Morgunblaðið - 15.12.2022, Side 10

Morgunblaðið - 15.12.2022, Side 10
FRÉTTIR Innlent10 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 2022 NÝIR OG NOTAÐIR BÍLAR SKOÐUM ALLAR UPPÍTÖKUR HYUNDAI KONA COMFORT PLUS 40KWH BÍLLe ÍLLe ÍLLe BÍLLeLLeLe ÝR BÍLLe BÍLLe Nýskráning 10/2020. Rafmagn, sjálfskiptur, fjórhjóladrifinn. Verð 4.990.000 kr. Raðnúmer: 964085 RENAULT CAPTUR MILD-HYBRID Nýskráning 4/2022. Bensín, mild-hybrid, sjálfskiptur. Verð 4.990.000 kr. Raðnúmer: 943642 RENAULT CAPTUR MILD-HYBRID Nýskráning 4/2022. Bensín, mild-hybrid, sjálfskiptur. Verð 4.990.000 kr. Raðnúmer: 863609 NÝR Nýskráning 4/2022. Bensín, mild-hybrid, sjálfskiptur. Verð 4.990.000 kr. Raðnúmer: 782472 NÝR BÍL RENAULT CAPTUR MILD-HYBRID Nýskráning 4/2022. Bensín, mild-hybrid, sjálfskiptur. Verð 4.990.000 kr. Raðnúmer: 652455 NÝR BÍ RENAULT CAPTUR MILD-HYBRID Nýskráning 5/2022. Bensín, rafmagn, fjórhjóladrifinn, sjálfskiptur. Verð 6.980.000 kr. Raðnúmer: 144151 NÝR JEEP COMPASS LIMITED PHEV Nýskráning 8/2022. Rafmagn, sjálfskiptur, framhjóladrifinn. Verð 6.290.000 kr. Raðnúmer: 150970 e Um er að ræða ókeyrða bíla sem eru innfluttir notaðir Nýskráning 6/2022. Rafmagn, sjálfskiptur, framhjóladrifinn. Verð 5.990.000 kr. Raðnúmer: 174641 N HYUNDAI KONA 64KWH X-LINE Nýskráning 5/2017. Ekinn 89.000 km. Dísel, fjórhjóladrifinn, sjálfskiptur. Verð 5.470.000 kr. Raðnúmer: 973892 KIA SORENTO LUXURY KIA SOUL STYLE 64KWH NÝR Kletthálsi 11 - 110 Reykjavík - sími 537 5566 - islandsbilar@islandsbilar.is RAFMAGN RAFMAGN RAFMAGN MILD-HYBRIDMILD-HYBRID MMIL BENSÍN RAFMAGN DÍSEL NÝR B ILD-HYBRID NÝR B D-HYBRID „Þessi orða er veitt fólki úr röðum læknisfræðinnar níunda hvert ár,“ segir Stefán Karlsson, prófessor í sameindalæknisfræði við Háskól- ann í Lundi í Svíþjóð, í samtali við Morgunblaðið en honum hlotnaðist nú í byrjun mánaðarins sá heiður að fá gullmedalíu Konunglega náttúru- fræðafélagsins í Lundi, Kungliga Fysiografiska Sällskapet i Lund, og tók við þessari æðstu viðurkenningu félagsins, á 250 ára afmæli þess, úr hendi Karls Gústafs 16. Svíakonungs. „Þeir hefðu auðvitað getað valið einhvern annan en þeir völdu mig svo þetta er töluverður heiður fyrir mig en raunar fékk ég þessa viður- kenningu nú árið 2020. Félagið hélt hins vegar enga stóra fundi þegar Covid var, svo þess vegna frestaðist veitingin þar til núna,“ segir Stefán frá. Þurfti að leigja kjólföt Verndari náttúrufræðafélagsins er Svíakonungur sem var ástæðan fyrir því að Karl Gústaf kom í eigin persónu til Lundar og veitti verðlaun- in í dómkirkjunni þar við hátíðlega athöfn. „Þetta var svo formlegt að maður þurfti að leigja sér kjólföt,“ segir Stefán af orðuveitingunni og hlátur- inn kraumar niðri í honum. Kirkjan var þéttsetin að sögn hans og á eftir var boðið til dýrindiskvöldverðar í háskólabyggingunni. En hvaða merkingu skyldi það hafa fyrir prófessorinn að hljóta þessa viðurkenningu? „Þetta er bara heiður, ég segi bara eins og þeir segja í Ameríku, þetta er svona „lifetime achievement award“, það er verið að veita mér viðurkenn- ingu fyrir allan minn feril í raun og veru,“ segir Stefán sem hefur helgað starfsferil sinn genalækningum fyrir blóðsjúkdóma. „Ég vinn með stofn- frumur blóðsins og erfðafræði, ég hef unnið mikið við að þróa genalækn- ingar fyrir þessa sjúkdóma, þetta er svona sambland af erfðafræði og blóðsjúkdómafræði,“ útskýrir hann. Þá komuSvíarnir Þau hjónin, Stefán og Sigurborg Ragnarsdóttir, fluttu frá Íslandi árið 1979, þá til Bretlands þar sem hann lagði stund á nám við University College í London eftir að hafa lokið læknanámi frá Háskóla Íslands árið 1976. „Ég vann þar að doktorsritgerð og sá svo fram á að ég væri allt of grænn vísindalega til að fara heim svo við fórum til Bandaríkjanna og þar vann ég á þessari stóru stofnun sem heitir National Institutes of Health í Maryland, rétt fyrir utanWash- ington. Þar var ég í byrjun í rúmlega þrjú ár og eftir það buðu Amerík- anarnir mér eigin rannsóknarstofu og þá fékk ég fullt af peningum og gat ráðið fólk og þar hafði ég upphaflega ætlað mér að vinna fram að eftirlaun- um,“ segir Stefán skemmtilega frá, greinilega mikill sagnamaður svo sem Íslendinga er aðall. Ekki dvaldi hann þó vestanhafs fram að eftirlaunum; sjaldan verður ósinn eins og uppsprettuna dreymir. „Þetta var ágætisstarf og okkur líkaði vel í Bandaríkjunum en þá komu Svíarnir og buðu mér þessa prófess- orsstöðu hér í Lundi og lögðu mikinn aukapening í að stofna hér sérstaka deild fyrir mig. Því tilboði var erfitt að neita og þá fluttum við hingað,“ segir Stefán. Það var árið 1996. Er þetta sattmeðKára? Nú dregur blaðamaður fram úr erminni upplýsingar sem Sigurborg, kona Stefáns, gaukaði að honum í tölvupósti. Er það rétt að Stefán hafi dregið sjálfan Kára Stefánsson, ókrýndan konung erfðarannsókna á Íslandi og einn þekktasta lækni lands- ins, í læknisfræðina? „Við vorum bekkjarfélagar í Menntaskólanum í Reykjavík og hann var einn af bestu vinummínum á skólaárunum. Jú, þetta er kannski að sumu leyti rétt. Kári var svo fjölhæfur og hafði svo marga hæfileika auk þess að vera duglegur í náttúruvísindum, hann hafði líka mikla rithöfundar- hæfileika og hefði auðveldlega getað orðið rithöfundur, þannig að hann stóð frammi fyrir erfiðu vali,“ svarar Stefán þessari spurningu um for- stjóra Íslenskrar erfðagreiningar. „Við vorum úti að labba og tókum þessa umræðu og mig minnir að ég hafi bara sagt við hann „Af hverju drífurðu þig ekki bara í læknis- fræðina eins og ég?“ og það varð af því,“ segir Stefán frá því er hann kaus Kára Stefánssyni örlög fyrir hálfri öld. Viðtalið við Stefánmá lesa í heild á mbl.is. lStefániKarlssyni prófessor veitt gullmedalíaævaforns náttúrufræðafélagsl„Það er verið að veitamér viðurkenningu fyrir allanminn feril“lÞauhjónin hafa búið erlendis frá árinu 1979 Dró Kára Stefánsson í læknisfræði Ljósmynd/Per Lindström/Kungliga Fysiografiska Sällskapet i Lund Konunglegt Stefán Karlsson tekur við gullmedalíu Konunglega náttúrufræðafélagsins úr hendi Karls Gústafs. VIÐTAL Atli Steinn Guðmunds atlisteinn@mbl.is son

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.