Víkurfréttir - 17.08.2022, Blaðsíða 8
Rokksafn Íslands hefur opnað sýningu sem fjallar um Sævar Þorkel Jensson, betur þekktur sem
Keli, og úrklippubókasafn hans en Keli hefur frá því að hann var ungur strákur safnað úrklippum og
eiginhandaráritunum tónlistarfólks.
Það væru ekki til neinar stjörnur
ef aðdáendur væru ekki til. Oft er
þetta sama fólkið, en alvöru safn-
arar eru samt fámennur hópur, sem
hefur í gegnum aldirnar haldið til
haga mörgu af því sem er til sýnis á
söfnum um allan heim.
Safnarar á Íslandi safna ólík-
legustu hlutum, en það eru ekki
margir sem eru jafn ákafir safnarar
á sviði rokk-, popp- og hvers konar
dægurtónlistar eins og Keli. Sævar
Þorkell Jensson, kallaður Keli, hefur
safnað eiginhandaráritunum og úr-
klippum frá árinu 1964 þegar hann
sá Hljóma fyrst á sviði. Keli á eitt
stærsta úrklippusafn um dægurtón-
list á Íslandi. Hann mætir gjarnan
á tónleika með úrklippubók og fær
viðkomandi tónlistarfólk til að rita
nöfn sín í bókina. Honum er jafnan
vel tekið og hefur safnað áritunum
flestra poppara og rokkara landsins.
Hann á líka eiginhandaráritanir
heimsþekktra tónlistarmanna.
Úrklippubækur Kela geyma
margskonar fróðleik og spanna
dægurtónlistarsöguna í rúmlega
hálfa öld. Bækurnar í dag eru rúm-
lega þrjú hundruð og fimmtíu talsins.
Um er að ræða mikil menningarverð-
mæti og merkilega heimild um tón-
listarsöguna.
Keli á umtalsvert magn af úr-
klippum sem tengjast Bubba Mort-
hens, Björk, Bríet, Helga Björns,
GDRN, Jónasi Sig, Stefáni Jakobs-
syni, Hjálmum, Baggalúti og John
Grant, svo fátt eitt sé nefnt en Keli
verður með bækur sínar til sýnis á
Rokksafni Íslands á meðan sýningin
stendur.
Íbúar í Sveitarfélaginu Vogum voru duglegir að taka þátt í dagskrá
fjölskylduhátíðar sveitarfélagsins sem náði hámarki um síðustu
helgi. Á laugardeginum var viðamikil dagskrá í Aragerði, auk
hverfaleika og sölutjalda. Skemmtiatriði á sviði og á laugardags-
kvöldinu var tónlistarveisla þar sem landsþekktir tónlistarmenn
skemmtu heimafólki. Kvöldinu lauk svo með flugeldasýningu
björgunarsveitarinnar Skyggnis. Sýningin var stórkostleg og fékk
fimm stjörnur hjá þeim sem vel þekkja til slíkra sýninga. Sýnis-
horn af sýningunni má sjá á vef Víkurfrétta.
Botninn var svo sleginn í vel
heppnaða fjölskyldudaga með tón-
leikum í skógræktinni að Háabjalla
þar sem fjölmargir tónlistarmenn
stigu á svið í skógarrjóðri. Þar lauk
tónlistarmaðurinn KK hátíðinni
með ljúfum tónum eins og honum
er einum lagið.
Myndirnar með þessari umfjöllun
tóku þeir Jóngeir Hlinason og Hilmar
Bragi, auk þess sem nokkrar myndir
frá hátíðarhöldunum voru fengnar
hjá Sveitarfélaginu Vogum.
Tónlistarmenningarverðmæti Kela til sýnis í Rokksafni Íslands
Veðrið lék við Vogamenn
á fjölskylduhátíðinni
Fleiri myndir frá
hátíðinni á vef
Víkurfrétta, vf.is
Rokksafn Íslands hefur
opnað sýningu sem fjallar
um Sævar Þorkel Jensson,
betur þekktur sem Keli, og
úrklippubókasafn hans en Keli
hefur frá því að hann var ungur
strákur safnað úrklippum
og eiginhandaráritunum
tónlistarfólks.
8 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM