Morgunblaðið - 15.12.2022, Page 46
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 2022
1
Gættu þinna handa
Yrsa Sigurðardóttir3
7
9
8
10
6
4
Metsölulisti
Vikuna 07. desember - 13. desember
5
Reykjavík glæpasaga
Ragnar Jónasson
Katrín Jakobsdóttir
Játning
Ólafur Jóhann Ólafsson
Eden
Auður Ava Ólafsdóttir
Tól
Kristín Eiríksdóttir
Kyrrþey
Arnaldur Indriðason
Guli kafbáturinn
Jón Kalman Stefánsson
Hamingja þessa heims
Sigríður Hagalín
Keltar
Þorvaldur Friðriksson
Bannað að ljúga
Gunnar Helgason
2
Margir kannast við það að eiga
ógleymanlegar minningar af
hátíðunum sem tengjast ömmum.
Það gera tónlistarbræðurnir Birkir
og Markús Bjarnasynir en þeir hafa
nú gefið út nýtt jólalag innblásið
af ömmum og hlýjum minningum
fólks um ömmur á jólum, nokkuð
sem fjölmargir virðast tengja við.
„Það vill þannig til að Markús býr
í Svíþjóð núna, tímabundið þannig
að ég skrapp til hans eina helgi
núna í lok nóvember,“ lýsti Birkir
sem mætti í Ísland vaknar og ræddi
um nýja jólalagið við þau Kristínu
Sif og Ásgeir Pál á dögunum.
Í jólaskapi í Svíþjóð
„Þá byrjaði að snjóa svona mikið
í Svíþjóð. Það var fjallað um þetta
í fréttum á Íslandi, það snjóaði svo
mikið. Sama dag og það snjóaði
var kveikt á jólaljósunum. Þetta
var fullkomlega tímasett hjá þeim,
Svíunum,“ sagði Birkir en út frá
þessari jólalegu stemningu, í snjó-
num og jólaljósunum, komust þeir
ekki hjá því að fara í jólaskap.
„Við hugsuðum bara, við erum
hérna eina helgi saman, eigum við
ekki bara að skella í jólalag,“ sagði
Birkir. Bræðurnir hafa spilað nokk-
uð mikið saman í gegnum tíðina en
hafa þrátt fyrir það aldrei gefið út
jólalag saman.
Tengdu jólin við ömmur
„Við ákváðum mjög fljótt að
jólalagið ætti að fjalla um ömmur
af því að við tengdum jólin eitthvað
svo sterkt við ömmur okkar,“ sagði
Birkir.
Bræðurnir ákváðu því að senda
skilaboð til fjölskyldu og vina og
spurðu þá hvaða hugsanir kæmu
upp við orðin amma og jól.
„Það er þessi hlýja, þessar gæða-
stundir, baksturinn, jóladúkar,
mjúk knús. Allt þetta,“ lýsti Birkir
en bæði Kristín Sif og Ásgeir Páll
sögðust tengja gleðilegar minn-
ingar í sambandi við jólin við ömmu
og rifjuðu þær upp í þættinum.
Dýrmætasta gjöfin
„Það er akkúrat þetta sem við
reynum að fanga í laginu. Þessi tími
sem þær gefa okkur, sem er það
dýrmætasta náttúrlega. Lagið heit-
ir Jólaró; það er alltaf einhver ró
hjá þeim í öllu jólastressinu. Og líka
þessi tími sem þær gefa sér við að
baka allar smákökurnar og prjóna
peysurnar á okkur og allt þetta.
Maður fær einhvern veginn hlýju
í hjartað þegar maður hugsar um
þetta,“ sagði Birkir en sjálfir eiga
Markús og Birkir tvær ömmur sem
þeim þykir afar vænt um.
„Þær ljómuðu alveg þegar þær
hlustuðu og horfðu á það. Við gerð-
um smá myndband við það líka sem
þær fengu að sjá. Þannig að ég held
að þær séu mjög ánægðar,“ sagði
Birkir sem tekur undir það að lagið
sé eins konar óður til amma.
„Það er líka gaman að fá send-
ingu frá öðrum því það eru svo
margir sem tengja við þetta,“ sagði
Birkir.
Hægt er að hlusta á lagið Jólaró á
helstu streymisveitum eins og Spotify
þar sem finna má bræðurna undir
nöfnunum Markús og Birkir.
Birkir og Markús
Bjarnasynir heiðra
ömmur í nýja jólalaginu,
Jólaró, sem er innblásið
af öllum þeim dýrmætu
og eftirminnilegu stund-
um sem margir tengja
við ömmur og jól.
Ömmur gera jólin betri
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
Ömmujól Bræðurnir Birkir og Markús tóku höndum saman og sömdu jólalag til heiðurs ömmum á jólum.
Jólaró Lagið Jólaró má finna á
helstu tónlistarveitum.
Yfir helmingur hlynntur notuðum gjöfum
Hugmyndir fólks um jólagjafir
hafa breyst mikið á síðastliðnum
árum, eins og sjá má í niðurstöð-
um nýrrar breskrar könnunar
þar sem fram kemur að yfir helm-
ingur fullorðinna taki notuðum
gjöfum opnum örmum. Þá virðist
aukin meðvitund á sviði um-
hverfismála og sparnaður vera
meðal ástæðna fyrir þessu. Það
hefur líklega ekki farið fram hjá
neinum hvað útgjöld hafa hækkað
upp á síðkastið og því eru margir
með hugann við það að spara
sem mest yfir hátíðarnar. 2.000
manns tóku þátt í umræddri
könnun en 58% þátttakenda
sögðust vera jákvæð gagnvart því
að fá gjöf sem væri notuð. 46%
sögðust vera opin fyrir því að gefa
öðrum notaða gjöf og næstum
fjórir af hverjum tíu þátttakend-
um höfðu gefið notaða gjöf um
jólin. Enn eru þó 26% sem telja
að ákveðin skömm fylgi því að
gefa notaðar gjafir en 31% trúir
því þó að slíkar gjafir ættu þykja
eðlilegar. rosa@mbl.is
Ljósmynd/Colourbox
Loppugjöf? Æ fleiri eru nú opnir fyrir því að gefa vel með farnar notaðar
gjafir, til dæmis af flóamörkuðum, nytjamörkuðum og úr loppuverslunum.