Morgunblaðið - 12.12.2022, Blaðsíða 22
Minningar
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. DESEMBER 2022
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Árskógum 4 Smíðastofa með leiðb. kl. 9-14. Boccia kl. 10. Handa
vinna kl. 12.30-16. Félagsvist kl. 12:45. Glervinnustofa kl. 13 - 16.
Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Allir velkomnir.
Sími 411-2600.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8:30-11:00.
Morgunleikfimi með Halldóru á RUV kl. 9:45-10:00. Ganga kl. 10:00.
Hádegismatur kl. 11:30-12:30.Tálgun með Valdóri kl. 12:30-15:30.
Félagsvist kl. 13. Volarekynning kl. 11:00-14:30. Síðdegiskaffi kl. 14:30-
15:30.
Garðabær 9.00 Pool-hópur í Jónshúsi 10.00 Ganga frá Jónshúsi
11.00 Stólajóga í Kirkjuhv. 12.30-15.40 Bridds 12.40 Bónusrúta frá
Jónsh. 13.00 Gönguhópur frá Smiðju 13.45-15.15 Kaffiveitingar í
Jónsh. 15.00 / 15.40 / 16.20 Vatnsleikf. í Sjálandssk. 16.30 Zumba Gold
í Kirkjuhv.
Gerðuberg Opin vinnustofa í Búkollulaut frá kl. 8:30, heitt á könnuni.
Kóræfing kl.13:00 – 15:00 Allir velkomnir
Gjábakki Opin handavinnustofa kl. 8.30 til 11.30. Bocciaæfing kl. 9 til
10.30. Postulínsmálun kl. 9 til 11.30. Jóga kl. 10.50 til 12.15. Canasta kl.
13.15 til 15. Myndlistasýning Kristínar Þorkelsdóttur kl. 14 til 16.
Söngvinir - æfing kl. 16.30 til 18.30.
Grafarvogskirkja Þriðjudaginn 13. des. verður opið hús kl. 13-15
fyrir eldri borgara. Ólafur Kristófersson kynnir bókina sína "Láttu ekki
svona" - les jólasögu úr henni. Ingibjörg Aldís sópran og Egill tenór
syngja tvö lög. Að opna húsinu loknu er boðið uppá kaffi og meðlæti.
Umsjón hefur Kristín Kristjánsdóttir djákni. Kyrrðarstund er kl. 12. Að
kyrrðarstund lokinni eru léttar veitingar gegn vægu gjaldi.
Gullsmári Handavinna fyrir og eftir hádegi. Bridge kl. 13:00,
aðalfundur bridgesdeildar Gullsmára verður 15/12 eftir spilin þann
dag. Jóga kl. 17:00. Félagsvist kl. 20:00.
Hraunsel Billjard kl. 8-16. Myndlistarklúbbur kl. 9:00. Stóla yoga kl.
10. Félagsvist kl. 13:00. Gaflarakórinn: Kl. 11:00.
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá 8:30-10:30. Heimsókn
leikskólabarna á Sunnuási kl. 10:00. Jóga með Ragnheiði Ýr kl. 10:15.
Minningahópur kl. 10:00. Betra jafnvægi námskeið kl. 10:45. Zumba
með Carynu kl. 13:00.Tálgun – opinn hópur kl. 13:00-16:00. Bridge
kl.13:00. Hádegismatur kl. 11:30 – 12:30, panta þarf fyrir hádegi
deginum áður.
Samfélagshúsið Vitatorgi Aðventukaffi & smákökur í setustofu
10:00 - Opin handverksstofa 09:00-12:00 - Leirmótun í smiðju kl:
09:00-13:00 - Bókabíllinn Höfðingingi verður á svæðinu frá kl: 13:10-
13:30- Boccia í setustofu kl: 13:15-14:00 - Opin handverksstofa kl:
13:00-15:00- JólatónarTónmenntaskóla Rkv. 15:00 & síðan er
síðdegiskaffi frá kl.14:30-15:30.
Seltjarnarnes Kaffikrókur á Skólabraut kl. 9.00. Billjard Selinu kl.
10.00. Jóga í salnum á Skólabraut kl. 11.00. Handavinna, föndur og
samvera í salnum á Skólabraut kl. 13.00. Vatnsleikfimi í sundlauginni
kl. 18.30. Á morgun þriðjudag verður pútt í inniaðstöðu Nesklúbbsins
á Austurströnd 5. Allir velkomnir.
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
.Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
.Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
.Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
.Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
.Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Ýmislegt
Vindskilti
Bílar
Mazda MX-30 rafmagnsbíll
6/2021 Sýningarbílar flestir eknir
undir 1000 km. 35,5 kWh rafhlaða.
Uppgefin drægni 200 km. 5 dyra.
Makoto typa með glertopplúgu og
öllum fáanlegum búnaði.
Er í ábyrgð. Eigum 4 liti á lager.
Hann er þinn fyrir aðeins
4.890.000,-
www.sparibill.is
Hátúni 6 A – sími 577 3344.
Opið kl. 10–18 virka daga.
Húsviðhald
Húsaviðgerðir
www.husco.is
Sími 555 1947
Gsm 894 0217
alltaf - alstaðar
mbl.is
✝
Richard Guð-
mundur Jón-
asson fæddist í
Vestmannaeyjum
7. janúar 1956.
Hann lést á Landa-
koti 1. desember
2022.
Foreldrar hans
eru Ursula Quade
Guðmundsson, f.
1931, og Jónas
Guðmundsson, f.
1928, d. 1998. Systkini eru Sig-
urbjörg Helena, f. 1951, Ómar,
f. 1953, d. 2014, og Jónas
Ewald, f. 1962, d. 1987. Eftirlif-
andi eiginkona Richards Guð-
mundar er Guðrún Egilsdóttir,
f. 27. nóvember 1944 í Reykja-
vík. Þau giftu sig 9. febrúar
2002.
Dætur Guðrúnar, sem Rich-
ard Guðmundur gekk í föð-
urstað, eru Hjördís, gift Ingva
Skjaldasyni, og Ingibjörg, gift
Þórarni H. Kristinssyni.
Richard Guðmundur ólst upp
í Vestmannaeyjum við leik og
störf. Hann fór
fljótlega að vinna
fyrir sér. Hann var
í Hlíðardalsskóla
1973 þegar gaus í
Eyjum og allt hans
fólk fór upp á land
og snéri ekki aftur.
Richard Guð-
mundur útskrifað-
ist frá Hótel- og
veitingaskólanum
1978 sem fram-
reiðslumaður og vann við það
framan af starfsævinni. Seinni
ár starfaði hann við hin ýmsu
störf hjá t.d. Sökkli og nú síðast
Axix. Hann barðist við krabba-
mein frá 2014 sem lagði hann
að lokum að velli.
Richard var mikill áhuga-
maður um knattspyrnu og var
hans lið ÍBV alla tíð. Hann var
félagi í Oddfellow frá árinu
2007.
Útför Richards Guðmundar
fer fram frá Árbæjarkirkju í
dag, 12. desember 2022, og
hefst kl. 13.
„Einstakur“ er orð sem notað er þegar
lýsa á því sem engu öðru er líkt, faðm-
lagi eða sólarlagi eða manni sem veitir
ástúð með brosi eða vinsemd.
„Einstakur“ lýsir fólki sem stjórnast af
rödd síns hjarta og hefur í huga hjörtu
annarra.
„Einstakur“ á við þá sem eru dáðir og
dýrmætir og hverra skarð verður aldrei
fyllt.
„Einstakur“ er orð sem best lýsir þér.
(Terri Fernandez)
Elsku drengurinn minn, megi
allir englar guðs vernda þig.
Þú veist það, ljúfur. „Love,
love you“ á enda veraldar.
Þín mamma,
Ursula Quade Guðmundsson.
Elsku Rikki minn. Það er ekki
oft sem ég lendi í því að vita ekki
hvað ég á að segja en í dag er sá
dagur. Því í dag kveð ég Rikka
frænda í síðasta sinn. Afmælis-
dagurinn minn var síðastliðinn
miðvikudag og leið hann eins og
aðrir afmælisdagar en var samt
öðruvísi því þennan dag fékk ég
ekki símtal frá Rikka frænda.
Frá því ég man eftir mér hef ég
fengið símtal frá Rikka mínum
sem ég er svo óendanlega þakklát
fyrir og minnir mig á mikilvægi
þess að njóta lífsins og vera þakk-
lát fyrir það sem ég á og hef.
Undanfarna daga hef ég hugsað
hvað ég eigi að segja og hvað ég
eigi ekki að segja hér en svo
komst ég að því að ég get aldrei
sagt eða skrifað allt sem ég hef að
segja.
Elsku besti Rikki frændi, þú
varst og ert sá allra besti. Þú
varst ljúfur, góður, fyndinn,
skemmtilegur, glaður, stundum
þreyttur en alltaf sá allra besti,
sem eru orð sem koma upp í huga
mér. Endalausar minningar um
jólaböll í Þórskaffi, bílferðir í
drekunum, pylsuferðir á Bæjar-
ins bestu og Hressingarskálinn.
Allt þetta vekur góðar og
skemmtilegar minningar um
tíma með þér. Það var ekkert
sem þú gerðir ekki fyrir fólkið
þitt, hvort sem það var að skutla
systur þinni til Eskifjarðar, já við
höfum nú skemmt okkur yfir
þeirri sögu undanfarin ár, skipta
um höldur fyrir ömmu eða búa til
eitt stykki dúkkurúm fyrir litlu
frænku. Ég get haldið áfram
endalaust að tala um allar góðu
minningarnar frá því ég var barn,
unglingur og fullorðin kona.
Takk elsku besti frændi fyrir allt
sem þú gerðir fyrir mig og mína.
Ég veit að afi og bræður þínir
hafa tekið vel á móti þér og ef-
laust hafa orðið fagnaðarfundir.
Við Sonja systir munum passa
vel upp á ömmu og mömmu.
Elsku Gunna mín, Hjördís,
Ingibjörg og fjölskyldur, takk
fyrir að hugsa svona vel um
Rikka frænda, megi góður Guð
veita ykkur styrk og huggun.
Takk fyrir allt elsku frændi,
ást, kossar og í kvöld skálum við í
g og t þér til heiðurs.
Þín litla frænka,
Anna Lena.
Í dag kveð ég Rikka frænda
sem var í miklu uppáhaldi hjá
mér. Þegar ég fæddist þá var
Rikki nýorðinn 14 ára og þegar
hann fermdist þá hélt hann á mér
undir skírn. Það varð að sjálfsögu
til þess að ég var í uppáhaldi hjá
honum alla tíð.
Amma sagði um daginn að
Rikki hefði verið frumkvöðull því
að þegar hann var barn voru allar
hans buxur gauðrifnar á hnján-
um og amma var stöðugt að staga
í þær sem þá þótti nú ekki mjög
huggulegt. Í dag er þetta talin
hámóðins tíska og mjög töff og
þannig hefur Rikki frændi ætíð
verið á undan sinni samtíð.
Ég get tekið undir það sem Jó-
hannes Viðar, einn af bestum vin-
um hans Rikka skrifaði á Facebo-
ok, að minningar um Rikka eru
mjög ljúfar. Rikki var alltaf rosa-
lega ljúfur, góður og skemmtileg-
ur frændi.
Rikki var lærður þjónn og þeg-
ar hann kláraði námið fór hann í
útskriftarferð til New York og
þótti það á þessum tíma stór-
merkilegt að fara alla leið til
hennar Ameríku. Hann sagði
mér allt um þessa ferð, um há-
hýsin, Frelsisstyttuna og margt
fleira sem hann upplifði. Í þessari
ferð keypti hann kínverska
dúkku handa mér og á ég hana
ennþá.
Þegar ég kom til ömmu og afa
um helgar þá var Rikki alltaf sof-
andi fram að hádegi þar sem
hann vann allar helgar fram á
nótt. Ég beið eftir honum og við
fengum okkur ristað brauð,
steikt egg og rauðkál í hádegis-
mat sem amma að sjálfsögðu
matreiddi.
Rikki var mikill áhugamaður
um fótbolta og átti allar fótbolta-
bækur sem búið var að gefa út á
þessum tíma. Rikki var líka al-
gjör bílakarl og átti nokkra flotta
bíla. Ég man vel eftir rauða pall-
bílnum hans og bláa ameríska
kagganum þar sem þrír fullorðn-
ir gátu setið fram í og þótti mér
það stórmerkilegt. Ég man líka
eftir honum við að raða spari-
merkjum í bók sem mér fannst
merkilegt að fylgjast með.
Á aðfangadagskvöld hittist
alltaf stórfjölskyldan og það er
stutt síðan við frændsystkini vor-
um að rifja þetta upp og hlógum
mikið, því það var alltaf líf og fjör
þegar við hittumst. Rikki frændi
þurfti samt alltaf að fara um tíu-
leytið á aðfangadagskvöld til að
taka bensín á kaggann sinn.
Stuttu eftir að hann fór var jóla-
sveinn mættur í garðinn hjá afa
og ömmu. Þessi jólasveinn, sem
hét Hurðaskellir, lét öllum illum
látum, stökk niður af húsþakinu,
skellti hurðum og guð má vita
hvað hann gerði ekki. Ekki nóg
með það þá vissi hann allt um
okkur frændsystkinin og það
þótti okkur ótrúlegt. Það sem var
þó hápunktur jólahátíðarinnar
hjá mér var að fara á jólaball með
Rikka frænda í Þórscafe.
Talandi um að Rikki hafi verið
mjög ljúfur þá var dásamleg
stund þegar hann giftist Gunnu
sinni í Vídalínskirkju því hann
grét nánast alla athöfnina. Rikki
var svo heppinn að fá tvær dætur
í kaupbæti með Gunnu sinni.
Honum þótti mjög vænt um dæt-
ur sínar, dýrkaði barnabörnin og
var svo lukkulegur að hafa fengið
tvö langafabörn.
Elsku hjartans Rikki, takk
fyrir fjölmargar góðar stundir
sem við áttum og þessar minn-
ingar munu fylgja mér alla tíð.
Ég bið að heilsa afa, bræðrum
þínum og ég tala ekki um Gunnu
gömlu. Ég veit að allt þetta fólk
hefur tekið vel á móti þér.
Elsku Gunna, Hjördís, Ingi-
björg og fjölskyldur. Hugur minn
er hjá ykkur og ég sendi ykkur
mína dýpstu samúðarkveðjur.
Hvíl í friði elsku besti frændi.
Þín frænka,
Sonja Margrét.
Ég kynntist Rikka fyrir fimm
árum, þegar hann og Guðrún
fluttust til okkar hér á Sléttuvegi
15-17. Ekki löngu síðar vantaði
okkur formann í stjórn hús-
félagsins og þegar við leituðum til
Rikka um að taka að sér for-
mennsku sagði hann það strax al-
veg sjálfsagt. Frá því höfum við
unnið saman í stjórn húsfélags-
ins. Með okkur hefur verið ákaf-
lega góð samvinna – það var gott
að vinna með Rikka. Hann var
alltaf reiðubúinn til að taka sér
verkefni og stundum vann þau
sjálfur, enda handlaginn maður.
Þetta gerði Rikki þótt hann væri
allan þann tíma sem ég þekkti
hann að berjast við illvígt
krabbamein. Síðustu misserin
vorum við í stjórninni að undir-
búa viðgerðir og málningu á hús-
inu okkar að utan, sem er mikið
verk og dýrt. Við Rikki vorum
eiginlega búnir að sammælast
um að klára það verk og hætta
svo í stjórn húsfélagsins og leyfa
öðrum að taka við keflinu. Rikka
entist því miður ekki tími til að
ljúka því verki, en við sem eftir
sitjum munum leitast við að klára
það sem best við getum. Ég
þakka Rikka góða en stutta sam-
ferð og bið fyrir innilegar sam-
úðarkveðjur til Guðrúnar og fjöl-
skyldunnar.
F.h. húsfélags Sléttuvegs 15-
17,
Pétur Már Jónsson.
Hann Rikki okkar er fallinn
frá. Þótt fréttirnar hafi kannski
ekki komið á óvart gerðu þær það
samt að einhverju leyti. Hann var
búinn að berjast við krabbamein-
ið í mörg ár og búinn að vinna
nokkra áfangasigra og var alltaf
svo bjartsýnn á að fullnaðarsigur
væri í sjónmáli.
Rikki kom til vinnu hjá okkur
fyrir 13 árum ásamt níu félögum
sínum frá Sökkli þegar við
stækkuðum hópinn okkar. Hann
hafði um nokkurt skeið haldið ut-
an um lagerinn hjá Sökkli með
miklum myndarbrag. Þegar ljóst
var að umsvifin voru nokkru
minni svona rétt eftir hrun tók
hann að sér tölvustýrða vél sem
sér um alla niðursögun í fyrir-
tækinu. Það var eins og við
manninn mælt að aldrei hafði
fengist eins góð nýting á efni því
hjá Rikka var passað upp á
hverja spýtu. Og efni sem nýta
mátti síðar sett til hliðar á vísan
stað. Hann passaði líka upp á að
menn gengju almennilega um í
kringum hann og hafði sitt lag á
öllum hlutum. Það kom fljótt í
ljós að hann hafði áhuga á fé-
lagsmálum og hann tók því að sér
starfsmannafélagið og skipulagði
viðburði, utanlandsferðir og
fleira. Það var allt gert með mikl-
um sóma eins og Rikka var einum
lagið.
Það var svo fyrir átta árum að
Rikki lét okkur vita að vágest
hefði borið að garði sem var
krabbameinið. Þetta var töluvert
áfall því hann hafði misst bróður
sinn skömmu áður vegna þessa
óvelkomna gests. Hann var samt
frá fyrstu stundu ákveðinn í að
sigrast á þessu og lagði mikið á
sig í erfiðum meðferðum. Barátt-
an gekk upp og ofan en lengi vel
gekk hún fremur vel og átti hann
tímabil sem honum leið mjög vel
og eygði fullnaðarsigur. Það var
þó alltaf „blettur“ á myndum sem
vantaði herslumuninn að losna
sig við. Hann tókst á við blettinn
eins og kappleik og maður fékk
fréttir af því hversu marga milli-
metra hann hafði náð að vinna
hann niður. Maður sér ekki
marga sem náð hafa að sýna jafn
mikla jákvæðni og bjartsýni við
svona erfiðar aðstæður. Hann
var við vinnu meira og minna allt
tímabilið. Hann var harður af sér
og mætti til vinnu ef hann gat
gengið. Það var svo núna síðsum-
ars sem aftur fór að síga á ógæfu-
hliðina og við tóku lengri dvalir á
sjúkrahúsi. Alltaf þegar maður
talaði við hann var hann þó alveg
að ná tökum á þessu og lét bjart-
sýni og jákvæðni aldrei frá sér.
Minning okkar um þennan sóma-
mann mun markast af þessum
mikilvægu eiginleikum sem hann
sýndi þegar á móti blés.
Við vottum Gunnu, Úrsúlu,
börnum, barnabörnum og öðrum
aðstandendum okkar dýpstu
samúð.
Kveðja frá samstarfsfólki hjá
Axis,
Eyjólfur Eyjólfsson.
Richard
Guðmundur
Jónasson
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar endurgjaldslaust
alla útgáfudaga.
Óheimilt er að taka efni úr
minningargreinum til birt-
ingar í öðrum miðlum nema
að fengnu samþykki.
Skil | Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Smellt á Morgunblaðs-
lógóið í hægra horninu efst og við-
eigandi liður, „Senda inn minning-
argrein,“ valinn úr felligluggan-
um. Einnig er hægt að slá inn
slóðina www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar en
á hádegi tveimur virkum dögum
fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi). Þar
sem pláss er takmarkað getur
birting dregist, þó að grein berist
áður en skilafrestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem
birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt
að senda lengri grein. Lengri
greinar eru eingöngu birtar á
vefnum. Hægt er að senda ör-
stutta kveðju, HINSTU
KVEÐJU, 5-15 línur.
Formáli | Minningargreinum
fylgir formáli sem nánustu að-
standendur senda inn. Þar koma
fram upplýsingar um hvar og hve-
nær sá sem fjallað er um fæddist,
hvar og hvenær hann lést og loks
hvaðan og klukkan hvað útförin
fer fram.
Minningargreinar