Morgunblaðið - 30.12.2022, Side 12

Morgunblaðið - 30.12.2022, Side 12
FRÉTTIR Viðskipti | Atvinnulíf12 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 2022 Ljósmyndir Rutar og Silju Skipholti 31 • 105 Reykjavík • Sími 568 0150 Opið virka daga 10-17 • www.rut.is • Ljósmyndir Rutar og Silju Um leið og við óskum ykkur gleðilegrar hátíðar viljum við þakka fyrir ánægjuleg viðskipti á árinu sem er að líða Rut og Silja Gleðilega hátíð Opnum aftur 2. janúar 30. desember 2022 Gjaldmiðill Gengi Dollari 142.76 Sterlingspund 172.5 Kanadadalur 105.77 Dönsk króna 20.426 Norsk króna 14.537 Sænsk króna 13.68 Svissn. franki 154.01 Japanskt jen 1.0681 SDR 190.13 Evra 151.9 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 184.6466 Allt um sjávarútveg Margir rætt samruna Ísfélagið er sem kunnugt er að mestu í eigu fjölskyldu Einars. Guð- björgMatthíasdóttir, móðir Einars, er stærsti eigandi félagsins. Það verður því ekki hjá því komist að spyrja Einar hvernig það horfi við fjölskyldunni að minnka eignarhlut sinn, annars vegar með fyrrnefndri sameiningu við Ramma og mögulega síðar með skráningu á markað. „Við erum afar stolt af rekstri Ísfé- lagsins í gegnum söguna, sem hefur ekki alltaf verið dans á rósum. Fé- lagið fagnaði 120 ára afmæli í fyrra og það er eðlilegt að það eigi sér stað einhverjar breytingar með tímanum. Félagið hefur alltaf verið að þróast og breytast á þessum 120 árum og það er eðlilegt,“ segir Einar. „Við erum hins vegar ekki að fara neitt og erum því spennt fyrir því að eiga hlut í sameinuðu félagi og fylgja því eftir á markað og í framtíðinni,“ bætir hann við. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins hafa fjölmargir aðilar innan sjávarútvegsins rætt um samruna sín á milli á undanförnum mánuð- um, hvort heldur í formi samruna eða sölu félaga. Í ólíkri vinnslu Ólafur H. Marteinsson, fram- kvæmdastjóri Ramma hf., segir í samtali við Morgunblaðið að félögin séu í ólíkri vinnslu. Bolfiskvinnsla sé uppistaðan í starfsemi Ramma en uppsjávarvinnsla uppistaðan í starf- semi Ísfélagsins „Við sjáum mikla möguleika í að með styrk þessa fé- lags getum við vaxið og tekist á við breytingar bæði innanlands og í al- þjóðlegri samkeppni,“ segir Ólafur. Hann segir fyrirtækin bæði vel rekin og þau vinni á ólíkum svæð- um. Tækifæri felist í að eflast á öllum sviðum. Ólafur segir að það hafi verið mat manna að fyrirtæki sem stæði á fleiri stoðum, þ.e. væri bæði öflugt í bolfiski og uppsjávartegundum, hentaði betur til skráningar á markað. Spurður um stærð hins nýja félags í samanburði við önnur sjávarútvegs- fyrirtæki segir Ólafur að stærðir séu jafnan nokkuð á floti af ýmsum ástæð- um, en miðað við að vera nálægt 8% í heildaraflahlutdeild eins og fyrr var nefnt, verði fyrirtækið eitt af fjórum til fimm stærstu félögum á landinu. Tilfinningar fylgja Spurður að lokumumhvort það hafi verið erfitt að sjá á eftir Ramma-nafn- inu, segir Ólafur að auðvitað hafi það verið erfitt. „Það fylgja þessu tilfinn- ingar,“ sagði Ólafur að lokum. Eins og segir í tilkynningu frá fé- lögunum gerir Ísfélag Vestmannaeyja hf. út fjögur uppsjávarskip, tvö bol- fiskskip og einn krókabát. Félagið er með starfsstöðvar í Vestmannaeyjum og á Þórshöfn og rekur frystihús og fiskimjölsverksmiðju á báðum stöð- um. Rammi hf. gerir út fjögur fiskiskip frá Fjallabyggð og Þorlákshöfn og starfrækir fiskvinnslu í Þorlákshöfn og rækjuverksmiðju í Fjallabyggð. Dótturfélög Ramma hf. eru sjávar- líftæknifélagið Primex hf., sem rek- ur kítósanverksmiðju á Siglufirði og Arctic Seafood Ltd. sem er sölufyr- irtæki Ramma í Bretlandi. Stærstu hluthafar sameinaðs fé- lags verða: ÍV fjárfestingarfélag ehf., Marteinn Haraldsson ehf., Gunnar Sigvaldason og Svavar Berg Magn- ússon ogmunu farameð samtals 83%. Stefán stýrir félaginu Ráðgert er samkvæmt tilkynn- ingunni að Stefán Friðriksson, núver- andi framkvæmdastjóri Ísfélags Vest- mannaeyja hf., stýri hinu sameinaða félagi með aðsetur í Vestmannaeyjum og Ólafur H. Marteinsson, núverandi framkvæmdastjóri Ramma hf., verði aðstoðarframkvæmdastjóri með að- setur í Fjallabyggð. Skrifað er undir samkomulagiðmeð fyrirvara um samþykki Samkeppnis- eftirlitsins og hluthafafunda. Stjórnir sjávarútvegsfyrirtækjanna Ísfélags Vestmannaeyja hf. og Ramma hf. í Fjallabyggð hafa skrifað undir samkomulag um samruna félaganna. Sameinað félagmun heita Ísfélagið hf. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins má ætla að núverandi eigendur Ísfélagsins muni eiga um 2/3 hluta í sameiginlegu félagi til móts við núverandi eigendur Ramma. Forsvarsmenn félaganna tveggja eru sammála um að mörg tækifæri séu fólgin í sameiningunni, m.a. til sóknarfæra og til að styrkja rekstr- argrundvöll þeirra til framtíðar. Heildaraflahlutdeild sameinaðs félags verður tæplega 8% af úthlutuðu afla- marki. Samanlögð velta félaganna var um 28 milljarðar króna á árinu 2021. Þreifingar á undanförnum mánuðum Aðspurður segir Einar Sigurðsson, stjórnarmaður í Ísfélaginu, í samtali við Morgunblaðið að óformlegar þreifingar hafi átt sér stað á milli fé- laganna á undanförnum mánuðum. Hann segir að niðurstaðan hafi verið sú að farsælt væri að sameina félögin. Ekki standi til að nokkur af núverandi hluthöfum félaganna selji hluti sína heldur renni félögin saman. „Þetta eru tvö burðug fyrirtæki sem verða enn sterkari við sameiningu,“ segir Einar og bætir við að í því felist mikil tækifæri. Stendur til að skrá sameinað félag á markað? „Stjórnir félaganna hafa tekið þá ákvörðun að stefna að skráningu. Það er ljóst að sameinað félag verði stærra, með breiðari hluthafahóp og vel hæft til skráningar. Auk þess að það gefur tækifæri til frekari vaxtar og fjárfestinga,“ segir hann. Tímasetning óráðin Spurður um tímasetningu skrán- ingar segir Einar að það liggi ekki fyrir enn sem komið er. Sameining félaganna taki tíma og sé háð sam- þykki eftirlitsaðila. Hann segist þó vona að skráning geti farið fram fyrr en síðar. Nú eru Ísfélagið og Rammi með starfsstöðvar á nokkrum stöðum á landinu, þar á meðal tvær á Suður- landi. Felast hagræðingarmöguleikar í sameiningunni? „Það er ekki markmiðið með sam- einingunni, enda eru bæði félög vel rekin fyrir. Það er því ekki sérstak- lega verið að horfa til hagræðingar að svo stöddu. Hins vegar eru fyr- irtæki í sjávarútvegi sem ætla að vera í fremstu röð alltaf að bæta og efla sinn rekstur sem kallar á miklar fjárfestingar,“ segir Einar. „Eins og ég nefndi áðan er fyrst og fremst verið að horfa til þess að sameina tvö vel stöndug félög í eitt. Bæði félögin byggja á traustum og gömlum grunni,“ bætir hann við. lStefna á skráningu á hlutabréfamarkaðlEignarhald verði dreifðaralHeildaraflahlutdeild sam- einaðs félags verður nálægt 8%lHeildarvelta á síðasta ári um 28milljarðar krónalVeruleg tækifæri Ísfélagið ogRammi sameinast Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson Sjór Skip Ramma, Sólberg, hefur landað afla fyrir rúma 7 ma. kr. á árinu, mest allra íslenskra togara frá upphafi. BAKSVIÐ Gísli Freyr Valdórsson Þóroddur Bjarnason

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.