Morgunblaðið - 15.12.2022, Síða 60
MENNING60
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 2022
Vinir
fá sérkjör
Skráning á icewear.is
ASOLO
Falcon herra
Kr. 29.990.-
HVÍTAN
Merínó húfa
Kr.3.990.-
FUNI unisex dúnúlpa
Kr.33.990.-
REYKJAVÍK ullarúlpa
Kr.47.990.-
BRIMNE
meðalþyk
Kr.2.15
GEYSIR ullarjakki
Kr.28.990.-
GRÍMSEY hansk
Kr.2.990
ES
S
kir sokkar
0.-
VINDUR barna ullarúlpa
Kr. 18.990.-
AKUREYRIweekend taska
Kr.6.990.-
ar
.-
FÖNN ullarúlpa
Kr.44.990.-
Hlýjar Gjafir
Bein innsýn í stormasamt ástarsamband
Á uppboði hjá Bruun Rasmussen
í Kaupmannahöfn, sem lýkur í
kvöld, verða boðin upp sendibréf
frá Karen Blixen sem talin eru
veita mikilvæga innsýn í líf henn-
ar. Þetta kemur fram í tilkynn-
ingu á vef uppboðshúsinu.
Um er m.a. að ræða bréf sem
Denys Finch Hatton sendi Blixen
1926, og birt er í bréfasafni Blixen
sem út kom 2013, og bréf sem
Blixen sendi Finch Hatton 1929,
og ekki er vitað til að hafi ratað
fyrir almenningssjónir áður.
„Við erum alltaf himinlifandi
þegar okkur tekst að varpa ljósi
á nýtt efni sem tengist bók-
menntasögunni. Bréfið til Finch
Hatton gefur gæsahúð því það
veitir beina innsýn í stormasamt
ástarsamband þeirra,“ segir
EmmaMarie Poulsen hjá Bruun
Rasmussen. Umrædd bréf ásamt
ljósmynd af þeim eru verðmetin á
8-10.000 danskar krónur.
Karen Blixen giftist Bror von
Blixen-Finecke 1914. Fjórum
árum seinna kynntist hún Denys
Finch Hatton, sem var stóra ástin
í lífi hennar. Hjónabandinu lauk
1925 og stuttu síðar flutti Finch
Hatton inn til Blixen Hann lést
í flugslysi 1931. Blixen skrifaði
um hann í sjálfævisögunni Jörð í
Afríku sem kom út 1937.
Heimsþekkt Rithöfundurinn Karen
Blixen fæddist 1885 og lést 1962.
„Ég veit ekki betur en að þetta sé
í fyrsta sinn sem Grýluhellir er
heimsóttur í íslenskri kvikmynd og
sjónvarpsefni,“ segir Anna Bergljót
Thorarensen, höfundur handritsins
að ævintýra- og fjölskyldukvik-
myndinni Jólamóðir sem frumsýnd
verður 26.
desember, en
hægt er að horfa
á myndina sem
jóladagatal í
Sjónvarpi Sím-
ans. „Þetta er
stórskemmtileg
ævintýramynd
fyrir þá sem
ekki hafa séð
neitt af jóladaga-
talinu. En myndin er líka hugsuð
fyrir þær fjölskyldur sem langar að
upplifa söguna í heild sinni saman,“
segir Anna Bergljót og bendir á
að í amstri dagsins og miðjum
jólaundirbúningi hafi fæstar fjöl-
skyldur tíma til að setjast saman
yfir jóladagatalið seinnipart dags.
„Af þeim sökum verður jóladaga-
talið svolítið mikið efni barnanna,
en okkur langar að bjóða upp á
upplifun fyrir alla fjölskylduna,“
segir Anna Bergljót og viðurkennir
fúslega að íbúar Grýluhellis hafi
átt hug hennar og hjörtu síðustu 17
árin eða frá því að hún fór ásamt
fleirum að bjóða upp á jólasveina-
þjónustuna Jolasveinar.is.
Töfrar jólanna
„Þegar handritið að jóladagatali
ársins var tilbúið áttuðum við okkur
á því að auðveldlega mætti setja
söguna í búning kvikmyndar og
fannst að sagan ætti það skilið að
fá að lifa lengur en sem jóladagatal
eins árs,“ segir Anna Bergljót og
tekur fram að mikið hafi verið lagt
í allt útlit myndarinnar, sem að
stórum hluta var tekin upp í raun-
verulegum hellum á Suðurlandi.
Leikstjórinn er Jakob Hákonarson
og framleiðslufyrirtækið A Whole
Lotta Love framleiðir.
„Við höfum búið til jóladagatal
Hurðaskellis og Skjóðu síðustu níu
árin,“ segir Anna Bergljót og vísar
þar auk sín til Andreu Aspar Karls-
dóttur og Sigsteins Sigurbergsson-
ar sem ásamt fleirum standa að
jólasveinaþjónustunni Jólasveinar.
„Fyrstu sjö árin var jóladagatalið á
YouTube og í formi spuna þar sem
föndur var í aðalhlutverki. Í fyrra
hafði Samgöngustofa samband við
okkur og bað okkur um að gera
jóladagatal og þá fórum við fyrst
í samstarf við Sjónvarp Símans,“
segir Anna Bergljót og bendir á að
í Jóladagatali Samgöngustofu, sem
aðgengilegt er á vefnum joladaga-
tal.umferd.is, megi fylgjast með
Hurðaskelli og Skjóðu í fjársjóðsleit
í 24 þáttum þar sem þau kenna
börnunum umferðarreglurnar
samhliða því að lenda í spaugilegum
aðstæðum.
„Jólamóðir gerist um aldamótin
1900 og fjallar í raun um tímann
áður en jólahefðirnar eins og við
þekkjum þær í dag urðu til og áður
en jólasveinarnir fóru til dæmis að
gefa í skóinn. Við fylgjumst með
tröllasystkinunum Hurðaskelli
og Skjóðu sem í fyrsta sinn í sögu
Grýluhellis hafa verið skilin eftir
alein heima,“ segir Anna Bergljót
og bendir á að myndin bregði m.a.
upp mynd af því hvers vegna Skjóða
fékk uppnefnið Leiðinda-Skjóða.
„Systkinin þurfa að vinna sig í
gegnum stirt samband sitt til þess
að komast að því hvert allir hinir 98
íbúar hellisins hafa farið. Á ferða-
laginu sem við tekur læra systkinin
nýja hluti um mömmu sína, Grýlu,
hvernig það kom til að þau urðu
þessi jólafjölskylda og hvað fylgir
töfrum jólanna. Grýla er einnig að
glíma við sömu spurningar á meðan
skyldur hennar sem Jólamóður,
verndara töfra jólanna, stangast á
við þá grimmu tröllskessu sem hún
áður var,“ segir Anna Bergljót sem
aðstoðar Grýlu í myndinni, en aðrir
leikarar sem leggja persónum lið
eru Andrea Ösp, Gríma Kristjáns-
dóttir, Huld Óskarsdóttir, Sigsteinn
og Stefán Benedikt Vilhelmsson.
„Grýla er mun ljúfari en við
höldum,“ segir Anna Bergljót þegar
hún er spurð nánar um það hvernig
Grýla komi henni fyrir sjónir. Ég
held að flestar sögurnar um hana
séu verulega ýktar, þó ég þori ekki
að fullyrða að þær séu ósannar. Ég
veit að henni finnst gaman að halda
sögunum um sig á lofti og leyfa fólki
að halda að hún borði börn, enda
vill hún að fólk beri óttablandna
virðingu fyrir sér,“ segir Anna
Bergljót og tekur fram að myndin
ætti fullt erindi út fyrir landstein-
ana.
Ný sumarsýning í bígerð
Þar sem Anna Bergljót er forkólf-
ur í Leikhópnum Lottu er ekki hægt
að sleppa henni án þess að forvitn-
ast hvað sé framundan hjá hópnum.
Segir hún það ekkert launungarmál
að Covid hafi sett verulegt strik í
reikninginn hjá hópnum þar sem
fjarlægðartakmarkanir settu starf-
seminni miklar skorður. „Af þeim
sökum gátum við ekki boðið upp á
nýjar sumarsýningar síðustu tvö
sumrin,“ segir Anna Bergljót, en
hópurinn sýndi stuttar útgáfur af
annars vegar Litlu gulu hænunni og
hins vegarMjallhvíti.
„Þegar jólasveinaþjónustan lagð-
ist af vegna samkomutakmarkana
bjuggum við til vasaljósaleikhúsið
Ævintýri í Jólaskógi sem nú er sýnt í
Guðmundarlundi þriðju aðventuna í
röð,“ segir Anna Bergljót og bendir
á að útisýning með fáum áhorfend-
um hafi á tímum faraldurs verið
það eina sem var gerlegt. „Þar segja
fjórir íbúar Grýluhellis gestum sögu
auk þess sem nokkrir jólasveinar
slæðast um skóginn,“ segir Anna
Bergljót sem á umliðnum árum hef-
ur skrifað nýjar sögur fyrir íbúana
á hverri aðventu. „Í höfðinu á mér
er heimur þeirra því orðinn miklu
stærri en það sem stendur í litla
jólakverinu Jólin koma eftir Jóhann-
es úr Kötlum. Mér finnst frekar
auðvelt að stinga mér inn í þennan
heim og skrifa fyrir þessi hundrað
tröll, því mér finnst ég þekkja þau
svo vel,“ segir Anna Bergljót og
tekur fram að hún búist fastlega við
því að framhald verði á jóladagatali
Hurðaskellis og Skjóðu. „Ég er
sannfærð um að engin þjóð í heim-
inum á jafn skemmtilega jólahefð og
við,“ segir Anna Bergljót og fagnar
því hvað Ísland sé mikið jólaland
með öllum sínum jólaljósum sem
lýsi upp skammdegið.
„Það er mér síðan mikið gleðiefni
að geta upplýst að Leikhópurinn
Lotta getur frumsýnt nýja sumar-
sýningu í fullri lengd næsta sumar,“
segir Anna Bergljót og tekur fram
að ekki verði upplýst um innihald
verksins fyrr en á nýju ári. „Ég get
þó sagt að við munum heimsækja
Ævintýraskóginn og hitta fyrir
þekktar persónur úr erlendum
ævintýrum,“ segir Anna Bergljót
leyndardómsfull.
lÆvintýra- og fjölskyldukvikmyndin Jólamóðir frumsýnd annan í jólumlAnnaBergljót
Thorarensen skrifar handritið og aðstoðarGrýlu ímyndinnil„Mun ljúfari en við höldum“
„Stórskemmtileg ævintýramynd“
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
Leit Skjóða og Hurðaskellir þurfa að komast að því hvert allir hinir 98 íbúar hellisins hafa farið.
Anna Bergljót
Thorarensen
Tónskáldið Angelo Badalamenti látið
Bandaríska kvikmyndatónskáldið Angelo Badala-
menti er látið, 85 ára að aldri.Hollywood Reporter
hefur eftir frænku hans að tónskáldið hafi dáið af
náttúrulegum orsökum í faðmi fjölskyldunnar.
Badalamenti er þekktastur fyrir langt og gæfuríkt
samstarf við kvikmyndaleikstjórann David Lynch og
samdi meðal annars tónlistina við Blue Velvet, Twin
Peaks ogMulholland Drive. Þess utan samdi hann
lög sem hljóðrituð hafa verið af Ninu Simone, Nancy
Wilson og Shirley Bassey auk þess sem hann samdi
þemalag sumarólympíuleikanna í Barcelona svo fátt
eitt sé nefnt.
Angelo
Badalamenti