Morgunblaðið - 15.12.2022, Blaðsíða 6
FRÉTTIR
Innlent6
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 2022
Gildi–lífeyrissjóður
Opinn sjóðfélaga- og fulltrúaráðsfundur verður
haldinn fimmtudaginn 15. desember kl. 17:00
á Grand Hótel Reykjavík.
Lífeyrissjóður www.gildi.is
Dagskrá
▪ Staða og starfsemi sjóðsins á árinu 2022
▪ Breytingar á samþykktum sjóðsins – staðan
▪ Breytingar á lögum um lífeyrissjóði um næstu áramót – kynning
Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta og kynna sér stöðu og rekstur sjóðsins.
Fundurinn fer fram á íslensku en boðið verður upp á enska túlkun á staðnum.
Stjórn Gildis-lífeyrissjóðs
Umhverfisstofnun telur að það
hljóti að vera hægt að leggja
greiðfæran og öruggan veg
sem auðvelt verði að þjónusta
á vetrum um Veiðileysuháls á
Ströndum í stað þess að ráðast
í þær miklu framkvæmdir sem
Vegagerðin áformar að ráðast í.
Kemur þetta fram í umsögn um
umhverfisskýrslu Vegagerðar-
innar vegna nýs og endurbætts
vegar úr Bjarnarfirði í Reykjar-
fjörð á leiðinni að Gjögri.
Umhverfisstofnun telur helstu
áhrif framkvæmdarinnar vera
miklar skeringar og fyllingar,
sérstaklega á Veiðileysuhálsi og
með ströndinni í Reykjarfirði, en
þær geti auðveldlega orðið lýti í
landinu þar sem erfitt sé að að-
laga svo miklar skeringar. Bendir
Umhverfisstofnun á veglínu 602
sem liggur neðar í hálsinum en
framkvæmdir þar yrðu ekki jafn
mikil inngrip í landslagið og
vegur ofar í hálsinum. Að vísu sé
það heldur lengri leið en aðalval-
kostur Vegagerðarinnar.
Umhverfisstofnun telur að
stundum sé freistast til að leggja
nýja vegi í eða sem næst vegstæði
eldri vega. Sú virðist raunin í
þessu tilviki. Telur Umhverfis-
stofnun að svo umfangsmiklar
framkvæmdir séu í ósamræmi
við önnur mannvirki og byggð á
þessu svæði.
Veiðileysuháls er helsti tálminn
á leiðinni norður Strandir, úr
Bjarnarfirði og að Gjögri. Þar
liggur vegurinn í 246 metra hæð.
Mikill snjór safnast upp á vegin-
um og umferðaröryggi er lítið.
Þess vegna hefur Vegagerðin ekki
talið forsvaranlegt að þjónusta
hann að vetrarlagi. helgi@mbl.is
lVegur á Veiðileysuhálsi yrði lýti
Umhverfisstofnun
vill fara aðra leið
málastjórn ogmikil skammsýni. Þetta
er allt á bullandi dráttarvöxtum. Það
mundi borga sig að hreinsa upp þessa
biðlista og nota til þess allt heilbrigð-
iskerfið eins og heilbrigðisráðherra
segir, þótt það kostaði tímabundinn
halla. Sú ráðstöfun mundi borga sig
sjálf. Nú eru rúmlega fjórir á vinnu-
markaði fyrir hvern einn á eftirlaun-
um. Fólki á eftirlaunum, 65 ára og
eldri, mun fjölga um 30% til ársins
2030. Ef við komumst ekki fram fyrir
þetta núna þá er þetta tapað stríð. Við
verðum ekki betur sett að takast á
við þetta eftir 2030,“ segir Sigurður.
Aðgerðir á Landspítalanum
Í svari hagdeildar Landspítalans
kemur fram upplýsingarnar séu um
meðalraunkostnað samkvæmt kostn-
aðarkerfi spítalans aðmeðaltali á lið-
skiptaaðgerð á hné og liðskiptiaðgerð
ámjöðm á tímabilinu janúar-septem-
ber 2022.
„Í báðum tilvikum er um að ræða
aðgerðir af biðlista (ekki bráðaað-
gerð, s.s. aðgerð vegna beinbrots) þar
sem ekki var um íþyngjandi auka-
sjúkdóma að ræða og/eða fylgikvilla
í aðgerð eða legu. Einnig er um að
ræða í báðum tilvikum svokallaða
fyrstu aðgerð (þ.e. ekki endurtekna
aðgerð þar sem verið er að skipta um
gervilið),“ segir í svari Landspítalans.
Upplýsingar um efnaskiptaaðgerð
á Landspítala eru um aðgerð frá ár-
inu 2021 á verðlagi 2022. „Ástæðan
er fáar slíkar aðgerðir í ár. Um er að
ræðameðalkostnað, óháð tegund að-
gerðar, þ.e. hvort um magaermi eða
magahjáveitu er að ræða. Hér er gef-
inn upp kostnaður bæði með innlögn
á legudeild og aðgerð framkvæmd á
dagdeild. Í seinna tilvikinu er alltaf
dvöl á sjúkrahóteli í kjölfarið en hún
er greidd af sjúklingi og ekki innifalin
í kostnaðartölum spítalans,“ segir í
svari Landspítalans.
Biðlistar eftir algengum aðgerð-
um eins og t.d. liðskiptum og efna-
skiptaaðgerðum vegna offitu á rík-
isspítölunum hafa lengst á þessu ári.
Íslendingar eiga þess kost að fara í
slíka aðgerð á Klíníkinni og greiða
fyrir hana úr eigin vasa eða að fara
utan þegar bið eftir aðgerð er komin
yfir ákveðin mörk. Þess vegna var
leitað upplýsinga um kostnað vegna
liðskipta á hné, liðskipta á mjöðm
og efnaskiptaaðgerðar (magaermi)
hjá Klíníkinni, Landspítalanum og
Sjúkratryggingum Íslands vegna
slíkra aðgerða í Svíþjóð á sjúkra-
tryggðum Íslendingum. Ljóst er að
dýrara er að senda fólk utan en að
gera aðgerðirnar hér.
Óbreytt gjaldskrá frá 2017
Hjá Klíníkinni í Ármúla kostar
liðskiptaaðgerð á hné eða mjöðm al-
mennt 1.200.000 krónur að sögn Sig-
urðar Ingibergs Björnssonar fram-
kvæmdastjóra. Verðið getur farið í
1.250.000 krónur, krefjist aðgerðin
tiltekins aukabúnaðar. Innifalin er
ein nótt á legudeild. Aukanótt kostar
50.000 krónur.
Efnaskiptaaðgerðir eins og maga-
ermi kosta 1.250.000 krónur. Innifalin
er ein nótt á legudeild. Aukanótt
kostar 50.000 krónur. Þessi verðskrá
hjá Klíníkinni hefur verið óbreytt frá
árinu 2017.
„Það er komin pressa á að hækka
verðskrána,“ segir Sigurður. Hann
segir að íhlutir sem notaðir eru
við þessar aðgerðir séu mjög dýrir.
Gerviliðir hafa hækkað mikið í verði
og hefti, sem notuð eru viðmagaermi-
aðgerð, kosti hundruð þúsunda króna.
Á bullandi dráttarvöxtum
Sigurður segir að biðlistar eftir
læknisaðgerðum séu þjóðfélaginu
dýrir. Það sé alltaf hagkvæmast að
lækna fólk strax, að ekki sé talað
um líðan sjúklinganna. „Ef fólk bíð-
ur lengi eftir aðgerð þá getur það
fengið fylgikvilla, það dettur út af
vinnumarkaði, borgar ekki skatta og
getur þurft að fara á örorkubætur. Sá
einstaklingur kemst ekkert endilega
aftur inn á vinnumarkaðinn þar sem
hann fór út af honum. Endurhæfing
verður líka miklu erfiðari eftir langa
bið. Ríkið kemst ekki uppmeð annað
en að borga þetta fyrir rest. Það eru
engin efnisleg rök fyrir því að hafa
heilbrigðiskerfið í þessu ástandi. Fyr-
ir það fyrsta þá er þaðmjög léleg fjár-
Samkvæmt verðskrá á heimasíðu
Landspítalans er dvalarkostnaður
fyrir sjúklinga á Sjúkrahótelinu 1.554
krónur á sólarhring en 5.533 krónur
fyrir aðstandendur. Ósjúkratryggðir
einstaklingar greiða 34.089 krónur á
sólarhring fyrir dvöl miðað við einn
gest í herbergi og 40.577 krónur á sól-
arhring ef tveir gestir eru í herbergi.
Innifalið er fullt fæði sem eldað er á
staðnum.
Aðgerðir gerðar í Svíþjóð
Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) voru
spurðar um hver kostnaður þeirra
væri vegna liðskipta á hné, liðskipta á
mjöðm og efnaskiptaaðgerðar (maga-
ermi) annars vegar á ríkisspítala á
Íslandi og hins vegar ef aðgerðin er
gerð í Svíþjóð. SÍ benti Morgunblað-
inu á að leita upplýsinga um kostnað
hjá spítölunum hér á landi en sendi
upplýsingar um meðaltalskostnað
á hverja aðgerð í Svíþjóð miðað við
gefnar forsendur. Munur á flugfar-
gjöldum skýrist af því að heimferð
hjá þeim sem fara í liðskiptaaðgerð er
almennt í betra farrými þar sem þeir
sjúklingar þurfa að hafa rúmt um sig.
Heilbrigðisráðherra svaraði fyrir-
spurn Hönnu Katrínar Friðriksson
um kostnað við aðgerðir erlendis
30. júní síðastliðinn. Þar kom m.a.
fram að kostnaður vegna skipta á
mjaðmarlið erlendis árið 2021 hafi
með meðferðarkostnaði, ferðum og
uppihaldi verið tæplega 2,9 milljónir. Í
svari Sjúkratrygginga nú kemur fram
að kostnaður vegna slíkrar aðgerð-
ar í Svíþjóð sé tæplega 2,5 milljónir.
Sjúkratryggingar voru spurðar hvort
þessi kostnaður hefði lækkað?
Kostnaður ekki orðinn lægri
Svo er ekki og skýra Sjúkra-
tryggingar muninn þannig: „Í svar-
inu til Alþingis er gefinn upp heildar-
kostnaður vegna ákveðins fjölda
aðgerða. Hvað liðskipti varðar þá
eru þar inni einnig einstaka aðgerðir
sem fóru fram í Danmörku og þær eru
stundum heldur kostnaðarsamari.
Þegar gefinn er upp heildarkostnað-
ur ákveðið margra aðgerða eru þar
einnig inni sérstaklega dýrar aðgerð-
ir, eins og getur orðið t.d. ef upp kem-
ur eitthvað óvænt sem veldur því að
meðferðartími erlendis verður lengi.”
Tölurnar semSÍ sendiMorgunblað-
inu voru hins vegar meðaltalstölur.
„Við teljum að það skýri þennanmun.
Við sjáum ekki að aðgerðir erlendis
séu almennt orðnar ódýrari, en geng-
issveiflur hafa þó vissulega einhver
áhrif í báðar áttir.”
lKostnaður við liðskipti á hné, mjöðm ogmagaermi á ríkisspítala, einkaspítala og í SvíþjóðlLangir
biðlistar á ÍslandilLéleg fjármálastjórn að vinna ekki biðlistana hratt upp, segir framkvæmdastjóri
Dýrara að gera aðgerðir erlendis
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
1.846
2.495
1.162
546
1.300
695
1.800
162
1.000
Samanburður á heildarkostnaði við
efna- og liðskiptaaðgerðir
Þúsundir kr.
Heimild: Klíníkin, Landspítali og Sjúkratryggingar Íslands
Liðskipti
hné
Liðskipti
mjöðm
Efnaskipta-
aðgerð
Innlögn í eina nótt, aukanótt
kostar 50 þús. kr.
Með innlögn
Á dagdeild, sjúkrahótel á
kostnað sjúlkings
Meðferðarkostnaður
Fargjöld og dagpeningar
sjúlkings og fylgdarmanns
1.200 1.200 1.250
1.099
1.222
1.315
Liðskipti
hné
Liðskipti
mjöðm
Efnaskipta-
aðgerð
Liðskipti
hné
Liðskipti
mjöðm
Efnaskipta-
aðgerð
Klíníkin Landspítali Svíþjóð
983
Morgunblaðið/Ásdís
Liðskipti á hné Þessi gerviliður var settur nýlega í hné á sjúkrahúsinu á
Akranesi. Biðlistar hér hafa lengst og fleiri vilja fara utan í aðgerð.