Víkurfréttir


Víkurfréttir - 17.08.2022, Blaðsíða 9

Víkurfréttir - 17.08.2022, Blaðsíða 9
Tónlistarmenningarverðmæti Kela til sýnis í Rokksafni Íslands Fleiri myndir frá opnunarhófinu á vef Víkurfrétta, vf.is Hjá HS Veitum starfar framsækinn hópur starfsfólks sem kappkostar að efla sig í starfi með frumkvæði, fagmennsku og framúrskarandi vinnubrögðum. HS Veitur annast raforkudreifingu á Suðurnesjum, í Hafnarfirði, í hluta Garðabæjar, í Vestmannaeyjum og í Árborg. HS Veitur annast hitaveiturekstur á Suður­ nesjum og í Vestmannaeyjum og vatnsveitu­ rekstur að stórum hluta á Suður nesjum og í Vestmanna eyjum. Starfsstöðvarnar eru fjórar; í Reykjanesbæ, Hafnarfirði, Vestmannaeyjum og í Árborg. Hjá fyrirtækinu starfa um 100 starfsmenn. Gildi félagsins eru traust, virðing og framfarir. Framundan eru spennandi tímar sem reyna á stefnu HS Veitna og er forstjóri í lykilhlutverki við að leiða fyrirtækið inn í framtíðina. HS Veitur reka hitaveitu, vatnsveitu og rafmagnsveitu og eru starfsmenn fyrirtækisins að bæta rekstur og þjónustu fyrirtækisins frá degi til dags ásamt því að móta félagið fyrir komandi kynslóðir. Forstjóri stýrir daglegum rekstri fyrirtækisins, sinnir stefnumótun í samráði við stjórn og er í forsvari fyrir fyrirtækið út á við. Helstu verkefni og ábyrgð: • Ábyrgð á daglegum rekstri, áætlanagerð og eftirfylgni verkefna. • Mótun stefna og innleiðing í samráði við stjórn. • Stuðla að stöðugum umbótum félagsins. • Upplýsingagjöf til stjórnar og starfsfólks. • Innri og ytri samskipti við hagsmunaaðila. Menntunar- og hæfniskröfur: • Háskólamenntun sem nýtist í starfi. • Reynsla og/eða þekking af orku- og veitumálum er kostur. • Reynsla af rekstri og stjórnun, þ.m.t. mannaforráð. • Reynsla af stefnumótun og áætlanagerð. • Leiðtogahæfileikar og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum. • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi. • Góð íslensku- og enskukunnátta. Umsjón með starfinu hafa Hilmar G. Hjaltason (hilmar@vinnvinn.is) og Garðar Ó. Ágústsson (gardar@vinnvinn.is). Forstjóri HS Veitur leita að framsýnum forstjóra til að leiða framúrskarandi hóp starfsfólks. Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna. Umsóknarfrestur er til og með 21. ágúst nk. Sótt er um starfið á www.vinnvinn.is. Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um hæfni viðkomandi til að gegna starfinu. vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM // 9

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.