Víkurfréttir


Víkurfréttir - 17.08.2022, Blaðsíða 12

Víkurfréttir - 17.08.2022, Blaðsíða 12
„Mér finnst þetta eitt dásamlegasta starf í heimi. Mér finnst rosaleg for- réttindi að fá að vera með þessi litlu kríli hjá mér á daginn. Þetta er líka gríðarlega krefjandi starf, því þú þarft ekki bara að ala upp þitt eigið barn heldur ert þú að ala upp tíu börn í einu. Það kemur samt frá mínum innstu hjartarótum þegar ég segi hvað ég er þakklát því það er í raun ekki sjálf- gefið að foreldrar treysti annarri manneskju fyrir barninu sínu, vegna þess að það dýrmætasta sem við eigum eru börnin okkar,“ segir Kittý. Kittý er að hefja sitt tíunda ár sem dagforeldri en Símon slóst í för með henni eftir að Kittý nefndi það við hann í hálfgerðu gríni að hann gæti unnið með henni. „Símon kemur úr vöruhúsabransanum. Hann vann í bænum og var orðinn leiður á að keyra brautina og fór þá hægt og rólega að skoða í kringum sig og ég stakk upp á því í hálfgerðu gríni að hann ætti að gerast dagforeldri með mér. Svo tveimur dögum seinna spurði hann mig hvort mér væri al- vara og hugsaði með mér: „Af hverju ekki?“ Svo ég svara játandi. Hann ákvað þá að taka sér pásu frá vöru- húsabransanum í ár og vera í þessu. Við prófuðum það og hann er að byrja sitt fjórða ár núna og líkar rosa- lega vel við. Þetta var alveg ótrúlega fyndið hvernig þetta gerðist,“ segir Kittý. Hún segir það muna miklu að vera með félaga í sér í starfi sem þessu. „Ég hef bæði unnið ein í mörg ár og svo með félaga. Ég get ekki talað fyrir hönd allra en fyrir mitt leyti finnst mér þetta mun skemmti- legra, auðveldara og þægilega. Þá er maður líka ekki bara að tala í „gaga gúgú máli“ allan daginn, maður fær þá að minnsta kosti einhver sam- skipti við fullorðinn einstakling,“ segir hún. Vöntun hefur verið á dagfor- eldrum á svæðinu og Kittý segist finna fyrir því sem formaður Sam- taka dagforeldra á Suðurnesjum. „Það er mikið af foreldrum sem hringja í mig til þess að athuga hvort ég viti um laus pláss. Ég fæ einnig eitthvað af símtölum frá áhyggju- fullum foreldrum sem vita ekki hvað þeir eiga að gera í þeim tilfellum sem það er ekki pláss. Ég veit náttúrlega oftast hvar þau pláss eru og ég fæ oft að vita ef það losna pláss hjá ein- hverjum dagforeldrum. Ég finn því kannski meira fyrir þessu en aðrir,“ segir Kittý. Í átta ár af þeim tíu árum sem hún hefur verið í starfinu hefur hún verið formaður félagsins og segir hún það vera erfiðara nú en áður að finna pláss fyrir alla. „Langflest árin höfum við náð að brúa nánast alla, þá hafa nánast allir komist inn til okkar á haustin. Það eru náttúrulega alltaf einhverjir sem komast ekki inn, það hefur nú samt oftast reddast. Núna í ár er árgang- urinn einstaklega stór og því miður höfum við ekki náð að brúa þetta. Ég vildi óska þess að ég gæti boðið öllum að koma bara til mín en það eru takmörk á því hversu mörg hver og einn má sjá um,“ segir hún. Stjórn Samtaka dagforeldra á Suðurnesjum hefur verið í góðu samstarfi við Reykjanesbæ og segir Kittý það samstarf lofa góðu. „Við í stjórninni vorum einmitt að ljúka samning við Reykjanesbæ þar sem Reykjanesbær mun greiða dagfor- eldranámskeiðið að fullu. Hingað til hefur bærinn borgað helminginn af upphæðinni en nú er það niðurgreitt að fullu. Auk þess fá nýir dagfor- eldrar aðstöðu styrk upp á hundrað þúsund krónur til þess að byrja starf- semina sína sem er alveg rosalega mikil hjálp. Síðan erum við að fara að fá leikfangastyrki á þriggja ára fresti upp á hundrað þúsund krónur sem er náttúrlega bara geggjuð búbót fyrir okkur dagforeldrana til að hafa okkar starfsemi sem besta. Við erum með þannig metnað að við viljum vera flott, við viljum að for- eldrar líti á starfið okkar og hugsi að það sé æðislegt. Þegar maður er með þennan metnað að gera starfið fyrsta flokks, þá kostar það sitt. Mér finnst því æðislegt að Reykjanesbær sé til í að taka þátt í þessu með okkur, það er ómetanlegt. “ segir Kittý. Aðspurð hvaða skilaboð Kittý hefur til þeirra sem eru að spá í að hefja störf sem dagforeldri segir hún: „Láttu vaða. Þú þarft að elska þessi litlu kríli og vera þolinmóð mann- eskja en það sakar aldrei um að láta vaða. Ég segi oft: „Prófaðu þetta í ár, þú tapar í rauninni engu á því.“ Því flestir sem prófa þetta í ár enda svo í þessu til fleiri ára og alveg upp í þrjátíu ár. Okkur vantar dagforeldra og það er ekki hlaupið að því fyrir alla að gerast dagforeldri. Það þarf að vera með fínt húsnæði og svoleiðis. Fólki dettur heldur ekki alltaf í hug að gerast dagforeldri en ég mæli með þessu starfi, alveg hiklaust.“ Allar upplýsingar um störf dagforeldra í Reykjanesbæ má finna á heimasíðu bæjarins, www.reykjanesbaer.is. Það dýrmætasta sem við eigum eru börnin okkar Láttu vaða. Þú þarft að elska þessi litlu kríli og vera þolinmóð manneskja en það sakar aldrei um að láta vaða ... Reykjanesbær auglýsir eftir fólki í stöðu dagforeldra en vöntun er á dagforeldrum í bænum. Dagforeldrar eru sjálfstæðir verktakar en þeir fá starfsleyfi í gegnum bæinn. Kittý Guðmundsdóttir, formaður Samtaka dagforeldra á Suðurnesjum, og eiginmaður hennar, Símon Jakobsson, eru með tíu börn í dagvistun. Þau segja krefjandi en jafnframt virkilega skemmtilegt. Thelma Hrund Hermannsdóttir thelma@vf.is FIMMTUDAG KL. 19:30 HRINGBRAUT OG VF.IS Störf hjá Reykjanesbæ Umsóknir í auglýst störf skulu berast rafrænt gegnum vef Reykjanesbæjar. Þar eru jafnframt nánari upplýsingar um auglýst störf. Hægt er að notast við QR kóða til að fara beint inn á vefinn Bókasafn Reykjanesbæjar - Útlánadeild Fræðslusvið - Talmeinafræðingur Velferðarsvið - Dagdvalir aldraðra Velferðarsvið - Deildarstjóri á Hæfingarstöð Velferðarsvið - Deildarstjóri/hjúkrunarfræðingur Velferðarsvið - Stuðningsfjölskyldur Velferðarsvið - Tilsjónaraðilar í barnavernd Starf við liðveislu Starfsmaður á Eignaumsýslu Umhverfissviðs 12 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.