Morgunblaðið - 15.12.2022, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 15.12.2022, Blaðsíða 54
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 2022 DÆGRADVÖL54 Fiskislóð • Bíldshöfði • Smáratorg • Helluhraun • Baldursnes • www.gaeludyr.is Jólagjafir gæludýranna færðu hjá okkur Til hamingju með daginn Stjörnuspá Hafsteinn Ingi Gunnarsson 30 ÁRA Hafsteinn ólst upp í Reykja- vík en býr á Hvanneyri í Borgarfirði. Hann er húsasmiður og búfræðingur að mennt og er í dag sjálfstætt starf- andi húsasmiður. Áhugamálin eru m.a. smíðar, landbúnaður og fjölskyldan. FJÖLSKYLDA Maki Hafsteins er Björk Lárusdóttir, f. 1995, náttúru- fræðingur og kennari við Landbún- aðarháskólann á Hvanneyri. Dætur þeirra eru Anna Rakel, f. 2019, og Katrín Lára, f. 2022. Foreldrar Haf- steins eru Anna Jóhanna Hilmars- dóttir, f. 1956, fv. starfsmaður á leik- skóla, búsett á Hvanneyri, og Gunnar Haukur Ingimundarson, f. 1958, leiðsögumaður, búsettur í Reykjavík. Nýr borgari Hvanneyri Katrín Lára Hafsteins- dóttir fæddist 10. júní 2022 kl. 13.28 á Akranesi. Hún vó 3.552 g og var 50 cm löng. Foreldrar hennar eru Hafsteinn Ingi Gunnarsson og Björk Lárusdóttir. 21.mars - 19. apríl A Hrútur Þú kannt að hefja nýtt ástarsam- band eða núverandi samband mun þróast áfram. Einhverjar breytingar eru framundan í vinnunni sem þú kannt vel að meta. 20. apríl - 20.maí B Naut Ekki láta óróa annarra smitast yfir í þig. Þú hefur öll verkfæri til þess að stand- ast álag hversdagsins, nýttu þér þau. 21.maí - 20. júní C Tvíburar Þetta er góður dagur fyrir viðskipti af ýmsu tagi. Sættu þig við mistök þín og búðu þig undir að halda á vit fram- tíðarinnar sem mun fara um þig mjúkum höndum.Einhver kemur þér á óvart með skemmtilegum fréttum fljótlega. 21. júní - 22. júlí D Krabbi Þú þarft að íhuga vandlega með hvaða hætti þú ætlar að ná takmarki þínu. Varastu að láta tilfinningarnar hlaupa með þig í gönur. 23. júlí - 22. ágúst E Ljón Leggðu höfuðið í bleyti, því lausnin er ekki eins langt undan og virðist við fyrstu sýn. Farðu varlega í jólagjafainnkaupunum, þú veist að það kemur að skuldadögum. 23. ágúst - 22. september F Meyja Láttu það ekki koma þér úr jafnvægi, þótt hlutirnir gangi ekki fyrir sig akkúrat eins og þú hafðir hugsað þér.Gefðu þér tíma til að rækta líkama og sál. 23. september - 22. október G Vog Farðu þér hægt í að velja nýjar leiðir því það er í mörg horn að líta og engin ástæða til breytinga breytinganna vegna. Ekki láta yfirlæti eða dramb verða þér að falli. 23. október - 21. nóvember Sporðdreki Láttu það vera að elta uppi einhverja hluti sem færa þér enga innri gleði. Einhver kemur þér skemmtilega á óvart í dag. 22. nóvember - 21. desember I Bogmaður Þér finnst þú ekki fá útrás fyrir athafnaþörf þína.Nú veistu hvers þú ert megnug/ur og hvað þú hefur til ráðstöfunar. Ekki sækja vatnið yfir lækinn. 22. desember - 19. janúar J Steingeit Rómantík og daður koma við sögu í dag og líkur eru á að eitthvað komi þér þægilega á óvart. Góðverk sem þú gerð- ir um daginn fær óvænt mikla athygli. 20. janúar - 18. febrúar K VatnsberiVinir þínir skipta þig miklu. Leyfðu listrænum hæfileikum þínum að njóta sín. Leit þín að innri friði gengur vel. 19. febrúar - 20.mars L Fiskar Gættu þess að afla allra upplýsinga áður en þú grípur til aðgerða. Ferðalög verða á dagskránni fyrstu mánuði nýs árs. Börn koma mikið við sögu á næstunni. Þorbjörn J. Sveinsson, fyrrverandi slökkviliðsstjóri – 70 ára Var farsæll í starfi Þ orbjörn Jóhann Sveins- son er fæddur 15. des- ember 1952 á Landspít- alanum í Reykjavík en ólst upp í Hafnarfirði. „Fyrsta árið mitt var á Skúla- skeiði, afi minn bjó þar og for- eldrar mínir voru í herbergi þar í kjallara. Á öðru ári flytjum við á Hverfisgötu en frá þriggja ára aldri til ellefu ára aldurs á bjugg- um við í Álfaskeiði og þá flytjum við upp á Holt í Brekkuhvamm.“ Þorbjörn var í vinnuskólanum í Krýsuvík og í þrjú sumur í sveit á Háteigi í Vopnafirði. Þorbjörn gekk í Barnaskóla Hafnarfjarðar sem síðan varð Lækjarskóli og svo í Flensborgar- skóla. „Ég var þar í þrjá bekki þar en varð leiður á skólanum og fékk mér vinnu hjá Rafveitu Hafnar- fjarðar, fyrst sem verkamaður og svo línumaður. Á þessum tíma er sjúkrabílinn á rafveitunni og þegar ég næ aldri til, 18 ára gamall þá fór ég að vera aðstoðarmað- ur á sjúkrabíl. Svo þegar ég tók meiraprófið fór ég að keyra hann líka. Árið 1974 flutti ég mig svo yfir á slökkvistöðina um leið og sjúkrabílinn fór þangað og varð slökkviliðsmaður.“ Þorbjörn var slökkviliðsmaður í Hafnarfirði þar til hann sótti um vinnu sem slökkviliðsstjóri á Ísafirði. „Ég tók mína síðustu vakt í Hafnarfirði áramótin 1985/1986 og flýg vestur 2. janúar og byrja að vinna 3. janúar 1986.“ Umdæmi slökkviliðs Ísafjarðarbæjar er Ísafjarðardjúpið, Jökulfirðirnir og suður að Dynjandisheiði en þá tekur Slökkvilið Patreksfjarðar við. Þorbjörn lauk störfum ára- mótin 2018/2019. „Þetta var mjög góður tími og tel mig hafa verið farsælan í starfi. Það eru samt bæði gleði og sorg í þessu starfi, eins og á snjóflóðaár- unum. Svo hafa verið hér slæmir brunar, en á Þingeyri fórst fólk í eldsvoða. Við erum náttúrlega með stórt svæði í sjúkraflutning- um og það starf eykst frekar en hitt, þótt banaslysum í umferðinni hafi fækkað.“ Þorbjörn var formaður félags opinberra starfsmanna á Vest- fjörðum í 12-14 ár og sat í stjórn BSRB. Hann var einnig í hesta- mannafélaginu á Ísafirði. „Maður kann ekki að segja nei og núna er ég varaformaður Eldri borgara á Ísafirði sem er heilmikill félags- skapur. Við rekum púttvöll hérna, svo erum við með spilakvöld og bingó og skipuleggjum ferðalög.“ Áhugamál Þorbjörns í gegnum tíðina hafa verið fjölskyldan, vinnan, hestamennska og golf. „Ég kynntist hestamennskunni þegar ég var í sveit og var bæði í henni þegar ég bjó í Hafnarfirði og hér á Ísafirði, átti tíu hesta, en þegar það fór að nálgast hættu- tímann þá seldi ég það allt frá mér og fór að spila golf. Ég fer á hverjum degi í golf á sumrin og á veturna fer ég í golfhermi þrisvar til fjórum sinnum í viku. Ég er líka duglegur að fara golf í Reykjavík, við hjónin eigum smá skonsu þar sem við notum mikið. En hér á Ísafirði nýt ég mín best. Hér er stutt á golfvöllinn og hér eru flest- ir mínir kunningjar. “ Fjölskylda Eiginkona Þorbjörns er Bergdís Sveinsdóttir, f. 15.7. 1953, sjúkra- liði. Þau eru búsett á Urðarvegi á Ísafirði. Foreldrar Bergdísar voru Sveinn Sigursteinsson, f. 4.4. 1920 d. 7.12. 2000, búsettur í Reykjavík, og Gyða Eyjólfsdóttir, f. 30.12. 1922, d. 8.10. 2019, búsett í Reykjavík. Börn Þorbjarnar og Bergdísar eru 1) Sveinn Hermann Þor- björnsson, f. 16.8. 1973, varðstjóri og eldvarnareftirlitsmaður hjá Slökkviliði Ísafjarðarbæjar, búsettur í Hrauntungu, Ísafirði. Kona hans er Heiðrún Rafnsdótt- ir, f .28.1. 1976, sjúkraliði. Börn þeirra eru Líf Indíana Sveins- dóttir, f. 23.8. 1995, Birgir Goði Sveinsson, f. 13.8. 2002, og Hekla Fjölskyldan Þorbjörn og Bergdís ásamt börnum, tengdadóttur og barnabörnum við fermingu yngsta sonarins árið 2004. Slökkviliðsstjórinn Þorbjörn J. Sveinsson. Hjónin Bergdís og Þorbjörn heima á Ísafirði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.