Morgunblaðið - 30.12.2022, Qupperneq 16
16 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 2022
Liðin eru 60 ár frá
heimsókn Davids Ben-
Gurion, forsætisráð-
herra Ísraels, til Ís-
lands. Árið áður, 1961,
heimsótti þáv. utanrík-
isráðherra Ísraels og
síðar forsætisráðherra,
Golda Meir, Ísland. Á
þessum tíma voru liðin
um 15 ár (nú um 75 ár)
frá því að Thor Thors,
f.h. Íslands, flutti fram-
sögu á fundi Sameinuðu þjóðanna
þess efnis að stofnað yrði Ísraelsríki.
Var stofnun Ísraelsríkis samþykkt
með yfirgnæfandi meirihluta
greiddra atkvæða.
Þann 13. september 1962 lenti flug-
vél Flugfélags Íslands á Reykjavík-
urflugvelli og fjölmenni var þar mætt
að kvöldi til fyrir framan flugvallar-
bygginguna. Forsætisráðherra Ís-
lands, Ólafur Thors, og eiginkona
hans, Ingibjörg Indriðadóttir, fögn-
uðu komu Davids Ben-Gurion og eig-
inkonu hans Paulu Ben-Gurion sem
og dóttur þeirra, dr. Renanu Ben-
Gurion Leshem.
Í ávarpi sínu sagði Ólafur Thors
m.a.:
„Með aðdáun hafa Íslendingar
fylgzt með einstæðu átaki hins nýja
Ísraelsríkis undir sterkri og glæsi-
legri forystu yðar. Íslenzku þjóðinni
er vissulega mikill heiður að komu yð-
ar.“
Réttarhöldunum yfir stríðsglæpa-
manninum Albert Eichman var ný-
lokið sama ár og aftakan afstaðin.
Haft var eftir Ben-Gurion á meðan
heimsókn hans stóð að engar líkur
væru á að slík réttarhöld yrðu haldin
á nýjan leik í Ísrael.
Í ávarpi Ben-Gurion þakkaði hann
fyrir sig og þjóð sína með eftirfarandi
orðum:
„Innilegt þakklæti fyrir heimboð
yðar til Íslands og þær vingjarnlegu
móttökukveðjur sem þér nú létuð
falla í okkar garð. Okkur er ánægja
að því að sækja heim land sem Ísrael
hefur átt svo vinsamleg samskipti við
frá því ríkið var endurreist 1948. Ég
færi yður alúðarkveðjur þjóðar okkar
og ríkisstjórnar.“
Aðeins um 6 ár skildu þessa tvo
merku forsætisráðherra að í aldri og
var íslenski sá yngri. En um hvað var
að tefla í alþjóðamálum á þessum
tíma og fyrir margt löngu þar á und-
an? Mikilvægt er að halda sögunni til
haga svo hún skolist ekki til.
David Ben-Gurion –
Uppvöxtur frelsishetju
David Ben-Gurion var síonisti,
fæddur í Póllandi, sem þá var undir
rússneskri keisarastjórn, árið 1886.
Móðir hans deyr úr blóðeitrun eftir að
hafa misst fóstur þegar hann er að-
eins 10 ára. Hann fæðist tvíburi en
bróðir hans lést skömmu eftir fæð-
ingu. Aðeins um 14 ára stofnar hann,
ásamt vinum sínum, ungliðahreyf-
inguna Ezra sem stuðlaði að því að
kenna hebresku og stefna að því að
flytja til Landsins helga. Árið 1904
flutti hann 18 ára til Varsjár og ári
síðar tekur hann þátt í stjórnmálabar-
áttu síonista og gerist sósíaldemó-
krati í Verkamannaflokki gyðinga þar
í landi, Poalei Zion.
Um tvítugt kemur David Ben-
Gurion fyrst til Landsins helga, þ.e.
árið 1906. Hann fékk vinnu sem dag-
vinnumaður þar sem hann beið hvern
morgun í von og óvon um að fá vinnu.
Samkeppnin var hörð
og þá sérstaklega fyrir
gyðinga sem kepptu við
þá sem fyrir voru á fleti,
buðu lægra og voru
meira inni í verkum
þess tíma. Þá var Land-
ið helga undir stjórn
Ottómanveldisins sem
ríkti á svæðinu og víðar
frá 1517 til 1917. Þarna
fær David Ben-Gurion
heiftarlega malaríu,
verður nánast hungur-
morða og er vart hugað
líf. Hann ritar á þessum
tíma bréf til Póllands, ákall þess efnis
að fólk væri að deyja úr hungri undir
stjórn soldánsins Abulhamid II.
Upplausn í Landinu
helga, óreiða og eymd
Í kjölfarið á miklu umróti og eymd
stefna gyðingar sér saman í Jaffa í
Landinu helga og stefna að sjálfstæðu
ríki gyðinga í þessu landi sem bar
heitið Palestína. Lögð var sérstök
áhersla á aðskilnað hagstjórnarkerfis
araba annars vegar og Ísraelsmanna
hins vegar. Við annað yrði ekki búið
enda mikil óreiða á allri stjórn efna-
hagsmála, undirboð og spilling sem
gat ekki gengið upp til lengdar. Þarna
hafði Tyrkinn Enver Pasa, einn að-
alkeppninautur frelsishetju Tyrkja,
Kemal Atatürk, tekið við stjórnar-
taumunum í Ottómanveldinu eftir að
keisaranum, Abulhamid II, hafði ver-
ið steypt af stóli 1909. Það var allt í
upplausn í Landinu helga.
Eftir að fyrri heimsstyrjöldin brýst
út í desember 1914 er David Ben-
Gurion búsettur í Jerúsalem og ræð-
ur um 40 gyðinga í sérstaka herdeild
sem berst við hlið hers Ottómanveld-
isins. Þrátt fyrir það var hann fluttur
til Egyptalands vorið 1915 og fer það-
an til Bandaríkjanna. Markmiðið var
að safna liði sem myndi berjast við
hlið Ottómanveldisins. Reyndist þetta
hin mesta Bjarmalandsför. Mest náð-
ust saman 3.000 meðlimir á fund og
þá helst á New York-svæðinu. Mál-
staðurinn hlaut engan stuðning og
fremur litla áheyrn. Meginmarkmiðið
var að endurreisa land gyðinga fyrir
botni Miðjarðarhafsins.
Árið 1918 gerðist David Ben-
Gurion hermaður í 38. herdeild (gyð-
ingaherdeild) breska hersins sem
hlaut þjálfun í Edward-herstöðinni í
Windsor í Nova Scotia. Síðar var
hann sendur til Egyptalands og það-
an til palestínska þorpsins Sarafand
al-Amar, nú innan Ísraelsríkis frá
árinu 1948 en var áður bresk herstöð.
Nú er ísraelska herstöðin Tzrifin IDF
staðsett þar sem áður var þetta þorp
og herstöð Breta.
Leiðtogi síonista
Síonistahreyfingin, hreyfing
Verkamannasíonista, klofnar eftir
andlát marxistans og kennismiðs
síonista, Ber Borochov, árið 1919.
David Ben-Gurion og vinur hans og
félagi, Berl Katznelson, höfðu leitt
miðjuhreyfingu þessarar verka-
mannahreyfingar. Þeir töldu sig til
hófsamari síonista og klufu sig frá og
stofnunuðu Ahdut HaAvoda með
David Ben-Gurion sem leiðtoga. Á
þessum tíma lýtur Palestína stjórn
Breta í umboði Þjóðabandalagsins,
forvera Sameinuðu þjóðanna. Ahdut
HaAvoda eru ein af þeim stjórnmála-
samtökum sem síðar runnu saman í
ísraelska Verkamannaflokkinn.
Uppreisn Palestínuaraba
Á árunum 1936 til 1939 hófu Palest-
ínuarabar uppreisnir gegn breskri
stjórn á svæðinu og árásir á gyð-
ingabyggðir innan Palestínu sem var
undir stjórn Breta í umboði Þjóða-
bandalagsins, forvera Sameinuðu
þjóðanna. Ottómanveldið hafði liðið
undir lok og nutu arabar á svæðinu
augljóslega ekki lengur verndar úr
þeirri átt. Mótaði David Ben-Gurion
og síonistar í kjölfarið, þ.e. árið 1920,
stefnuna er bar yfirskriftina Aðhaldið
(h. Hahavlagah) sem gyðingaher-
deildin Haganah, forveri ísraelska
varðliðsins í dag, tók upp og fylgdi allt
til 1948. Markmiðið var að standa
vörð um byggðir gyðinga og tryggja
öryggi. Að öðrum kosti var ekki hægt
að byggja upp eftir stríðið, þróa land-
ið, stunda og skapa vinnu, verslun og
viðskipti.
Á þessum tíma hafði gyðingum í
Palestínu fjölgað á tímum Breta þar
úr því að vera 57.000 í 320.000 árið
1935. Gyðingar höfðu keypt mikið
land og höfðu það að markmiði að
stofna ríki gyðinga á svæðinu, rækta
þar upp land og lýð. Endurreisn lands
gyðinga var í bígerð. Reyndar höfðu
átök á milli araba og gyðinga verið tíð
frá árinu 1920. Morð á tveimur gyð-
ingum á þessum tíma stigmagnaði
þessi átök. Sá neisti varð til að gyð-
ingar myrtu tvo palestínska verka-
menn og síðan hafa átök verið á víxl
allt til dagsins í dag.
David Ben-Gurion taldi ótta araba
helst beinast að vexti og velgengni
gyðinga á efnahagslega sviðinu mun
fremur en að óttinn stafaði af fjölgun
gyðinga á svæðinu og tilvist síonista
sem Bretar virtust vera hliðhollir.
Heimsókn í hús
frelsishetjunnar
Hús David-Ben Gurion og Paulu
Ben-Gurion er númer 17 við David
Ben-Gurion breiðgötuna í Tel Aviv í
Ísrael. Þetta er tveggja hæða stíl-
hreint hús, ekki ósvipað Funkis-stíl
þeim sem Ólafur Thors fór eftir við
byggingu eigin íbúðarhúss við Garða-
stræti 41 í Reykjavík árið 1930.
Óhætt er að segja að íburðurinn hafi
ekki truflað þau hjónin í Tel Aviv en
þarna bjuggu þau frá 1931 til ársins
1973.
Greinarhöfundur kom við nú á
haustdögum og sá að Ísraelsmenn
vernda vel þá muni og þau verk sem
þeirra fyrsti forsætisráðherra skildi
eftir sig. Á fyrstu hæð er eldhúsið
með gamalli Kitchen Aid-hrærivél og
hefðbundnum svörtum skífusíma.
Innréttingar innbyggðar í stíl við þær
sem ég man eftir í ibúðum við Hring-
braut í Reykjavík. Ljósblár litur, hóg-
værð í efnisvali og fjölskylduvænt eld-
húsið minnti mig þó helst á eldhúsið
hennar ömmu í Austurhlíð. Þar var
reyndar ekki skífusími fyrr en sjálf-
virki síminn kom.
Sá ég að rúmin voru ekki tvíbreið
heldur einbreið og innti ég safnstjór-
ann eftir því hverju sætti. Kom í ljós
að Renana, dóttirin, svaf á 1. hæð og
hjónin hvort í sínu rúmi og hvort í
sínu herberginu á 2. hæð. Bókasafnið
á 2. hæð er nokkuð sem maður gleym-
ir ekki. Þétt og yfirgripsmikið safnið
var skreytt gjöfum héðan og þaðan.
Gjafir frá þjóðarleiðtogum um heim
allan mátti sjá um allt hús og lýsir það
þeirri virðingu sem margar þjóðir og
þjóðhöfðingjar heims sýndu og sýna
enn þessu nýstofnaða ríki gyðinga.
Orð og efndir
Eftir þessa heimsókn standa þó
eftir áleitnar setningar sem taka
mátti innrammaðar þegar gengið var
um þetta stílhreina hús. Þetta eru
áhrifamiklar tilvitnanir í orð Davids
Ben-Gurion sem verðugt er hverju
smáríki að hafa í huga þegar kemur
að því að standa vörð um sjálfstæði
þess. Hér koma þýðingar á því sem
bar fyrir augun.
„Í aldir hafa gyðingar spurt þess í
bænum sínum: Mun einhvern tíma
verða til ríki fyrir þjóðina? Enginn
hafði nokkurn tíma ímyndað sér
þessa ógnvekjandi spurningu: Mun
vera til þjóð fyrir ríkið, verði til þess
stofnað?“
„Enginn einn einstaklingur ákveð-
ur örlög ríkis og þjóðar þess. Það er
enginn einstaklingur ómissandi. Ör-
lög ríkis eru háð þjóðinni, karakter
hennar, getu, hæfileikum hennar,
sjálfstrausti, hennar persónulegu og
almennu ábyrgð.“
Það er ekki að ástæðulausu að
þessi orð spretta fram hjá baráttu-
manni eins og David Ben-Gurion og
mynda þessar setningar. Við Íslend-
ingar getum í mörgu nú lært af Ísr-
aelsmönnum ef ætlunin er á annað
borð að vernda þjóðareinkenni okkar,
tungu, menningu og sál. Verði það
ekki gert verður ekki aftur snúið og
hugsanlega orðið of seint.
David Ben-Gurion starfaði sem for-
sætisráðherra frá endurreisn Ísraels-
ríkis 1948 til ársins 1954 og 1955 til
1963. Hann lést 1. desember 1973 og
skilur eftir sig merka arfleifð. Rétt er
að líta til þessarar sögu og baráttu nú
á tímum mikilla fólksflutninga þar
sem þjóðir verða að standa í fæturna
hvað sín eigin málefni varðar, sjálf-
stæði, tungu og menningu. Það verð-
ur ekki auðvelt en auðveldast er að
gera ekki nokkurn skapaðn hlut, láta
reka á reiðanum og glata því sem
áunnist hefur, sjálfstæðinu og þannig
þjóðinni.
„Í Ísraelsríki munu gyðingar ekki
hafa nokkur einustu réttindi sem
aröbum er neitað um.“ (David Ben-
Gurion)
Eignumst við þjóðin eigið land?
Sveinn Óskar
Sigurðsson
» Greinarhöfundur
kom við nú á haust-
dögum og sá að Ísraels-
menn vernda vel þá
muni og þau verk sem
þeirra fyrsti forsætis-
ráðherra skildi eftir sig
Sveinn Óskar
Sigurðsson
Höfundur er fréttaritari Morgun-
blaðsins. BA í hagfræði og heimspeki,
MBA og MSc í fjármálum fyrirtækja.
Fjármálaráðgjafi.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
David Ben-Gurion, forsætisráðherra Ísraels, Ólafur Thors og Matthías Jo-
hannesen.
David Ben-Gurion, forsætisráðherra Ísraels, sést hér í Hveragerði ásamt
Ólafi Thors forsætisráðherra og fleira fólki.