Morgunblaðið - 30.12.2022, Síða 27
„Þetta er stórkostlegt og þvílíkur
heiður,“ sagði Ómar Ingi Magn-
ússon, íþróttamaður ársins, í
samtali við Morgunblaðið eftir
að hann hlaut viðurkenninguna
annað árið í röð. „Þetta er aðeins
öðruvísi í ár og ég átti alveg von
á þessu, eða ég vissi allavega að
þetta gat gerst. Ég er samt stoltur
og ánægður,“ bætti Ómar við.
Hann varð markahæstur allra
á EM í Ungverjalandi í janúar, er
Ísland hafnaði í sjötta sæti, og var
í lykilhlutverki hjá Magdeburg,
sem varð þýskur meistari og
heimsmeistari félagsliða á árinu.
Hann var m.a. valinn besti leik-
maður þýsku 1. deildarinnar.
„Það eru nokkrir hlutir sem
standa upp úr á þessu ári. Mér
fannst janúar gefa mikið þegar
kemur að alls konar framtíðar-
hugsunummeð landsliðinu. Það
gaf okkur í landsliðinu orku og
hjálpaði okkur að átta okkur á því
hvað við getum. Þessir tveir titlar
meðMagdeburg voru svo ánægju-
legir og þá sérstaklega deildartit-
illinn,“ sagði Selfyssingurinn.
Hann er aðeins 25 ára og ætlar
sér enn lengra. „Ég er bara 25 ára
og það er nóg eftir, ég tel mig eiga
mitt besta eftir,“ sagði Ómar en
viðtalið í heild er á mbl.is.
Er stoltur og
ánægður
Morgunblaðið/Hákon
Stoltur Ómar Ingi Magnússon tek-
ur stoltur við verðlaununum í gær.
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 2022
Ljósmynd/Skúli B. Sigurðsson
Frábær Dedrick Deon Basile lék frábærlega með Njarðvík, skoraði 29 stig
og átti 16 stoðsendingar. Hér fer hann fram hjá Keflvíkingnum Eric Ayala.
Þetta er annað árið í röð sem Þórir
hlýtur þennan titil og í fimmta skipt-
ið sem hann er í hópi þriggja efstu í
kjörinu en norska kvennalandsliðið í
handknattleik hélt áfram sigurgöngu
sinni undir hans stjórn og varð
Evrópumeistari nú í desember.
Þetta er í fimmta sinn sem Noreg-
ur verður Evrópumeistari kvenna
undir stjórn Þóris og samtals hefur
það fengið níu gullverðlaun á stór-
mótum frá því Þórir tók við liðinu
árið 2009.
Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari
karlaliðs Vals í handknattleik,
hafnaði í öðru sæti í kjörinu en jafnir
í þriðja og fjórða sæti urðu Guð-
mundur Þ. Guðmundsson, þjálfari
karlalandsliðsins í handbolta, og
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari
karlaliðs Breiðabliks í fótbolta, jafnir
að stigum.
Valsmennmeð lið ársins
Meistaraflokkur karla í hand-
knattleik hjá Val var kjörinn lið
ársins 2022 en þetta er einnig í ell-
efta sinn sem slíkt kjör fer fram hjá
Samtökum íþróttafréttamanna.
Valsmenn unnu alla titla sem í
boði voru á keppnistímabilinu 2021-
22 en þeir urðu Íslandsmeistarar,
bikarmeistarar og deildarmeist-
arar. Þá hafa þeir staðið sig vel í
Evrópudeildinni í vetur og eiga góða
möguleika á að komast þar áfram úr
sínum riðli og í sextán liða úrslitin.
Þetta er aðeins í annað sinn á
ellefu árum sem félagslið hlýtur
þennan titil en kvennalið Vals í körfu-
bolta varð efst í kjörinu árið 2019.
Karlalandslið Íslands í hand-
knattleik hafnaði í öðru sæti í kjörinu
og kvennalandslið Íslands í fótbolta
varð í þriðja sæti.
Morgunblaðið/Hákon
Íþróttamaður ársins Ómar Ingi Magnússon með verðlaunagripinn í Hörpu í gærkvöld en hann tók við honum annað árið í röð.
Morgunblaðið/Hákon
Bestur Þórir Hergeirsson, sem var kjörinn þjálfari ársins 2022, var í
beinni útsendingu í Hörpu frá heimili sínu í Noregi.
Morgunblaðið/Hákon
Bestir Valsmennirnir Stiven Tobar Valencia, Arnór Snær Óskarsson og
Alexander Júlíusson mættu á sviðið og tóku við verðlaunumVals.
Guðrún Arnardóttir frjáls-
íþróttakona var í gærkvöld tekin
inn í Heiðurshöll ÍSÍ í hófi Samtaka
íþróttafréttamanna í Hörpu í Reykja-
vík. Guðrún náði langt í 400 metra
grindahlaupi á stórmótum á árunum
1997 til 2000 þegar hún varð fjórða á
Evrópumóti, níunda á heimsmeistara-
móti og svo sjöunda á Ólympíuleik-
unum í Sydney árið 2000 en það var
lokamót hennar á ferlinum. Guðrún er
24. íþróttamaðurinn og fjórða konan
sem tekin er í Heiðurshöll ÍSÍ frá
stofnun hennar árið 2012.
Omar Sowe, knattspyrnumaður
frá Gambíu, hefur samið við Leikni í
Reykjavík um að leika með liðinu í 1.
deildinni á næsta tímabili. Sowe er
22 ára framherji og skoraði tvö mörk
í 17 leikjum fyrir Íslandsmeistara
Breiðabliks í ár en hann var í láni hjá
Kópavogsliðinu frá New York Red Bulls
í Bandaríkjunum.
Arnar Þór Viðarsson, þjálfari ís-
lenska karlalandsliðsins í knattspyrnu,
hefur bætt Bjarna Mark Antonssyni í
leikmannahóp liðsins semmætir Sví-
þjóð og Eistlandi í vináttulandsleikjum
á Algarve í Portúgal 8. og 12. janúar.
Bjarni er 27 ára miðjumaður Start í
Noregi og hefur leikið tvo A-landsleiki.
Austurríski skíðakappinnMatthias
Mayer hefur tilkynnt að hann sé
búinn að leggja skíðin á hilluna eftir
farsælan feril, 32 ára að aldri, þar
sem hann vann m.a. þrjú ólympíugull.
Mayer vann til gullverðlauna í bruni
á Vetrarólympíuleikunum í Sotsjí í
Rússlandi árið 2014. Hann vann svo til
gullverðlauna í risasvigi á leikunum í
Pyeongchang í Suður-Kóreu árið 2018
og varði titil sinn í greininni á leikun-
um í Peking í Kína í upphafi þessa árs.
Rúnar Alex Rúnarsson, landsliðs-
markvörður í knattspyrnu, lagði upp
mark fyrir lið sitt Alanyaspor í sigri á
Kayserispor, 3:1, í tyrknesku úrvals-
deildinni í fyrrakvöld. Rúnar átti þá
langa sendingu á kantmanninn Yusuf
Özdemir sem komAlanyaspor í 2:0.
Andrew Robertson, vinstri bakvörð-
ur Liverpool, er orðinn stoðsendinga-
hæsti varnarmaðurinn í sögu ensku
úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu.
Robertson lagði upp sitt 54. mark
þegar Liverpool vann Aston Villa 3:1
á mánudaginn og fór þar með fram
úr Leighton Baines sem lagði upp 53
mörk fyrir Everton. Robertson náði
þessu í 231 leik en Baines lék 420 leiki
í deildinni.
Leicester City verður áfram án lykil-
manns síns, James Maddison, þegar
liðið sækir Liverpool heim í ensku
úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.
Maddison missti af HMmeð enska
landsliðinu vegna meiðsla í hné og er
ekki orðinn leikfær.
Tryggvi Snær Hlinason, landsliðs-
maður í körfuknattleik,
élagsmet hjá
nu, Zaragoza,
kvöld. Hann
á sex skot í
m ósigri gegn
stórliði Barcle-
ona, 63:68,
í spænsku
ACB-deildinni
en slíkt hefur
enginn áður gert
num og sama
með liðinu.
ggvi tók auk
ss átta fráköst
skoraði sex stig í
um.
setti f
liði sí
í fyrra
varði þ
naumu
í ei
leik
Try
þe
og
leikn