Morgunblaðið - 15.12.2022, Blaðsíða 57
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Subway-deildin:
Meistaravellir: KR – Tindastóll ............. 18.15
Keflavík: Keflavík – ÍR............................. 19.15
Egilsstaðir: Höttur – Breiðablik ............ 19.15
Þorlákshöfn: Þór Þ. – Stjarnan............. 20.15
1. deild karla:
Álftanes: Álftanes – Ármann ................. 19.15
HANDKNATTLEIKUR
Bikarkeppni karla, 16-liða úrslit:
Safamýri: Víkingur – Haukar ............... 18.30
Eyjar: ÍBV 2 – Fram...................................... 19
Kaplakriki: FH – Stjarnan..................... 19.30
Kórinn: HK – Afturelding...................... 19.30
Subway-deild kvenna
Breiðablik – ÍR ......................................... 91:77
Fjölnir – Valur ........................................ 63:122
Grindavík – Keflavík ............................... 78:89
Njarðvík – Haukar................................ (32:36)
Leiknum var ólokið þegar blaðið fór í prentun.
Staðan fyrir leik Njarðvikur og Hauka:
Keflavík 13 12 1 1052:865 24
Haukar 12 10 2 960:772 20
Valur 13 10 3 1048:891 20
Njarðvík 12 8 4 983:918 16
Grindavík 13 4 9 978:1007 8
Fjölnir 13 4 9 934:1043 8
Breiðablik 13 3 10 852:1059 6
ÍR 13 0 13 818:1070 0
Meistaradeild FIBA
Rytas Vilnius – Bnei Herzliya......... 90:101
Elvar Már Friðriksson skoraði 22 stig fyrir
Rytas, átti eina stoðsendingu og tók eitt frá-
kast á 26 mínútum.
NBA-deildin
Philadelphia – Sacramento ............... 123:103
Milwaukee – Golden State................... 128:111
Houston – Phoenix ................................. 111:97
Utah – New Orleans............................. 121:100
LA Lakers – Boston ............................. 118:122
ÍÞRÓTTIR 57
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 2022
Ég hef líkt og flestir aðrir hrifist
mjög af Marokkó á HM karla í
fótbolta í Katar. Hvernig er annað
hægt?
Marokkóska liðið hefur minnt
mann rækilega á að ekki er öll
von úti þegar kemur að rómantík
í fótbolta.
Félagsliðabolti semmaður
fylgist mestmeð er heldur fyrir-
sjáanlegur orðinn þar sem ríkustu
liðin vinna iðulega deildirnar og
Meistaradeild Evrópu.
Í fótboltaminnist maður ótrúlegs
sigurs Leicester City í ensku
úrvalsdeildinni árið 2016.
Í fyrra skaut Lille risaliði PSG ref
fyrir rass í frönsku deildinni.
Þar á undan hafði Grikkland
unniðmagnaðan sigur á EM 2004.
Á meðal annarra óvæntra sigra
hjá landsliðummætti nefna Tahítí
í Eyjaálfubikarnum árið 2012 og
Sambíu í Afríkukeppninni sama ár.
Síðan þá hefur lítið verið um
óvænta sigurvegara í keppnum í
landsliðsfótbolta.
Marokkó hefur haldið slíkum
draumi allra þeirra sem eru veikir
fyrir lítilmagnanum á lofti.
Ríkjandi heimsmeistarar
Frakka náðu loks að stöðva
Marokkóa í undanúrslitunum í
gærkvöld og tryggðu sér sæti í
úrslitaleiknum gegnArgentínu á
sunnudaginn kemur.
Marokkóska liðið hefur svo
sannarlega sýnt að ekkert lið á
sigur vísan gegn því þar sem frá-
bært skipulag,magnþrungin bar-
átta og óviðjafnanleg samheldni
hefur fleytt liðinu þetta langt.
Ég vona aðMarokkó vinni í það
minnsta til bronsverðlaunanna á
þessu heimsmeistaramóti með
því að leggja Króatana að velli á
laugardaginn.
BAKVÖRÐUR
Gunnar Egill
Daníelsson
gunnaregill@mbl.is
Góð upp-
hitun fyrir
200 metrana
lSnæfríður í 15. sæti á HMlBætti
eigið Íslandsmet tvívegis í gær
Sundkonan Snæfríður Sól Jór-
unnardóttir bætti eigið Íslandsmet
í 100 metra skriðsundi í tvígang
þegar hún synti í undanrásum og
svo undanúrslitum greinarinnar á
heimsmeistaramótinu í 25 metra
laug í Melbourne í Ástralíu í gær.
Í undanrásunum í gær synti
Snæfríður á 53,21 sekúndu og í
sextán manna undanúrslitunum
síðar um daginn synti hún svo á
53,19 sekúndum. Hafnaði Snæfríð-
ur að lokum í 15. sæti í greininni
eftir að hafa verið í 28. sæti styrk-
leikalistans í henni fyrir mót.
„Ég er mjög sátt. Þetta voru
fyrstu úrslit mín á heimsmeistara-
móti og fyrstu úrslitin í 100 metra
skriðsundi. Að komast í úrslit í
greininni á heimsmeistaramóti er
bara geggjað,“ sagði Snæfríður í
samtali við Morgunblaðið.
Hún bætti síðast eigið Íslands-
met í greininni fyrir tæpum
mánuði, sem þá var 53,75 sekúndur.
Spurð hvort Snæfríður hafi náð
markmiðum sínum í 100 metra
skriðsundi á mótinu sagði hún:
„Ég var náttúrlega búin að bæta
Íslandsmetið fyrir nokkrum vikum
þannig að ég kom inn í þetta mót
með það að markmiði að synda
jafn hratt og það. En svo bætti ég
mig mjög vel þannig að það var
gaman.“
Tábrotnaði í apríl
Eins og sjá má hafa bætingar
Snæfríðar verið miklar og stöðugar
að undanförnu. Hver er lykillinn að
þessum framförum hennar?
„Ég held að það sé auðvitað
það að æfingarnar ganga vel. Ég
tábrotnaði núna í apríl og það tók
svolítinn tíma að komast yfir það
af því að ég gat ekkert synt lengi.
Vorið hjá mér var svolítið „off“.
Þetta var eitthvað sem átti sér
stað og ég gat ekki gert eða sagt
neitt við því. Svo er það sem skilaði
sér ekki í vor kannski að skila
sér núna. Það er frábært,“ sagði
Snæfríður.
Hún bætti því við að hún hefði
einfaldlega mætt enn ákveðnari
til æfinga eftir að hafa jafnað sig á
tábrotinu.
„Þetta tók svolítið á, líka andlega,
þannig að það að vera komin yfir
það og að æfingarnar séu að skila
sér er geggjað.“
Á bestu greinina eftir
Snæfríður á eftir að keppa í einni
grein til viðbótar á HM í Ástralíu,
200 metra skriðsundi. Það gerir
hún næstkomandi sunnudag og
hlakkar mikið til, enda segir Snæ-
fríður það ljóst að sú grein sé sín
sterkasta.
„Ég er náttúrlega meiri 200
metra manneskja, 200 metra skrið-
sund hefur alltaf verið besta grein-
in mín. Æfingarnar mínar eru mest
með áherslu á 200 metra þannig að
100 metrarnir eru eiginlega bara
góð upphitun. Þetta lítur allavega
mjög vel út fyrir 200 metrana.“
Íslandsmet Snæfríðar í 200
metra skriðsundi er einnig tæplega
mánaðargamalt, 1:55,60 mínútur,
og kvaðst hún staðráðin í að gera
enn betur í 200 metrunum á
sunnudag en í 100 metrunum. „Já,
ég hlakka mjög mikið til.“ Hún er
í 17. sæti styrkleikalistans í 200
metra skriðsundi.
Markmið að komast til Japans
Snæfríður er 22 ára gömul og
á því framtíðina sannarlega fyrir
sér. Því lék blaðamanni forvitni
á að vita hver framtíðarmarkmið
hennar væru.
„Ég reyni að hugsa ekki of langt
inn í framtíðina, reyni að taka eitt
skref í einu. Það virkar allavega
best fyrir mig.
Á næsta tímabili er HM í Fuku-
oka í Japan þannig að það er nátt-
úrlega stórt markmið að komast
þangað. Ég fer að hugsa um það
eftir jól,“ sagði Snæfríður að lokum
í samtali við Morgunblaðið.
Anton á tvær greinar eftir
Ásamt Snæfríði tekur Anton
Sveinn McKee þátt á HM í Ástralíu
fyrir Íslands hönd og hefur lokið
keppni í einni grein en á tvær eftir.
Anton keppti í undanrásum í
100 metra bringusundi á mótinu
í gær. Hann varð í 18. sæti á 58,01
sekúndu og náði því ekki að kom-
ast í sextán manna undanúrslitin.
Íslandsmet hans í greininni er
56,30 sekúndur.
Aðalgrein Antons er 200 metra
bringusund þar sem hann er sjö-
undi á styrkleikalistanum fyrir
mótið á tímanum 2:03,54 mínútur.
Íslandsmet Antons í greininni er
2:01,65 mínútur og keppir hann í
henni á morgun, föstudaginn 16.
desember.
Loks tekur Anton þátt í 50 metra
bringusundi, sem er nokkurs konar
aukagrein hjá honum, en fyrir mót
er hann í 27. sæti styrkleikalistans
á tímanum 26,91 sekúnda. Íslands-
met Antons í greininni er 26,14
sekúndur og keppir hann í henni
laugardaginn 17. desember.
HM Í SUNDI
Gunnar Egill Daníelsson
gunnaregill@mbl.is
Ljósmynd/SSÍ
HM Snæfríður Sól Jórunnardóttir var hæstánægð með árangur sinn í gær
en stefnir á að gera enn betur í 200 metra skriðsundi á sunnudaginn.
að mótmæla þeirri staðreynd að
Lionel Messi sé einn allra besti
knattspyrnumaður heims, ef ekki
sá allra besti. Enn halda þó margir
því fram að Messi sé ekki einu
sinni besti leikmaður Argentínu frá
upphafi, heldur hafi Diego Maradona
verið betri. Þeir benda gjarnan á að
Maradona hafi orðið heimsmeistari
árið 1986, en Messi hefur enn ekki
náð þeim áfanga með landsliði sínu.
Messi mátti þola tap með Argent-
ínu í úrslitaleik HM í Brasilíu 2014,
gegn Þýskalandi, í eina úrslitaleik
kappans til þessa.
Þrátt fyrir það hefur Messi
sjö sinnum hlotið hinn eftirsótta
Gullknött, sem viðurkenningu fyrir
að vera besti leikmaður heims. Þá
hefur hann unnið Meistaradeildina
sjö sinnum, orðið landsmeistari ell-
efu sinnum og Suður-Ameríkumeist-
ari með Argentínu einu sinni.
Maradona varð aldrei Evrópumeist-
ari og aðeins þrisvar landsmeistari
með félagsliði. Þá hefur Messi skorað
meira en 700 mörk með félagsliði,
gegn rúmlega 300 hjá Maradona.
Messi er markahæsti leikmaður-
inn í sögu argentínska landsliðsins
og Barcelona. Verði Argentína
heimsmeistari á sunnudaginn er
orðið býsna erfitt að færa rök fyrir
því að Maradona hafi verið betri.
Það má svo deila um hvort Pelé
eða Cristiano Ronaldo voru/séu
betri en Messi, en það er efni í aðra
grein síðar. Ljóst er að Messi ætlar
sér að kveðja stærsta sviðið með
heimsmeistaratitli og sem einn allra
besti knattspyrnumaður allra tíma.
Lionel Messi ætlar að kveðja stærsta
sviðið með heimsmeistaratitlinum
lHefur sjaldan verið betrilÚrslitaleikurinn verður síðasti leikurinn hans á HM
Galdramaðurinn Lionel Messi varð
á þriðjudag elsti leikmaðurinn til að
skora fimm mörk á einu heimsmeist-
aramóti í fótbolta, en hann kom
Argentínu á bragðið í sannfærandi
3:0-sigri á Króatíu í undanúrslitun-
um. Þá lagði hann upp þriðja markið
á Julián Álvarez með stórkostlegum
hætti og lék glæsilega, líkt og hann
hefur gert allt heimsmeistaramótið.
Messi er ekki aðeins kominn með
fimm mörk, heldur hefur hann lagt
upp þrjú til viðbótar á mótinu í ár. Þá
hefur hann skorað í 16-liða úrslitum,
8-liða úrslitum og nú undanúrslitum.
Messi er orðinn 35 ára, en hann
hefur sjaldan verið betri.
Fjölmörg met
Leikmaðurinn tilkynnti eftir leik-
inn við Króatíu að úrslitaleikurinn
á sunnudaginn kemur yrði síðasti
leikurinn hans á heimsmeistaramóti.
Verður það 26. leikur Argentínu-
mannsins á HM og verður hann
þá einn leikjahæstur á lokamótinu,
en sem stendur deilir hann metinu
með hinum þýska Lothar Matthäus.
Markið gegn Króatíu var ellefta
mark leikmannsins á HM og er hann
markahæstur í sögu Argentínu á
heimsmeistaramótinu. Þá er hann sá
eini sem hefur afrekað það að bæði
skora og leggja upp í sama leiknum á
lokamóti HM í fjórgang.
Það er orðið erfiðara og erfiðara
HM Í KATAR
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
AFP/Juan Mabromata
Bestur Argentínski snillingurinn Lionel Messi ætlar að kveðja stærsta
sviðið sem heimsmeistari og einn besti knattspyrnumaður allra tíma.