Morgunblaðið - 30.12.2022, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 30.12.2022, Qupperneq 32
Í lausasölu 822 kr. Áskrift 8.880 kr. Helgaráskrift 5.550 kr. PDF á mbl.is 7.730 kr. iPad-áskrift 7.730 kr. Sími 569 1100 Ritstjórn ritstjorn@mbl.is Auglýsingar augl@mbl.is Áskrift askrift@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 364. DAGUR ÁRSINS 2022 MENNING Sígild jól í Seltjarnarneskirkju Tónleikar undir yfirskriftinni Sígild jól verða haldnir í Seltjarnarneskirkju í kvöld kl. 20. Fram koma Gissur Páll Gissurarson tenór, Þóra Einarsdóttir sópran, Sigríður Ósk Kristjánsdóttir messósópran, Ólöf Sigursveinsdóttir á selló og Lenka Mátéova á orgel og flygil. Á efnisskránni eru m.a. Nella fantasia eftir Morricone, Ave Maríur eftir Sigvalda Kaldalóns og Gomez, dúettinn Pie Jesu eftir Webber, Blómadúettinn eftir Delibes, Ó helga nótt eftir Adams, Hátíð fer að höndum ein og Heims um ból sungið í útsetningu fyrir tvær söngkonur. ÍÞRÓTTIR Valsmenn eru einir á toppnum Valsmenn náðu í gærkvöld tveggja stiga forskoti á toppi úrvalsdeildar karla í körfubolta með því að sigra Tindastól í framlengdum leik á Sauðárkróki. Á meðan töpuðu Keflvíkingar fyrir grönnum sínum í Njarðvík og duttu niður í annað sætið. KR tapaði sjöunda leiknum í röð, gegn Stjörnunni, og situr fast á botni deildarinnar en Höttur gerði góða ferð í bæinn og lagði ÍR-inga.» 26 Gleðilegt Allt fyrir góðan svefn og betri heilsu Starfsfólk Svefns & heilsu óskar landsmönnum öllum gleðilegs nýs árs og þakkar öll viðskiptin á líðandi ári. Á árum áður þótti víða mikil veg- semd að vera kúasmali og á árunum 1950 til 1960 leiddi Guðmundur Pétursson hóp slíkra drengja hjá Jóni Guðmundssyni, stórbónda á Suður-Reykjum í Mosfellssveit. Piltarnir hafa hist reglulega frá um 1980, meðal annars í árlegum útreiðartúrum frá 1982 til 2019, en hlé varð á hittingum vegna Covid. Þráðurinn var tekinn upp fyrir skömmu og var það mikill fagnaðar- fundur. „Mætingin var 100% eins og yfirleitt hefur verið hjá okkur,“ segir yfirkúasmalinn. Strákarnir fæddust á árunum 1946 til 1952 og er Guðmundur, bróðursonur Jóns á Reykjum, aldursforsetinn. Í hópnum eru einnig frændur hans, Sveinn Sveinsson, Örn Andrésson, Guð- mundur Jónsson, Jóhann Kristján Ragnarsson og bræðurnir Ragnar og Atli Árnasynir. Enn fremur bræðurnir Gunnar og Kristinn Magnússynir frá Reykjabraut. „Ég var í sveit á Reykjum á sumrin frá því ég man eftir mér og þegar ég var níu ára var ég ráðinn kúarektor og fékk laun,“ rifjar Guðmundur upp. „Strákarnir hjálpuðu mér í skyldustörfum mínum og við lékum okkur saman í frístundum.“ Jón á Reykjum gaf tóninn Jón á Reykjum var ekki að- eins stórbóndi og frumkvöðull í alifuglarækt heldur líka mikill félagsmálamaður og virkur í íþróttahreyfingunni. „Við vorum mikið í íþróttum undir handleiðslu Jóns bónda, sérstaklega í fótbolta og frjálsum,“ segir Guðmundur. Jón bóndi hafi meðal annars fengið veghefil til að að ýta vallarstæði á Melunum norðan við Reykjaveginn og sett upp mörk, en að auki hafi verið grimmt æft á flötinni neðan við Reyki. Tvisvar í viku hafi Jón farið með strákana niður á Tungu- bakka á æfingu hjá Aftureldingu. Knattspyrnufélag Reykjahverfis, KRH, hafi verið stofnað og keppt hafi verið við Reykjalundarstrák- ana, sem hafi kallað sitt félag Íþróttabandalag Reykjalundar, ÍBR. „Við vorum heldur sterkari í fótbolt- anum en jafnræði var með liðunum í frjálsum.“ Kúasmalarnir kynntust vel hestamennsku og fyrir um 40 árum ákváðu þeir að fara saman í reiðtúr frá Reykjum að minnsta kosti einu sinni á ári. „Þetta voru yfirleitt um fjögurra til sex tíma túrar en þrisvar fórum við í tveggja daga túra, tvisvar á Þingvöll og einu sinni frá Búðum á Snæfellsnesi,“ segir Guðmundur. Þeir hafi samt ákveðið að hætta að ríða út, þegar komið hafi verið á áttræðisaldur- inn, en ákveðið að halda áfram að hittast, meðal annars í skúrnum hjá Reykjabrautabræðrunum. „Heilsufarið er almennt gott hjá okkur og félagsskapurinn er skemmtilegur enda hefur hann varað í áratugi,“ segir Guðmundur og gerir ráð fyrir að hópurinn verði næst kallaður saman á vordögum. lStofnuðu íþróttafélag og kepptu í fótbolta og frjálsum Síungir kúasmalar minnast góðra tíma Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Í vetur Frá vinstri: KristinnMagnússon, Guðmundur Pétursson, Jóhann Kristján Ragnarsson, Atli Árnason, Örn Andrésson, Ragnar Árnason, Sveinn Sveinsson, Guðmundur Jónsson og Gunnar RúnarMagnússon. Á Þingvöllum 2008 Frá vinstri: Sveinn, Atli, Gunnar Rúnar, Guðmundur Jónsson, Jóhann Kristján, Guðmundur Pétursson, Kristinn og Örn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.