Morgunblaðið - 15.12.2022, Page 48

Morgunblaðið - 15.12.2022, Page 48
48 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 2022 ✝ Guðrún Elín Guðmunds- dóttir fæddist 26. september 1970. Hún lést á líknar- deild Landspítalans 3. desember 2022. Hún lætur eftir sig eiginmann og þrjú börn. Foreldrar henn- ar eru Rannveig Jónsdóttir, f. 19.7. 1951, og Guðmundur Haralds- son, f. 25.5. 1950. Systir Guð- rúnar Elínar er Klara, f. 11.8. 1978, eiginmaður Sigurjón Gíslason, þeirra dætur eru Birta Sól og Telma Líf. Eftirlifandi móðuramma Guð- rúnar Elínar er Ragnhildur G. Guðmundsdóttir, f. 12.8. 1930. Guðrún Elín giftist Guðjóni Steingrímssyni 2. maí 1998, þau haldið vináttunni alla tíð og studdu hana í veikindum henn- ar. Að lokinni skólagöngu í FG starfaði hún m.a. á leikskól- anum Hlíðarbergi og hjá KPMG. Hún hóf síðan nám í háskól- anum á Bifröst og lauk prófi í viðskiptalögfræði og síðar meistaranámi í alþjóða- viðskiptum. Hóf aftur störf hjá KPMG og síðar hjá Borgun, þar til hún þurfti að hætta vegna veikinda í desember 2018 þegar hún greindist með illkynja heila- æxli. Hún var mjög félagslynd. Þau Birgir áttu sameiginleg áhuga- mál, svo sem ferðalög, skíði og golf sem þau stunduðu bæði heima og erlendis í hópi góðra vina og fjölskyldu. Fjölskyldunni auðnaðist að dvelja saman við Gardavatn á Ítalíu síðastliðið sumar, var sú ferð ómetanleg og ógleymanleg minning. Útför Guðrúnar Elínar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 15. desember 2022, klukk- an 13. skildu árið 2004. Þeirra börn eru El- ísa og Arnór, f. 9. janúar 1997. Sam- býlismaður Elísu er Margeir Ingi Mar- geirsson, þeirra sonur er Atlas Freyr, fyrir á Mar- geir Ingi dótturina Írisi Lind. Eftirlifandi eig- inmaður Guðrúnar Elínar er Birgir Hauksson, f. 16. nóvember 1970, þau gengu í hjónaband 1. ágúst 2019. Þeirra dóttir er Íris, f. 6. júlí 2009. Guðrún Elín ólst upp í Hafn- arfirði þar sem hún bjó alla tíð. Á yngri árum æfði hún hand- bolta með Haukum. Hún gekk í Lækjarskóla og Víðistaðaskóla þar sem hún eignaðist tryggar og góðar vinkonur sem hafa Í dag kveðjum við Guðrúnu Elínu, elskulega mágkonu og vinkonu. Það var mikil gæfa í lífi Bigga bróður þegar hann og Guðrún fundu hvort annað. Hann fann þá ekki bara sinn lífs- förunaut og sálufélaga heldur fylgdu gullmolarnir hennar með, Elísa og Arnór. Þriðji molinn bættist fljótlega við þegar Íris fæddist, yndisleg blanda beggja foreldra. Við höfum notið þess að búa í nágrenni við Bigga og Guðrúnu og það var gott að koma í heim- sókn upp á fjallið, eins og við köll- um það. Guðrún alltaf hlý og gef- andi og þegar rædd voru málefni eins og pólitík og tónlist, sem við vorum ekki alltaf sammála um, þá var aldrei hallmælt eða gagn- rýnt. Svo var einstaklega gott að leita til hennar ef eitthvað bjátaði á eða lífið varð eitthvað snúið. Jarðbundin og jákvæð kom hún með góð ráð, nú eða bara hlustaði og hellti upp á meira kaffi. Guðrún var einstök og hún tókst á við lífið með raunsæi og ekki síst húmor, sem oft var svo skemmtilega kaldhæðinn. Og þannig tókst hún líka á við veik- indin sem ruddust inn í líf hennar og fjölskyldunnar og tóku svo mikið frá henni síðustu árin. Guðrún kvartaði aldrei eða ræddi erfitt hlutskipti og hún kenndi okkur svo margt um styrk og auðmýkt. Það var svo ljós í myrkrinu fyrir tveimur ár- um þegar ömmustrákurinn Atlas Freyr bættist í hópinn. Tíminn sem þau áttu saman var skamm- ur en svo dýrmætur. Við syrgjum í dag þær stundir með Guðrúnu sem ekki verða og tímann sem hún fær ekki með fjölskyldunni sinni, börnum og barnabörnum. Elsku Biggi, Íris, Elísa, Arnór, Rannveig, Gummi, Klara og fjölskyldur, við vottum ykkur okkar dýpstu samúð. Guð- rúnar verður sárt saknað, en ljúf- ar og hlýjar minningarnar munu lifa og verma hjörtu okkar sem áttum með henni samleið. Steinunn og Jón Björn. Guðrún Elín, vinkona mín til margra ára, er farin frá okkur svo allt of snemma. Hún háði hetju- lega baráttu við vágestinn sem bankaði upp á fyrir fjórum árum. Við kynntumst á Bifröst haustið 2003 þegar við hófum þar nám og var úthlutað sumarbústöðum við Hreðavatn sem lágu hlið við hlið. Á þessum tíma var mikil húsnæð- iskreppa á Bifröst og nemendur bjuggu um allt nærumhverfi Bif- rastar. Haustið 2004 urðum við áfram nágrannar því við fluttum báðar í litlu krúttlegu götuna Steinkot inni á háskólasvæðinu. Þrátt fyrir þjónustuleysi við sum- arbústaðina, eins og t.d. ekkert net og engan snjómokstur, undum við hag okkar vel, enda með börn á svipuðum aldri og urðu krakk- arnir fljótt hinir mestu mátar. Við höfðum líka lífsgæði sem öðrum stóðu ekki til boða eins og okkar eigin heitu potta sem voru óspart notaðir. Músagangur gerði að vísu vel vart við sig. Guðrún var nú ekki hrifin af þeim gestum en verri voru þó kóngulærnar sem voru úti um allt í hrauninu og mos- anum. Hún var sjúklega hrædd við þær og sagði ég oft við hana að verri stað hefði hún ekki getað fundið til að búa á vegna kóngu- lóafóbíunnar sem hún var með. Við eyddum miklum tíma sam- an öll Bifrastarárin, lærðum sam- an, peppuðum hvor aðra upp, buð- um hvor annarri í mat og jú fórum í hinn og þennan gleðskapinn saman ásamt öllu því góða fólki sem við kynntumst á Bifröst. Mörg af þeim vinaböndum sem hnýtt voru á þessum tíma vara enn. Ómetanleg ár í einu orði sagt. Þetta var svo ógleymanlegur tími því við vorum öll á sama stað í líf- inu - að læra langt uppi í sveit. Guðrúnu vegnaði mjög vel í líf- inu að námi loknu og fékk súp- erflott atvinnutækifæri. Hún undi hag sínum vel og kynntist Bigga sínum fljótlega eftir að hún flutti aftur á mölina. Eignuðust þau Ír- isi saman og gerðu tvíburana El- ísu og Arnór að stóru systkinum. Fluttu þau í Furuásinn í Hafnar- firði fljótlega eftir að þau kynnt- ust. Hafði ég mikla ánægju af því að koma oft að heimsækja hana og þau þangað. Þessi klári dugnaðarforkur og húmoristi með sinn leiftrandi húmor sem sumir kalla svartan er nú farin frá okkur. Fagurbláu blíðu augun fóru ekki fram hjá neinum. Hláturinn hennar var einstakur og smitandi hlátur- sköstin voru óborganleg. Það var sko alveg hægt að fá hláturharð- sperrur eftir að hafa eytt með henni kvöldstund. Nú hlær hún Guðrún okkar ekki aftur með okkur. Stundaglas hennar tæmdist svo allt of fljótt en minning hennar lifir í hjörtum okkar. Við sem þekktum Guðrúnu eigum eftir að sakna hennar sárt. Ég votta eiginmanni hennar, börnum, foreldrum og aðstand- endum öllum hugheila samúð og bið um styrk ykkur til handa til að þið getið tekist á við sorgina. Vigdís Hauksdóttir. Vinkona mín Guðrún Elín er látin eftir baráttu við krabbamein. Þegar ég hitti þessa skemmtilega konu fyrst þá hugsaði ég: „Ég ætla að kynnast þessari, hún er hrikalega skemmtileg.“ Ég hitti hana á tjaldsvæðinu á Akureyri í fyrsta skipti, en þá vorum við í úti- legu og enduðum á því að eyða helginni saman. Ég man að mér fannst svo fyndið þegar hún teip- aði rennilásinn á tjaldinu svo hún fengi ekki kóngulær inn. Mér fannst þetta bara nokkuð sniðugt og varð eiginlega pínu hrædd við kóngulær eftir það. Vináttan sem ég átti með Guðrúnu var einstök, enda var Guðrún ein fallegasta manneskja sem ég þekki. Hlátur- inn, húmorinn, væntumþykjan og gleðin sem réð alltaf ríkjum. Það fyrsta sem mér dettur í hug þegar ég hugsa um Guðrúnu eru Tívolí- lurkar, 60 mínútur og Dúmbó- samlokur. Þetta þrennt var okk- ar! Við eyddum ómældum tíma fyrir framan sjónvarpið að horfa á 60 mínútur og sögðum í kór I am Lesley Stahl og sleiktum frost- pinna. Okkur fannst þetta alltaf jafnfyndið og hlógum að þessu í mörg ár. Dúmbó-samlokurnar voru vinsælastar hjá okkur vin- konunum, en Guðrún átti allan heiðurinn af þeim. Uppskriftin var afar einföld, eftir gott kvöld bauð hún í grillaða samloku með skinku og osti – klikkaði aldrei! Guðrún smitaði mig af golfbakt- eríunni en við eyddum mörgum skemmtilegum stundum saman á golfvellinum. Við fórum í golf í mörg ár en skildum ekkert í því að forgjöfin hjá okkur lækkaði ekk- ert. Svo föttuðum við það … við vorum ekkert að einbeita okkur að því að spila golf. Við vorum að taka myndir, týnast í bönkerum, gera grín að Helgu eða setja á okkur gloss, sem sagt aðallega að hafa gaman og hlæja. Golfið var aukaatriði … það var ekki fyrr en löngu seinna sem við fórum að spá í þessa forgjöf. Með miklum söknuði kveð ég vinkonu mína, vinkonu sem gerði lífið svo skemmtilegt. Eitt er ég viss um að elsku Guðrún okkar er komin í skemmtinefndina í sum- arlandinu góða, með golfið á hreinu og er klárlega með tívolí- lurka í bílförmum. Missirinn er mikill og sorgin er erfið að eiga við. Elsku Biggi, Íris, Arnór, Elísa, Gummi, Rannveig og Klara. Við minnumst og höld- um á lofti minningu um yndislegu Guðrúnu. Elska þig, kæra vinkona. Gurrý. Í dag kveðjum við vinkonu okk- ar Guðrúnu Elínu. Við vorum svo lánsamar að hafa hana í golfhópn- um okkar Glimmer og gloss. Í upphafi var golfið ekki aðalatriðið heldur að hittast og hafa gaman. Litli hópurinn okkar stækkaði, makar okkar bættust við og þeir fóru að spila saman. Guðrún mætti alltaf á golfvöllinn með góða skapið, hnyttnu tilsvörin og jafnvel leikþætti þegar hún var að segja eitthvað fyndið. Það var aldrei leiðinleg stund með Guð- rúnu og hún sá spaugilegu hlið- arnar á öllu. Hún var ekki aldeilis á því að gefast upp fyrir veikind- unum, hún kvartaði aldrei og sýndi æðruleysi gegnum þau. Hún tók fullan þátt í starfi hóps- ins, þegar hún gat ekki spilað mætti hún og borðaði með okkur eftir hring eins og heilsan leyfði. Við yljum okkur við minningar af samverustundunum sem við feng- um með henni, golfmótin og partí- in eru þar ofarlega í huga og sér- staklega golfferðin til Ítalíu haustið 2021. Stundirnar hefðu mátt vera miklu fleiri. Elsku Biggi og fjölskylda, við sendum ykkur styrk og kærleiks- knús á þessum erfiðu tímum. Helga Laufey, Harpa, Unnur Guðríður, Erla, Soffía Dögg, Björk, Sigurrós Úlla og makar. Elskuleg samstarfskona okkar, Guðrún Elín Guðmundsdóttir, hefur lokið sinni jarðvist langt fyr- ir aldur fram. Samstarf okkar Guðrúnar hófst síðla hausts 2011. Það kom fljótt í ljós að Guðrún var afburða starfsmaður, enda var hún valin úr stórum hópi umsækj- enda og var fljót að vinna sig upp í meiri ábyrgðarstörf hjá fyrir- tækinu. Það var eftirsóknarvert að vinna með Guðrúnu. Með brosi sem náði til augnanna, sinni hljómþýðu rödd og viðmóti sem kallaði það besta fram í öllum gengu verkefnin hratt og vel fyrir sig. Hlutirnir voru ekki flæktir að óþörfu og svo leið tíminn eins og hann gerir þegar það er gaman. Guðrún var ein af þessum manneskjum sem gera lífið svo miklu betra. Það var mikil birta í kringum Guðrúnu. Hún hafði þann einstaka hæfileika að gera allt skemmtilegt, auk þess hafði hún svo ljúfa og blíða nærveru. Það er með sorg og söknuði sem við kveðjum Guðrúnu vitandi að í þessari tilvist hefur þagnað dill- andi hláturinn og slokknað hefur blik í auga. Við minnumst hennar með kærleika og þakklæti. Hún lifir áfram í hjarta allra sem kynntust henni. Fjölskyldu Guðrúnar sendum við okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Bergþóra K. Ketilsdóttir, Margrét Kjartansdóttir, Rakel Ýr Guðmundsdóttir. Guðrún Elín Guðmundsdóttir Minningarkort á hjartaheill.is eða í síma 552 5744 Stapahrauni 5, Hafnarfirði Sími: 565 9775 www.uth.is - uth@uth.is Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Kristín 699 0512 Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, DÍSA HERMANNSDÓTTIR frá Miklahóli, Viðvíkursveit, fyrrverandi bréfberi og starfsmaður Pósts og síma, lést á líknardeild Landspítalans þriðjudaginn 6. desember. Útför hennar verður frá Langholtskirkju í Reykjavík þriðjudaginn 20. desember klukkan 13. Jóngeir Hjörvar Hlinason Soffía Melsteð Heiðrún Hlín Guðlaugsdóttir Hannes Siggason barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐFINNUR H. PÉTURSSON Yfirvélstjóri, Kleppsvegi 62, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi föstudaginn 9. desember. Útför fer fram frá Langholtskirkju föstudaginn 6. janúar klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á krabbameinsfélagið. Kristín Ása Ragnarsdóttir Ragnheiður Guðfinnsdóttir Sighvatur Kjartansson Guðbjörg Guðfinnsdóttir Þórlindur Hjörleifsson Kristján Þór Guðfinnsson barnabörn og barnabarnabörn Elsku móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ANNA PETERSEN, lést á hjúkrunarheimilinu Hlévangi í Reykjanesbæ þriðjudaginn 6. desember. Útför hennar fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði mánudaginn 19. desember klukkan 15. Jón Hörður Hafsteinsson Guðfinna Ósk Kristjánsdóttir Lilja Hafsteinsdóttir Eiríkur Bragason Jóna Marý Hafsteinsdóttir Birgir Ómar Ingason barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginkona og móðir, KITTÝ STEFÁNSDÓTTIR, lést á hjúkrunarheimilinu Eir sunnudaginn 4. desember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Ólafur Ólafsson Helga Ósk Ólafsdóttir Ólafur Ólafsson yngri Föðurbróðir minn og frændi okkar, GYLFI GARÐARSSON frá Uppsölum í Eyjafjarðarsveit, lést á dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri, mánudaginn 12. desember. Útförin verður auglýst síðar. Hafdís Pálsdóttir Ragnar Kr. Guðjónsson Guðjón Freyr Ragnarsson Sandra Sif Ragnarsdóttir Andri Bollason Hákon Heiðar Ragnarsson Aníta Ársól Torfadóttir Okkar ástkæri ÞÓRIR HELGASON / TORE LIE BALLESTAD arkitekt lést í faðmi fjölskyldunnar á sjúkrahúsinu í Stafangri aðfaranótt 7. desember. Útförin fer fram í Stavanger krematorium föstudaginn 16. desember klukkan 11. Gunn Lytomt Anders Ballestad Marianne Eunso Chang Svanborg Þórisdóttir Kjell D. Ramsdal Bjarni Þórisson Marta Guðrún Jóhannesdóttir Hanna Cecilia Lytomt Daniel Husvik Aina Lönne Bergundhaugen Jon Bergundhaugen Björn Ballestad Hege Egeland Frode Lie Ballestad Lisbeth Thorsen Ballestad Elísabet B. Bjarnadóttir barnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.