Morgunblaðið - 30.12.2022, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 30.12.2022, Qupperneq 28
MENNING28 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 2022 Dekton er algjörlega öruggt gagnvart blettum svo sem kaffi, rauðvíni, sítrus og ryði. Dekton þolir að það slettist á það Blettaþolið SýruþoliðHögg- og rispuþolið Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is HÁTT HITAÞOL Rúmlega 60% Dana eiga erfitt með að greina á milli frétta og kostaðrar umfjöllunar. Aðeins 17% svarenda segja að aðvelt sé að greina þar á milli. Þetta kemur fram í nýrri könnun semMega- fon gerði fyrir danska dagblaðið Politiken. Könnunin var gerð í framhaldi af harðri gagnrýni sem sjónvarpsstöðin TV2 hefur sætt eftir að hafa boðið fyrirtækjum í ferðaþjónustu að vera með kostaða umfjöllun á stöðinni. Fjölmiðlafræðingar benda á að aukin notkun danskra dagblaða á kostaðri umfjöllun geti dregið úr trúverðugleika miðlanna með alvarlegum afleiðingum. Lögum samkvæmt ber fjölmiðl- um að merkja kostaða umfjöll- un í upphafi greinar, en það er að mati Marks Blach-Ørsten, prófessor í fjölmiðlafræði við háskólann í Hróarskeldu, ekki nóg. „Vandamálið er að þegar fólk les á snjalltækjum skrunar það hratt áfram og tekur síður eftir því hvernig greinar eru merktar,“ segir Blach-Ørsten. „Raunveruleikinn er sá að almenningur á afar erfitt með að greina kostaða umfjöllun frá fréttum, sem kemur niður á trúverðugleika fjölmiðla,“ segir Jan Dyberg Larsen, lektor hjá Blaðamannaháskóla Danmerkur og kallar eftir umbótum. Í grein Politiken er bent á að kostaða umfjöllunin er oft á tíðum unnin af fólki innan fjölmiðlanna sjálfra sem áður starfaði sem blaða- menn. Markmiðið sé beinlínis að kostaða umfjöllunin líkist frétt- um, en með því móti eigi lesendur erfiðara með að greina að verið sé að reyna að selja þeim eitthvað. l Fréttir og kostuð umfjöllun Óljós skil vega að trúverðugleika Ljósmynd/Skjáskot af vef Politiken Dæmi úr PolitikenKostaða efnið er merkt með bláum borða. Við fyrstu sýn virðist fjallað um umferðar- öryggi en við nánari skoðun sést að markmiðið er að selja lesendum hjálm frá tilteknu fyrirtæki. „Mottóið hefur alltaf verið að spila bara það sem okkur finnst skemmti- legt og gaman er að takast á við,“ segir Bjarni Frímann Bjarnason sem stjórnar kammersveitinni Elju á áramótatónleikum sveitarinnar sem haldnir verða í Norðurljósum í Hörpu í kvöld kl. 20. Að þessu sinni skipa sveitina 34 hljóðfæraleikarar sem flytja verkin í misstórum samsetningum. Á efnisskránni eru Entracte eftir Caroline Shaw, frum- flutningur á antigravity – gravity eftir Gunnar Andreas Kristinsson, harmóníku- konsert eftir Finn Karlsson og sinfónía nr. 3 eftir Franz Schubert. Einleikari á harmóníku er Jónas Ásgeir Ásgeirsson. Leiftrandi æskufjör „Verkið antigravity – gravity eftir Gunnar Andreas var skrifað sér- staklega með Elju í huga og harm- óníkukonsertinn pantaði Jónas,“ segir Bjarni Frímann og rifjar upp að Elja hafi náð að frumflytja konsertinn á tónleikum í Skaga- firði sumarið 2020, daginn áður en öllu var aftur skellt í lás vegna samkomutakmarkana í tengslum við heimsfaraldurinn. „Bæði harmóníkukonsertinn og Entracte, sem er tilbrigði við menúett, voru á efnisskrá okkar það sumarið, sem var mjög metnað- arfull. Við náðum hins vegar aðeins að halda þessa einu tónleika og því er gaman að fá loksins tækifæri til að leyfa fleirum að heyra. Við tókum verkið upp í janúar fyrir plötuna hans Jónasar,“ segir Bjarni Frímann og bendir á að verkið sé burðarstykki á plötunni Fikta sem Jónas Ásgeir gaf nýverið út hjá dönsku plötuútgáfunni Dacapo Records. Í viðtali Morgunblaðsins við Jónas Ásgeir fyrr í þessum mánuði sagði hann útgáfuna vera tímamót í íslenskri tónlistarsögu þar sem konsert Finns væri fyrsti íslenski harmóníkukonsertinn sam- inn fyrir Íslending. „Eftir hlé leikum við sinfóníu nr. 3 eftir Franz Schubert. Hann var yngri en við öll í hljómsveitinni þegar hann samdi þetta, því hann var aðeins 17 ára. Verkið er fullt af leiftrandi æskufjöri og græskulausri gleði þar sem geislar af hverjum tóni. Verkið skapar gott mótvægi við verkin fyrir hlé sem krefjast meira af hlustendum. Það er annars konar núvitund hjá Schubert, sem er skemmtilegt að takast á við, því þetta eru mjög margar nótur að spila. Tónleikagestir fá að minnsta kosti ansi margar nótur fyrir peninginn,“ segir Bjarni Frímann kíminn og tekur fram að sinfónían sé sennilega aðgengilegasta verkið á efnisskránni. „Raunar er það svo að mjög mikið af þeirri tónlist sem skrifuð er í dag er aftur orðin aðgengilegri þótt hún sé á sama tíma nýstárleg og frum- leg. Það er eins og tónskáld setji sig minna í stellingar. Þess er kannski heldur ekki vænst af tónskáldunum að þau setji sig í þessar lærðu stell- ingar, sem flæmdi sennilega marga hlustendur frá því sem var kallað nútíma- eða samtímatónlist fyrr á árum. Það er ekki lengur þessi krafa um að tónskáld ryðji nýjar brautir heldur geta þau meira gert það sem þeim býr í brjósti.“ Náð að spila mikið sem hópur Nú í desember eru fimm ár liðin frá því Elja hélt sína fyrstu tónleika. „Mér finnst í raun ótrúlegt að við séum ekki búin að starfa lengur saman miðað við hvað við höfum náð að spila mikið sem hópur,“ segir Bjarni Frímann. Rifjar hann upp að margir meðlima Elju hafi stundað saman nám við Tónlistar- skólann í Reykjavík og Listaháskóla Íslands áður en þeir héldu í frekara háskólanám. „Við stofnuðum sveitina til að hafa tækifæri til að starfa saman,“ segir Bjarni Frímann og bendir á að markmið sveitarinnar hafi ávallt verið að bjóða upp á kraftmikinn tónlistarflutning og takast á við allar þær stefnur og form sem hljóðfæraleikararnir leitast við að túlka. Mörg þeirra sem leika með Elju hafa á síðustu árum komið fram sem einleikarar og starfað með hljómsveitum víða í Evrópu og Bandaríkjunum, ýmist við spila- mennsku eða hljómsveitarstjórn. Þess má að lokum geta að miðar fást á tix.is, harpa.is og í miðasölu Hörpu. l KammersveitinEljameð áramótatónleika íNorðurljósum íHörpu í kvöld l „Gamanað fá loks tækifæri til að leyfa fleirumaðheyra“ segir stjórnandinn „Geislar af hverjum tóni“ Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Bjarni Frímann Bjarnason Núvitund „Tónleikagestir fá að minnsta kosti ansi margar nótur fyrir peninginn,“ segir Bjarni Frímann Bjarnason stjórnandi um sinfóníu nr. 3 eftir Franz Schubert sem er á efnisskrá kammersveitarinnar Elju í kvöld. Plata Beyoncé best hjá The Guardian Platan Re- naissance úr smiðju Beyoncé er að mati tónlistargagn- rýnenda breska dagsblaðsins The Guardian besta plata ársins 2022, en listinn nær yfir 50 plötur. Næst á listanum koma plöturnarMrMorale & the Big Steppersmeð Kendrick Lamar, Dawn FMmeð TheWeeknd, Crashmeð Charli XCX ogMotom- amimeð Rosalía. Platan Foss- orameð Björk lendir í 35. sæti listans. Beyoncé Bjóða í smiðju í gerð áramótahatta Hattagerðarmeistararnir Anna Gulla og Harper, sem hafa síðustu mánuði verið með opna vinnu- stofu í Hönnunarsafni Íslands, Garðatorgi 1 í Garðabæ, bjóða í dag, föstudag, kl. 13 til 15 upp á smiðju í gerð áramótahatta. Aðal- lega verður unnið með pappír við gerð hatta þátttakenda, efniviður í gleðskapshöfuðfötin verður á staðnum og þátttakan ókeypis. Vinnustofu Önnu Gullu og Harpers, sem starfa undir nafninu HAGE, er að ljúka í Hönnunarsafninu. Þau eru meist- arar í hattagerð, starfa bæði í Svíþjóð og í Reykjavík og sérhæfa sig í að hanna og sérsaumaðan fatnað og fylgihluti úr náttúru- legum efnum. Í Hönnunarsafninu hafa þau unnið að gerð hatta með nýmóðins og hefðbundnum hand- verksaðferðum í bland. Hattagerð Anna Gulla og Harper eru með vinnustofu í Hönnunarsafninu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.