Morgunblaðið - 15.12.2022, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 15.12.2022, Blaðsíða 26
FRÉTTIR Innlent26 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 2022 ný prentun komin í verslanir! Fá hús á landinu eru jafn fallega skreytt fyrir jólin og Austurvegur 29 á Selfossi. Þar hafa hjónin Gísli Þór Guðmundsson og Sólveig Ósk Hall- grímsdóttir búið síðan um aldamót og önnur jólin sín í húsinu settu þau þar á fallegar ljósaskreytingar. Slíkt hafa þau gert æ síðan svo skemmti- leg hefð hefur myndast. Seríur, kransar og krónur með hvítum og rauðum lit prýða húsið sem stendur við fjölfarna aðalgötu bæjarins. Skreytingar eru við glugga, á svöl- um og í þakskeggi og einnig á greni- trjám framan við húsið. Kransar eru víða á veggjum hússins og ljósaslör hangir úr þakskegginu. Ferðamenn stoppa til að skoða „Þessar lýsing eru skemmti- leg upplyfting í skammdeginu,” segir Sólveig sem í húsinu starf- rækir hárgreiðslustofuna Mensý. Skreytingarnar voru settar upp 15. nóvember, en á Selfossi eru það samantekin ráð sveitarfélagsins og þeirra sem standa að verslun og þjónustu þar að setja bæinn í jólabúning nokkru áður en nóvem- bermánuður er úti. „Jólaljósin okkar eru alltaf á vísum stað og tilbúin frá fyrra ári. Að setja þau upp er um það bil dagsverk og engin vandamál,” segir Sólveig. „Já, við sjáum að margir stoppa hér fyrir utan húsið til að líta á skreytingarnar og sumir taka myndir. Stundum stoppa meira að segja rútur með erlenda ferðamenn sem koma hingað heim að húsinu til að skoða. Þetta er bara skemmti- legt.“ Ekkert einsdæmi á Selfossi Þau Sólveig Ósk og Gísli Þór hafa fengið ýmsar viðurkenningar fyrir jólaskreytingar sínar. Þær hafa með- al annars komið frá Sveitarfélaginu Árborg en á þess vegum er bryddað upp á ýmsu skemmtilegu í að- draganda jóla. Þar má meðal annars nefna fallegar skreytingar víða á Selfossi, svo sem á Ölfusárbrúnni, og jólaljós líkt og sjást á Austurvegi 29 eru ekkert einsdæmi í bænum. lFagurlega er skreytt í jólabænumlFerðamenn stoppa til þess að skoða höllina viðAusturveg Jólahús við Austurveg á Selfossi Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Bæjarprýði Ljósahöllin vekur athygli allra sem leið eiga um bæinn og verður semævintýraborg að sjá þegar birtunni fer að bregða síðdegis. Morgunblaðið/Óttar Geirsson Alls konar Sólveig Ósk fyrir utan húsið fallega, þar sem allt er skreytt, meira að segja snjóskóflan semætti að koma í góð not nú þegar snjókomu er spáð. Við bjóðum uppá glæsilegar borgir allt árið í Evrópu. Tilvalið fyrir hópa, fyrirtæki og einstaklinga. Veldu tímann og farðu þegar þú vilt 2, 3, 4 daga eða lengur. Verðlag er hagstætt bæði í mat og drykk. Þá er hægt að gera góð kaup í hinum ýmsu versl- unum og mörkuðum. Við bjóðum upp á skoðunar- ferðir fyrir hópa og fyrirtæki, svo og kvöldverði/- veislur í höllum, köstulum eða húsum frá miðöldum. www.transatlantic.is info@transatlantic.is Sími 588 8900 GLÆSILEGAR MIÐALDA- BORGIR Í EVRÓPU Saga Rómar spannar yfir 2800 ár, borg sem óx úr litlu ítölsku þorpi á 9. öld f. Krist yfir í að vera höfuðborg heimsveldis á tímum Rómverja. Í dag er Róm höfuð- borg Ítalíu, menningarleg miðstöð, stórborg á heims- vísu og er fremst í flokki þeirra borga sem þykja einna hvað fallegastar frá fornum og horfnum heimi. Þar finnur þú allt fyrir ferðamanninn. Róm er einstakur vettvangur mikillar sögu, menningar og lista er einnig borg sem iðar af fjölskrúðugu og litríku mannlífi. Sælureitur góðrar matseldar og frábærra vína með veitinga- og kaffihús á hverju horni. Stórkostlegar byggingar príða þessa glæsilegu borg sem unun er að skoða á tveimur jafnfljótum. Miðaldaborg frá 12. öld. Gamli og nýji tíminn mætast í borg sem ekki á sinn líka. Gamli bærinn er frá árinu 1201 og er verndaður af Unesco. Þar ber hæst kasta- linn í Riga, kirkja Sankti Péturs og Dómkirkjan. Gamli bærinn í Riga er virkilegt augnayndi hvert sem litið er og setur borgina á stall með fallegri borgum Evrópu. RIGA Í LETTLANDI RÓM TALLINN EISTLANDI NOKKUR DÆMI UM BORGIR SEM VIÐ BJÓÐUM UPPÁ Vilnius, Budapest, Prag Gdansk, Krakow,Varsjá, Bratislava, Wroclaw Lissabon, Porto,Vínar- borg, Napolí, Mílanó Feneyjar og Brugge Tallinn er ein allra fallegasta borg Evrópu og er gamli bæjarhlutinn sá hluti borgarinnar sem mesta aðdráttaraflið hefur á ferðamenn. Þar eru götur steini lagðar, byggingar frá 11. öld sem hefur tekist að varðveita ótrúlega vel. Þú ferð úr 21. öldinni beint aftur í miðaldir. Þar sem Tallinn er best varðveitta miðaldaborg N-Evrópu hefur henni verið bætt við á heimslista UNESCO.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.