Morgunblaðið - 30.12.2022, Side 2
FRÉTTIR
Innlent2
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 2022
ÚRVAL ÚTSÝN 585 4000 WWW.UU.IS INFO@UU.IS
MADEIRA
EYJA HINS EILÍFA VORS
VERÐ FRÁ157.500 KR.
Verð á mann m.v. 2 fullorðna.
13.–20. APRÍL – 7 DAGAR – BEINT FLUG
Innifalið í verði: Beint flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, 7 nætur
á hóteli með morgunverði, íslensk fararstjórn.
Skíðaunnendur létu sjá sig í
Bláfjöllum þegar opnað var
Opið var í Bláfjöllum í gær í
fyrsta skipti í vetur. Mikil stemn-
ing var á svæðinu og hæglætis-
veður lék við skíðaunnendur. Það
eina sem virtist stríða skíða- og
brettafólki var snjóleysi, en
flestir létu það ekki á sig fá. Ný
stólalyfta, Drottning, var tekin í
notkun í fyrsta skipti. Önnur ný
stólalyfta, Gosi, var tilbúin en
jómfrúarferðin var ekki farin í
gær sökum slæms skíðafæris.
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Ljóst er að kostnaður við vetrarþjón-
ustu hjá Vegagerðinni fer langt yfir
áætlanir Vegagerðarinnar sem mið-
ast við kostnað á meðalvetri. Sama
á við um sveitarfélögin, að minnsta
kosti þau á Suður- og Suðvestur-
landi. Spá sem gerð var í nóvember
um heildarkostnað Vegagerðarinnar
á árinu hljóðaði upp á 5 milljarða
króna en fjárveiting er 3,8 milljarð-
ar. Akstur tækja sem annast vetr-
arþjónustu hefur verið miklu meiri
síðustu tvær vikur en í meðalári og
því ljóst að kostnaðurinn fer töluvert
meira fram úr áætlun á árinu en gert
var ráð fyrir áður en óveðurskaflinn
hófst.
Þegar litið er yfir árið sést að árið
hefur verið annasamt í vetrarþjón-
ustu hjá Vegagerðinni og sveitarfé-
lögum. Fyrri hluti ársins var mjög
snjóþungur, sérstaklega sunnanlands
en þar er sólarhringsþjónusta á
umferðarþyngstu vegunum sem
Vegagerðin ber ábyrgð á og mikill
kostnaður sem hlýst af því. Fyrri
hluti ársins var því mun kostnaðar-
samari en áætlanir um meðalvetur
gerðu ráð fyrir.
Haustið fór rólega af stað og fram
undir miðjan desember var akstur
tækja við snjómokstur og hálkuvörn
undir áætlunum fyrir haustið.
Kostar 12 milljónir á dag
Kostnaður við snjómokstur hjá
Reykjavíkurborg á árinu 2022 var
orðinn 970 milljónir í byrjun desem-
ber, áður en það byrjaði að snjóa.
Hjalti Jóhannes Guðmundsson,
skrifstofustjóri reksturs og umhirðu
borgarlandsins, segir ekki vitað um
heildarkostnað á árinu. Reikningar
fyrir snjómokstri síðustu daga ber-
ist ekki fyrr en eftir áramót. Hjalti
segir að áætla megi að stór dagur í
snjómokstri geti kostað borgina um
12 milljónir, með öllum fyrirvörum.
Ef það er raunin má áætla að kostn-
aðurinn síðustu tvær vikur sé nálægt
100 milljónum.
Fjárveiting til vetrarþjónustu borg-
arinnar er um 520 milljónir króna í
ár og ljóst er að sú áætlun er löngu
sprungin. Hjalti Jóhannes bendir á
að hægt sé að áætla fastan kostnað
við þennan lið en síðan hafi náttúran
sinn gang og ekki sé hægt að áætla
heildarkostnað með neinni vissu.
Miklu meiri akstur
Endanlegur kostnaður fyrir árið
liggur ekki fyrir hjá Vegagerðinni
enda eru tveir dagar til áramóta.
Kostnaðurinn skýrist ekki fyrr en
eftir áramót þegar búið verður að
taka saman vinnu aukatækja sem
fengin hafa verið til liðs við hefð-
bundin tæki síðustu daga.
Í venjulegu árferði aka hefðbund-
in tæki Vegagerðarinnar, það er að
segja vörubílar í snjómokstri og tæki
sem sinna hálkuvörn, um 1,5 millj-
ónir kílómetra. Vegagerðin áætlar
að 130 þúsund kílómetrar hafi verið
eknir aðeins síðustu tvær vikurnar
í desember og því orðið ljóst að ekið
verður talsvert lengra.
Síðustu tvær vikurnar hafa tækin,
sérstaklega á Suðurlandi og suðvest-
urhorni landsins, ekið langt umfram
það sem hefðbundið er, eða um 74
þúsund kílómetra í stað 40 þúsund
kílómetra. Á svæðinu frá Markar-
fljóti að Kirkjubæjarklaustri hafa
verið eknir um 7 þúsund kílómetrar
síðustu daga og tímabilinu ekki lok-
ið. Það er rúmlega fimmtungur af
heildarakstri mokstursbíla á þessu
svæði á heilum vetri.
Sólveig Gísladóttir, sérfræðingur
hjá Vegagerðinni, tekur fram í sam-
antekt sem unnin er fyrir Morgun-
blaðið, að inn í þessar tölur vanti öll
viðbótartæki sem hafa sinnt vetr-
arþjónustu síðustu daga, svo sem
hjólaskóflur, veghefla, snjóblásara
og jarðýtur.
lKostnaðaráætlanir Vegagerðar og borgar sprungnar
Snjómokstur langt
framúráætlunum
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Snjómokstur Það kostarmikla fjármuni að halda götum og vegum hreinum.
Loftför Landhelgisgæslunnar
(LHG) hafa aldrei farið í fleiri
útköll en á þessu ári. Í gær voru
þau orðin 299 samkvæmt bráða-
birgðatölum. Fyrra met var sett
árið 2018 þegar útköllin voru 278
talsins. Árið 2019 voru útköllin
219, 2020 voru þau 184 og í fyrra
sinnti þyrlusveitin 265 útköllum.
Árið sem nú er að renna sitt
skeið hefur verið tíðindaríkt í
starfi LHG og verkefnin verið
fjölbreytt og sum óvenju krefj-
andi, samkvæmt áramótaannál
á lhg.is.Annirnar hjá flugdeild
LHG eru eitt skýrasta dæmið um
það. Leitin að flugvélinni sem
fórst í Þingvallavatni með fjóra
innanborðs og aðgerðir til að
koma vélinni og hinum látnu á
land voru umfangsmikil verkefni.
LHG tók í notkun nýtt flugskýli
að hluta á árinu og varðskipin
sinntu fjölda verkefna svo nokk-
uð sé nefnt.
lÚtköllin eru orðin 299 það semaf er
Met í útköllum hjá
þyrlum LHG 2022
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Morgunblaðið/Óttar Geirsson
Þingvallavatn Landhelgisgæslan tók þátt í umfangsmikilli leit að lítilli
flugvél sem fórst í vatninu. Fjórir voru um borð og létust þeir allir.
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is SmartlandMarta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.