. Ég er svo þakklátur að fyrir að- eins nokkrum vikum fórum við tvö í ferð um Suðurlandið. Þér fannst haustlitirnir svo fallegir, þú naust ferðarinnar þó hún væri þér greinilega líkamlega erfið. Ég er svo þakklátur fyrir vega- nestið og lífið sem þú gafst okkur. Loksins ertu komin til pabba. Takk fyrir allt elsku mamma mín. Ingvar. Mamma, elsku mamma, man ég augun þín, í þeim las ég alla elskuna til mín. Mamma, elsku mamma, man ég þína hönd, bar hún mig og benti björt á dýrðarlönd. Mamma, elsku mamma, man ég brosið þitt; gengu hlýir geislar gegnum hjarta mitt. Mamma, elsku mamma, man ég lengst og best hjartað blíða, heita –- hjarta, er sakna’ ég mest. (Sumarliði Halldórsson) Móðir mín, Aðalheiður Björns- dóttir, lést á Landspítalanum í Fossvogi föstudaginn 25. nóvem- ber síðastliðinn eftir nokkurra daga sjúkrahúslegu. Hún varð 88 ára þann 28. september síðastlið- inn og hefur átt góða og langa ævi. Við áttum rúmlega 60 ára samleið, þar sem aldrei bar skugga á. Mamma hafði áhrif á alla í kring- um sig með sínu ljúfa og upp- byggilega viðmóti. Hún var sterk- ur persónuleiki sem tókst á við lífið af æðruleysi og bjartsýni. Hún kenndi mér að takast á við líf- ið af jákvæðni og með opnum huga og ekki dæma neinn af af- spurn heldur að gefa öllum tæki- færi. Stóra ástin í lífi mömmu var pabbi, sem hún giftist árið 1961. Sama ár fæddist ég, svo Ingvar árið 1966 og svo loks Reynir árið 1972. Mamma og pabbi voru ákaf- lega samhent og byggðu sér fal- legt heimili í Safamýri þar sem við bræður ólumst upp. Mamma var fyrirmyndarhúsmóðir og það var gestkvæmt í Safamýrinni og oft var tekið í spil. Mamma og pabbi ferðuðust mikið og oft á sumrin var farið í útilegur með góðum vinum. Seinna byggðu þau svo saman fallegan sumarbústað á Laugarvatni þar sem við eigum margar góðar minningar. Mamma var dugleg að taka dóttur mína með í bústaðinn þegar ég var upp- tekinn og tengdu þessar ferðir þær sterkum böndum. Mamma og pabbi fengu þó alltof stuttan tíma saman, því pabbi lést langt fyrir aldur fram, árið 1979, og stóð mamma sem klettur við hlið hans í hans veikindum. Það kom því í hlut mömmu að ala okkur bræður upp ein og koma til manns. Það gerði hún með miklum sóma eins og allt sem hún tók sér fyrir hend- ur. Elsku mamma, ég vil þakka þér fyrir allar gleðistundirnar og alla þá væntumþykju, þolinmæði og stuðning sem þú sýndir mér alla tíð. Minningin um þig mun ávallt lifa í huga mínum, minning um góða, umhyggjusama móður sem nú er horfin á brott. Brynjar Stefánsson. Elsku amma. Þær koma auð- veldlega, minningarnar upp í hug- ann frá þessum 38 árum sem við áttum saman, þú og ég. Safamýr- in, Laugarvatn, yatzy, jólin, Bingó-Bjössi, Með afa, peru- brjóstsykur og hlýr faðmurinn er aðeins brot af þeim mörgu minn- ingum sem ég á með þér. Ein af mínum fyrstu minning- um sem barn er með þér á jól- unum í Safamýrinni, þar sem allt gekk eins og smurð vél og eftir kúnstarinnar reglum. Ég horfði löngunaraugum inn í sparistofuna þar sem borðið hafði verið gert tilbúið löngu áður og jólatréð stóð svo tignarlega við stofugluggann. Þegar allt var tilbúið og átti að fara að hleypa okkur til borðs hófu jólaklukkurnar að hringja í út- varpinu klukkan sex og þá voru jólin komin, við máttum setjast til borðs. Hátíðleikinn og hefðirnar voru allar þínar og var ég svo ótrúlega heppin að fá jólasveininn fallega sem stóð við tréð að gjöf frá þér fyrir nokkrum árum. Hann mun halda áfram að minna mig á þig. Sumarbústaðarferðirn- ar í bústaðinn sem þið afi smíð- uðuð á Laugarvatni voru ófáar og var mitt helsta vígi í efri kojunni, vinstra megin þegar gengið var inn í herbergið, þar sem ég gat séð yfir allan bústaðinn og tekið út það sem fór fram í húsinu. Uppá- haldið mitt var þegar hestarnir komu að hliðinu á brúnni og ég stökk út til að klappa þeim, þegar ég lék mér við ána og þegar ég fékk að spila yatzy við þig. Það var eiginlega toppurinn á tilverunni. Þegar ég gisti í Safamýrinni missti ég aldrei mínútu af barna- tímanum. Þú vaktir mig sam- viskusamlega og ég skreið fram með koddann minn og sængina og horfði á Með afa. Seinna, þegar ég fór sjálf að búa, þá hringdi ég í þig eitt kvöldið, ég var nefnilega að fara að elda fiskibollur í dós í bleikri sósu eins og ég fékk svo oft hjá þér, og ég áttaði mig á því að ég hafði ekki hugmynd um hvern- ig ég átti að bera mig að. Þú leidd- ir mig í gegnum hvert skref af ferlinu í rólegheitunum og viti menn, þetta bragðaðist bara ágætlega. Þú hafðir nefnilega allt- af tíma fyrir mann, til að hlusta eða hjálpa mér við það sem ég var að gera. Sverrir minn og börnin okkar þrjú voru líka svo heppin að kynn- ast þér og mun ég halda áfram að segja þeim frá þér og þeim minn- ingum sem ég á um þig. Sigríður Kristín var til dæmis fljót að læra í hvaða skúffu súkkulaðimolarnir voru geymdir hjá þér. Hún gekk yfirleitt beint til verks og rétti út höndina og þú svo greiðlega réttir henni mola til að njóta meðan við spjölluðum saman í rólegheitun- um. En hvernig á maður að kveðja manneskju sem hefur verið part- ur af lífi manns frá fæðingu? Mað- ur getur ekki syrgt nema hafa elskað og ekkert okkar kemst í gegnum lífið án þess að kynnast sorginni en minningarnar ylja hjartanu og átt þú alltaf stað í mínu. Sjáumst seinna amma mín. Dagur er liðinn og komið er kveld. Kofann minn rökkrið hylur. Dreymandi sit ég við arineld. Úti er svartasti bylur. Bleikrauður geisli’ af brakandi glóð blandast við hljóðlát gítarsins ljóð. Ómarnir þagna, allt er svo hljótt. Eldurinn kulnar senn. Góða nótt. (Ólafur B. Guðmundsson) Þín Guðrún Birna. Aðalheiður Björnsdóttir✝ Benth U. Behr- end fæddist 17. febrúar 1943. Hann lést 26. nóvember 2022 á HSN. Foreldrar hans voru Simona Undall Behrend, f. 24.12. 1920, d. 21.4. 2000, og Gustav Undall Behrend, f. 5.9. 1912, d. 21.3. 1996. Benth var elstur fjögurra systkina. Þau eru María Elísabet Behrend, f. 8.11. 1945, Daníel Behrend, f. 19.12. 1949, og Tómas Behrend, f. 17.3. 1955. Eftirlifandi kona Benths er Alda Sigurbjörg Ferdinands- dóttir, f. 11.3. 1944. Foreldrar hennar eru Guðrún Ásgríms- dóttir, f. 14.8. 1917, d. 10.6. 1998, og Ferdinand Rósmundsson, f. 22.1. 1918, 14.10. 1997. Börn þeirra eru: 1) Ásgeir Þröstur, f. 22.5. 1965, d. 1.4. 1988. Sonur hans og Helgu Jónsdóttur er Jón Geir. 2) Þyrí Edda, f. 27.8. 1966. 3) Guðrún Elísabet, 8.12. 1967, maki 1 er Árni Ragnarsson, saman eiga þau Árna Bent. Árni Bent á eina dóttur, Guðrúnu Sif. Maki 2 er Hafsteinn Linnet. Sam- an eiga þau Loga Þröst og Guðrúnu Öldu. 4) Gústav Ferd- inand, 20.03. 1972, maki 1 er Steinunn Rósa Guðmundsdóttir, saman eiga þau Ásgeir Þröst, Sindra Má og Hrefnu Guðrúnu. Maki 2 er Annemie Milissen, saman eiga þau Emmu Lind og Finn Frey. Benth fæddist í Eyjafirði og ólst upp á Sjávar- bakka í fyrrverandi Arnarnes- hreppi þar sem hann gekk í barnaskóla. Árið 1963 gerðist hann fjósamaður á Hólum í Hjaltadal og kynntist þar Öldu. Þau gengu í hjónaband 12.12. 1964. Hófu þau svo búskap að Lóni í Viðvíkursveit í Skagafirði. Samhliða búskapnum vann Benth við ýmis önnur störf, sem at- vinnubílstjóri og lögreglumaður. Þau fluttu svo á Sauðárkrók þar sem hann vann áfram í lögregl- unni, eftir það sem vélamaður í fiskvinnsluhúsinu Skildi, og síðar meir í áhaldahúsi Sauðárkróks. Útförin fer fram frá Sauðár- krókskirkju í dag, 12. desember 2022, klukkan 13. Benth kunningi minn er allur. Benth var uppalinn við Eyjafjörð, að Sjávarbakka í Arnarneshreppi hinum forna. Þar vandist hann flestum störfum er þá viðgengust, bæði til lands og sjávar. Kunn- ingsskapur okkar hefur varað lengi, nánast frá því að hann kom í Skagafjörðinn árið 1963, þá ráðinn sem fjósamaður að skólabúinu að Hólum í Hjaltadal. Hann gekk þó í mörg almenn störf á búinu og þar á meðal að aka búsbílnum, sem þá var Chevrolet-vörubíll, og sjá um daglegt viðhald hans. Þeir munu hafa komið sama dag, um miðjan júlí, að Hólum, Benth og Haukur Jörundsson, ný- skipaður skólastjóri Bændaskól- ans. Á Hólum kynntist Bent Öldu sinni, sem löngum hefur reynst honum vel í hans veikindum hin síðar ár og ekki síst eftir að hann missti sjónina. Þau hjón voru gest- risin og tóku vel á móti þeim er að garði bar. Það var oft þröngt setið við eldhúsborðið á Skógargötunni og mál dagsins krufin. Benth var laghentur og vann hin ýmsu störf; var bóndi um ára- bil, bílstjóri, fiskvinnslumaður og fleira. Síðast var hann starfsmað- ur sveitarfélagsins. Um árabil var hann héraðslög- reglumaður og tímabundið afleys- ingamaður á áttunda áratugnum og allt fram yfir 1980. Bent var ró- lyndur, meðalmaður á hæð, þéttur á velli og gat verið þungur fyrir. Ekki varð ég þess var að hann væri ósanngjarn í garð annarra. Hann reyndist mér góður félagi. Benth fylgdist vel með mönn- um og málefnum allt fram á sein- asta dag. Öldu og fjölskyldunni votta ég samúð mína. Benth þakka ég góða viðkynningu og samstarfið um árabil. Farðu í friði félagi. Guðmundur Óli. Benth U. Behrend Hann lagði sig í bráða lífshættu við að bjarga Þórði Halldórssyni frá Dagverðará frá því að farast í sjóslysi. Ósyndur stökk hann í vonskuveðri að strönduðum báti þar sem Þórður hafði hnýtt sig fastan efst í frammastrið. Mastrið eitt stóð upp úr grimmu hafinu. Hann fiskaði manna mest og reri manna fastast. Röddin var hrjúf. Mér leist ekkert á manninn fyrst þegar ég kom sem unglingur til Ólafsvíkur. Ég heyrði margar hreystisögur af honum og áræði hans sem skipstjóra. Ég held að ég hafi beinlínis óttast hann. Mörgum árum seinna var bankað harkalega heima hjá mér. Ég flýtti mér til dyra og opnaði. Þar stóð Gvendur í Bug. Hann sagði fátt, aðeins þetta: „Siggi, mig vantar stýrimann í tvær vik- ur. Við förum út klukkan átta í fyrramálið.“ Hann beið ekki ✝ Guðmundur Kristján Krist- jónsson fæddist 11. ágúst 1933. Hann lést 12. nóvember 2022. Útför Guð- mundar Kristjáns fór fram 24. nóv- ember 2022. svars. Kvaddi bara og fór. Ég horfði á eftir honum ganga Brautarholtið og hugsaði með mér: því ekki? Ég var mættur hálfátta um morguninn. Gvend- ur í Bug var mættur. Hálftíma síðar sigldi Halldór Jónsson SH 217 úr höfn. Við tóku hreint ævintýralegar tvær vikur. Við vorum á rækju og lentum í einu og öðru. Einn daginn jókst vindurinn. Við Gvendur vorum sammála um að toga ögn lengur. Þegar við loksins hífðum slitnaði annar vír- inn. Það var ekki auðvelt viðfangs. Enginn krani, engin bóma. Unn- um okkur úr vandanum og sigld- um heim. Þetta er allt minnisstætt. Þó er mér ofar í minni hversu ranga mynd ég hafði af Gvendi í Bug. Vissulega virkaði hann sem harð- ur karl og erfiður. En var það alls ekki. Heldur þveröfugt. Ljúfur, fús til að miðla þekkingu sinni, ráðagóður og skemmtilegur. Guðmundur Kristján Krist- jónsson var góður sjómaður og eftirminnilegur. Sigurjón Magnús Egilsson. Guðmundur Kristján Kristjónsson Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÞORGEIR JÓNSSON, Kambsvegi 8, lést 1. desember á Vífilsstöðum. Útför hans fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn 14. desember klukkan 15. Dröfn Björgvinsdóttir Björk Þorgeirsdóttir Þorgrímur Toggi Björnsson Egill Þorgeirsson Fjalar Þorgeirsson Málfríður Erna Sigurðardóttir og barnabörn Minningarvefur á mbl.is Minningar og andlát Á minningar- og andlátsvef mbl.is getur þú lesið minningargreinar, fengið upplýsingar úr þjónustuskrá auk þess að fá greiðari aðgang að þeirri þjónustu sem Morgunblaðið hefur veitt í áratugi þegar andlát ber að höndum. Andláts-, útfarar- og þakkartilkynningar eru aðgengilegar öllum. www.mbl.is/andlát

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.