Víkurfréttir - 23.05.2022, Side 10
NÁMSGÖGN
– FRÁ ALLSLEYSI TIL OFGNÓTTAR
Í tíunda þætti var sagt frá kristin-
dóms- og stafrófskverum fyrir
stofnun barnaskóla en útgáfa þeirra
fór að blómstra um 1800. Þá er farið
að gefa út fræðslurit og einhver
þeirra hafa nýst barnaskólum. Dæmi
um það er Lestrabók handa alþýðu
á Íslandi (Alþýðubókin) eftir Þór-
arinn Böðvarsson, prest að Görðum
og stofnanda Flensborgarskóla. Í
þeirri bók er safnað á einn stað (á
423 síður) því helsta þá þótti hæfa
að vita. Fyrirmyndin var P. Hjorts
Danski Börneven. Var bókin framlag
Þórarins til þjóðhátíðarinnar 1874
og 1000 ára afmælis Íslandsbyggðar.
Hún kom út tveimur árum eftir að
skólinn okkar var stofnaður og hefur
eflaust verið notuð þar.
Í þáttum níu, þrettán og fimmtán
um skóla á Suðurnesjum er lýst
kennsluaðstæðum og fátæklegum
kennslutækjum fyrir aldamótin
1900.
Í skólaskýrslu eftir veturinn
1895 er skráð eftirtalin áhöld í eigu
Norðurkots- og Suðurkotsskóla:
Harmoníum nýtt, virt á 120 krónur;
nýr uppdráttur af Íslandi, virtur á
6 krónur; geografiske anskuelsista-
beller (landakort) ný, 6 kr; Evrópu-
kort, nýtt, á 12 kr; tellurium (jarð- og
sól-líkan) nýtt, 16 kr; kynflokka-
mynd, ný, á 2 kr; og smærri landa-
bréf. Framangreint ár höfðu verið 37
börn í skólunum, tíu til fjórtán ára, og
kenndu þeir Sigurjón Jónsson og Jón
G. Breiðfjörð.
Veturinn 1908–1909 voru
kennslugögn í Norður- og Suður-
kots-skólum þessi: Landabréf Ís-
lands 2 stk, landabréf Evrópa 2 stk,
landabréf báðar hálfkúlur, landabréf
Norður Ameríka, landabréf Suður
Ameríka, landabréf Afríka, landa-
bréf Asía, landabréf Ástralía og
landabréf Palestína. Dýramyndir 50
stk, mannslíkaminn á pappa. Hús-
dýralitmyndir 12 stk. Kúlnagrindur
fyrir reikning 2 stk. Meterstika 7 stk.
Naturhistorisk Atlas.
Veturinn 1918–1919 voru þessi
kennslugögn í Suðurkotsskóla:
Sýningarmyndir biblíunnar, gamla
og nýja testamentið. Kronbergs
Bibel historiske billeder 17 stk., Árs-
tíðarmyndir 4 stk., Anatomiske
vægtavler (maðurinn) 4 stk, Chr.
Eriksen billeder fra land og by 60
stk.; C C Kristensen kort 10. stk.; öll
nauðsynleg landafræðiáhöld; P. Dal-
bergs skólaatlas; C.R. Sundströms
Naturhistorisk Atlas; Æfingar í rétt-
ritun 11 stk.; S.A. Gíslason, Reikn-
ingsbók I og II hefti; Jónas Jónsson,
Reikningsbók I og II hefti; Sam. Egg-
ertsson, Alþýðlegur samanburðar-
leiðavísir (metrak.); Metrastika, kassi
með metrakerfis áhöldum; H. Briens
flatarmálsfræði; E. Briem reikn-
ingsbók; M. Hansen reikningsbók;
Barnasálmabókin 3 stk.;
Leikföng 10 stk.; Bók nátt-
úrunnar 5 stk.
Þegar nýtt skólahús
var tekð í notkun 1944
var ekkert af búnaði og
kennslugögnum í eldra
húsinu talið nothæft til
að flytja í það nýja.
Allt frá fyrstu pæl-
ingum um barnaskóla
á Íslandi, á 18. öld,
var talið eðlilegt að
skóli ætti bújörð, til
ábúðar fyrir kenn-
arann. Þegar barna-
skólinn á Vatnsleysu-
strönd var stofnaður
var keypt undir hann
hálf jörðin Suðurkot,
en henni fylgdi aðstaða til sjóróðra
og að taka þang til eldiviðar, sbr. Lýs-
ingu St.Thorarensen í Þjóðólfi 1873
(https://timarit.is/files/34990198).
Stóð skólahús á þeirri jörð uns flutt
var í Voga 1979, en þar fékk skólinn
úthlutað rúmgóðri lóð úr túni Stóru-
Voga. Nálægt 1900 var keyptur
hluti af jörðinni Stóra-Knarrarnes í
því skyni að afla tekna til reksturs
skólans og var
jörðin veðsett
þegar tekið var
lán til byggingar
N o r ð u r k o t s -
skóla 1903. 1925
vill skólanefndin
hætta afskiptum
af jarðeignum
skólans, en leigir
þó út Knarar-
nesjarðarpartinn
1926–1930. Ein-
hvern tíma eftir
það hefur sveitar-
sjóður tekið þetta
yfir.
1936 taka gildi
lög um Ríkisút-
gáfu námsbóka og
Fræðslumyndasafn
ríkisins var stofnað 1961, sem lánaði
kvikmyndir til skóla. Þessar stofn-
anir runnu, ásamt Skólavörubúðinni,
saman í Námsgagnastofnun 1980.
Bókaútgáfa jókst alla tuttugustu
öldina – og svo kom internetið ...
Helstu heimildir: Greinar í Faxa
1990, skjöl skólanefndar o.fl.
Guðjón Pétur Stefánsson er 19 ára og
kemur frá Keflavík. Hann æfir fótbolta
en hefur einnig gaman af því að spila
golf og körfubolta. Guðjón er nýút-
skrifaður af fjölgreinabraut og stefnir
að því að komast í háskóla í Bandaríkj-
unum. Guðjón Pétur er FS-ingur vikunnar.
Á hvaða braut ertu? Ég var á fjölgreina-
braut en ég útskrifaðist síðustu helgi.
Hver er helsti kosturinn við FS? Klárlega
félagslífið og skemmir ekki fyrir að skólinn
er mjög nálægt.
Hvaða FS-ingur er líklegur til að verða
frægur og hvers vegna? Mjög líklega Valur
Þór Hákonarson vegna þess að hann er
með gríðarlega hæfileika í boltanum.
Skemmtilegasta sagan úr FS: Þegar
Hrannar Már Albertsson kveikti í grillinu
niðri í matsal.
Hver er fyndnastur í skólanum? Erfitt að
velja en Helgi Leó er svosem ágætur.
Hver eru áhugamálin þín? Fótbolti, golf,
körfubolti, vinir og að fara í pottinn.
Hvað hræðistu mest? Svanga mömmu og
þreytta mömmu.
Hvert er uppáhaldslagið þitt? Einmitt
núna er það Pyramids með Frank Ocean en
er mjög duglegur að breyta.
Hver er þinn helsti kostur? Jákvæður og
duglegur ef ég hef áhuga.
Hver er þinn helsti galli? Ég sef lítið.
Hvaða forrit eru mest notuð í símanum
þínum? Snapchat og Instagram.
Hvaða eiginleiki finnst þér bestur í fari
fólks? Heiðarleiki, traust og ekki verra að
vera fyndinn.
Hver er stefnan fyrir framtíðina? Lifa og
njóta eins og er, komast í háskóla úti í USA
og svo auðvitað stefna hátt.
Ef þú ættir að lýsa sjálfum þér í einu orði
hvaða orð væri það? Skemmtilegur.
FS-ingur vikunnar: Guðjón Pétur Stefánsson
Ung(m
enni) vikunnar: Drífa M
agnúsdóttir
Hræðist svanga
og þreytta mömmu
Drífa Magnúsdóttir er 14 ára og kemur frá
Keflavík. Drífa æfir körfubolta og í nemenda-
ráði Holtaskóla. Hún hefur gaman af því að
fara á skíði og vera með vinum. Drífa er ung-
menni vikunnar.
Í hvaða bekk ertu? Ég er í 8. bekk.
Í hvaða skóla ertu? Ég er í Holtaskóla.
Hvað gerir þú utan skóla? Ég æfi körfu-
bolta fjórum sinnum í viku og er mikið
með vinum mínum fyrir utan skóla og svo
er ég í nemendaráði Holtaskóla.
Hvert er skemmtilegasta fagið? Það er
örugglega íþróttir því þá erum við krakk-
arnir saman að gera einhvað skemmtilegt.
Hver í skólanum þínum er líklegur til að
verða frægur og hvers vegna? Úff örugg-
lega Ásdís Elva því hún mun komast langt
í körfunni.
Skemmtilegasta saga úr skólanum: Þegar
við vorum að kasta brúsum á milli okkar
og köstuðum óvart í kennara og hún varð
öll rennandi.
Hver er fyndnastur í skólanum? Ég myndi
segja Jóhann Þór og Anna María.
Hver eru áhugamálin þín? Mér finnst
gaman í körfubolta og mér finnst líka
mjög gaman á skíðum.
Hvað hræðistu mest? Ég er mjög
hrædd við geitunga og býflugur.
Hvert er uppáhaldslagið þitt? Þau eru
of mörg.
Hver er þinn helsti kostur? Ég er
skemmtileg og hæfileikarík.
Hver er þinn helsti galli? Ég ofhugsa
allt.
Hvaða forrit eru mest notuð í sím-
anum þínum? Ég nota Snapchat og
TikTok mjög mikið.
Hvaða eiginleiki finnst þér bestur í fari
fólks? Mér finnst bestu eiginleikar hjá
fólki vera traust og þegar fólk er gott
og skemmtilegt.
Hvað langar þig að gera eftir grunnskóla?
Mig langar að fara i framhaldsskóla og
einbeita mér að körfunni.
Ef þú ættir að lýsa sjálfum þér í einu orði
hvaða orð væri það? Ég myndi segja
skemmtileg.
Afmælisþættir skólans í Vogum, birtast
vikulega í Víkurfréttum og vf.is á afmælisárinu.
Þorvaldur Örn Árnason, áður kennari við skólann,
tekur saman með góðra manna hjálp.
21. ÞÁTTUR
Thelma Hrund Hermannsdóttir
thelma.h.hermannsdottir@gmail.com
10 // víkurFrÉttir á SuðurNESJuM