Morgunblaðið - 30.12.2022, Page 4

Morgunblaðið - 30.12.2022, Page 4
FRÉTTIR Innlent4 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 2022 ir hafi nýtt vindorku lengi. Gott sé að geta lært af reynslu annarra um það hvað hafi gengi vel og hvað miður. Eins þurfi að kortleggja möguleika á að byggja upp vindorkugarða á hafinu við landið. Að þessu sé unnið samhliða vinnu þriggja manna starfshóps sem gera muni tillögur um umhverfi vindorkunnar í sam- ræmi við stjórnarsáttmála ríkis- stjórnarinnar. Tillögurnar fara væntanlega til umræðu á Alþingi. „Ég finn að það er að komast aukinn þungi í umræðuna og sitt sýnist hverjum. Það liggur fyrir að okkur vantar aukna græna orku til að nota og uppfylla markmið í loftslagsmálum. Það er þverpólitísk samstaða um að nota græna orku en hin hliðina á þeim peningi er að hana þarf að búa til,“ segir ráðherra og bendir á að þótt landið sé stórt sé ekki sama hvar slík mannvirki eru sett niður. Mest sátt sé um að gera það á röskuðu landi og nágrenni við önnur mannvirki, til dæmis virkjanir, en einnig þurfi að hafa í huga aðra þætti, eins og sjónmengun. Guðlaugur telur að horfa þurfi til fleiri þátta við reglusetningu fyrir nýtingu vindorkunnar en gert er í ferli rammaáætlunar. „Það liggur fyr- ir að hvaða leið sem við förum verða leyfi fyrir vindorkugarði aldrei veitt án umræðu og vonandi verður búið þannig um hnútana að rödd þeirra sem næst búa heyrist. Ég tel mikil- vægt að nærumhverfið fái að njóta þess efnahagslega þegar vindorku- garðar rísa,“ segir Guðlaugur Þór. Vinna starfshóps sem ætlað er að undirbúa nýjar reglur um nýt- ingu vindorku gengur vel, að sögn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, umhverfis-, orku- og loftslagsráð- herra. Jafnframt er unnið að því í tveimur öðrum hópum að bera saman reglur í nokkrum öðrum löndum og kanna hvar hægt er að reisa vindorkuver á hafi. Ætlast er til að starfshópurinn skili tillögum í formi draga að lagafrumvarpi fyrir 1. febrúar. Nú er verið að undirbúa fjölda vindorkuvera, allt að 40 á mismun- andi stigum, eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær. Stöðugt bætast við áform en framkvæmdir stranda á því að stjórnvöld hafa ekki sett sér stefnu. Guðlaugur Þór bendir á að enginn hafi heimild til að fara í framkvæmdir, nema að undan- gengnu mati í rammaáætlun. Þess má geta að tveir vindorkugarðar Landsvirkjunar eru í nýtingarflokki rammaáætlunar, Búrfellslundur og Blöndulundur, en engir aðrir. Lands- virkjun undirbýr byggingu beggja vindorkugarðanna og hefur sótt um virkjanaleyfi fyrir Búrfellslund. Guðlaugur Þór segir að aðrar þjóð- lVinna við að undirbúa lagasetningu um nýtingu á vindorku sögð ganga vellTillögur væntanlegar lRáðherra vonast til að þannig verði búið um hnútana að rödd þeirra sem næst búa muni heyrast Nærumhverfið njóti ávinnings Guðlaugur Þór Þórðarson Helgi Bjarnason helgi@mbl.is HestöflVindmyllur gætu orðið hluti af landslagi Íslands. Tvísýnt um áramóta- brennur Vel gengur að hlaða bálkesti fyrir áramótabrennur í Reykjavík og undirbúningur er í fullumgangi. Stefnt er að því að brennur verði á tíu stöðumvíða umborgina, en mikil óvissa ríkir umhvernig veðrið verði á gamlárskvöld. Einar Skúlason, rekstrarstjóri austurhlutaReykjavíkurborgar, sagðist í samtali viðmbl.is í gær vonast til þess að veðurspáin yrði hagstæð enda væri búið að kalla út fjölda fólks til þess að sjá umbrenn- urnar á gamlárskvöld. Endanleg ákvörðun umþað hvort brennurnar fari framverður tekin aðmorgni gamlársdags, en vindhraðimánú að hámarki vera 10 m/s til þess að leyfilegt sé að kveikja í bálköstum. Samkvæmt spá á vef Veðurstofu Íslands verður breytileg átt á land- inu öllu, 5-15m/s. Ákvörðun um hvort brennurnar fari framverður tekin á gamlársdagsmorgun. Vel hefur gengið að hlaða bálkesti fyrir gamlársdag Morgunblaðið/Árni Sæberg Minningarathöfn um Örn Jóhanns- son, fyrrverandi skrifstofustjóra Árvakurs, fór fram í Hallgríms- kirkju í Reykjavík í gær. Séra Sigurður Árni Þórðarson flutti minningarorð og flutt voru tónverk eftir Wolfgang Amadeus Mozart, Richard Strauss, Franz Schubert, Georg Friedrich Händel og Johann Sebastian Bach. Davíð Þór Jónsson lék á píanó, Júlía Mogensen á selló, Tómas Guðni Eggertsson lék á orgel og Kristinn Sigmundsson söng. Minningarathöfn um Örn Jóhannsson Morgunblaðið/Árni Sæberg

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.