Morgunblaðið - 30.12.2022, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 30.12.2022, Blaðsíða 13
FRÉTTIR Erlent 13 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 2022 Smiðjuvegi 34 • gul gata Kópavogi • biljofur@biljofur.is Viðgerðir // Bilanagreining // Varahlutir // Smurþjónusta Sérhæfð þjónusta fyrir Rótgróið fyrirtæki, starfrækt frá 1992 Tímapantanir 544 5151 biljofur.is Yfirvöld í Kænugarði sögðust hafa náð að skjóta niður allar eldflaugar sem Rússar skutu að borginni í gær. Rússar hafa einbeitt sér undanfarið að loftárásum á orkuinnviði Úkra- ínu og segja þær vera hefnd fyrir að Úkraínumenn hafi sprengt upp Kertsj-brúna sem tengir Rússland við Krímskaga. Þó eru vísbendingar um að farið sé að ganga á eldflaugabirgðir Rússa en því hafa rússnesk stjórnvöld hafnað. Sögðu Rússar á Telegram að þeir myndu aldrei klára birgðir sínar af Kalibr-eldflaugum. Á sama tíma og eldflaugum rigndi yfir Úkraínu var Vladimír Pútín Rússlandsforseti við athöfn þar sem m.a. kjarnorkudrifni kafbáturinn Alexander III var sjó- settur í beinni útsendingu. Stjórnvöld í Hvíta-Rússlandi lýstu því yfir í gær að þau hefðu skotið nið- ur flugskeyti frá Úkraínu um tíuleytið í gærmorgun í Brest-héraði, sem á landamæri að Úkraínu og Póllandi. Varnarmálaráðuneyti Úkraínu sagði að mögulega hefði verið um að ræða viljandi ögrun af hálfu Rússa til þess að draga Hvít-Rússa í átökin, en nýleg heimsókn Pútíns þangað gæti bent til þess. Einnig sögðu Rússar að her Úkraínu hefði gert aðra drónaárás á Engels-2-herflugvöllinn í Saratov-hér- aði í Rússlandi í gær, en þeim hefði tekist að skjóta loftskeytið niður og enginn hefði slasast. Í dag munu Pútín og forseti Kína, Xi Jinping, ræðast við í gegnum fjar- fundabúnað, en talið er að Pútín von- ist til að Rússar fái meiri stuðning úr austri. Rússneski herinn hóf gærdaginnmeð yfir hundrað loftárásum á fjölmörg héruð Úkraínu. Eldflaugum rigndi yfir höfuðborgina Kænugarð og borgirnar Karkív í austurhlutanum og Lvív í vesturhluta landsins, auk Odessa og Kerson í suðurhlutanum. Mestallt rafmagn fór af borginni Lvív og talið er að a.m.k. fimmmanns hafi særst við árásina. Óskar Hallgrímsson ljósmyndari sem býr í Kænugarði sagði að árásirn- ar þar hefðu hafist klukkan sex í gær- morgun. „Þetta er örugglega stærsta árásin hingað til. Þeir eru að skjóta frá skipum og kafbátum á Svartahafi og úr flugvélum,“ sagði Óskar í gær. Stærsta loftárásahrinan til þessa lÁrásir á stórborgirnar um allt landlLvív varð rafmagnslauslHvít-Rússar saka Úkraínumenn um loftáráslÖnnur drónaárás á Engels-2-herflugvöllinnlPútín ræðir við Xi Jinping, forseta Kína, í dag Dóra Ósk Halldórsdóttir doraosk@mbl.is AFP/Genya Savilov Kænugarður Björgunarmenn í rústum íbúðabyggingar í Kænugarði í gær. Rússar gerðu loftárásir á borgina og einnig á Kharkív og Lvív í fyrrinótt. Árið 2022 fer líklegast í sögubæk- ur Breta sem heitasta ár landsins frá því að mælingar hófust, sögðu veðurfræðingar nú þegar aðeins tveir dagar eru til áramóta. Árið hefur einkennst af hitabylgjum og rigning hefur verið í sögulegu lágmarki, eins og segja má um fleiri lönd Evrópu. Árið 2014 var hitamet sett þegar meðalhiti yfir árið var 9,88 gráður, en nú telja veðurfræðingar að það met verði slegið þegar gögn eru gerð upp í byrjun nýs árs. Frá árinu 1884 hafa tíu heitustu ár sögunnar öll verið eftir árið 2002 og núna í sumar fór hitinn í fyrsta skipti yfir 40 gráður í júlímánuði. Ann- að met var slegið í júlí í suður- hluta landsins, en aldrei hefur verið minni rigning en núna í sumar. Alla mánuði ársins 2022 hefur meðalhiti verið hærri en endranær nema núna í desember. Vegfarandi situr á bekk í Hampstead Heath og horfir yfir borgarlandslag Lundúnaborgar rétt fyrir sólarupprás í gærmorgun Heitasta árið í sögu Bretlands AFP/Justin Tallis Vilja skima alla ferðalanga frá Kína Kórónuveirufaraldurinn í Kína hefur vakið ugg heimsbyggðarinnar og hafa nokkur lönd þegar ákveðið að skima alla kínverska ferðalanga. Or- azio Schillaci, heilbrigðisráðherra Ítalíu, sendi bréf til Evrópuráðsins þar sem óskað er eftir samræmdum aðgerðum í álfunni. Áður en Ítalía tók ákvörðun um skimunina höfðu héraðsyfirvöld í Langbarðalandi á Ítalíu ákveðið að skima alla túrista frá Peking og Sjanghaí. „Í flugi frá Peking greindust 52% farþega með Covid,“ sagði Guido Bergolaso, starfsmaður heilbrigðisyfirvalda héraðsins, í dagblaðinu Corriere Della Sera. Í Bandaríkjunum, Japan og á Indlandi er nú óskað eftir skimunar- vottorði farþega frá Kína.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.