Víkurfréttir - 12.10.2022, Blaðsíða 5
Áslaug Arna í Suðurnesjaheimsókn:
„Flutti“ skrifstofuna í einn dag
„Það er gaman að vera með skrif
stofuna sína annars staðar en í
Reykjavík, bæði til að kynnast
samfélaginu á hverjum stað en
ekki síst að sýna fram á þessa fjar
vinnustaði sem hægt er að starfa
á víðsvegar um landið,“ sagði
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir,
ráðherra háskóla, iðnaðar og ný
sköpunar en hún var með vinnu
aðstöðu í Reykjanesbæ einn dag
í síðustu viku og heimsótti síðan
nokkur fyrirtæki og stofnanir.
Áslaug sagði að hún vildi sýna
að ráðuneytið hennar væri stofnað
árið 2022, partur af því væri að
skrifstofan hennar væri sveigjanleg
og tekið væri tillit til starfa án stað
setningar.
Páll Ketilsson, ritstjóri Víkurf
rétta, hitti Áslaugu Örnu í hús
næði MSS, Miðstöðvar Símennt
unar á Suðurnesjum, í Krossmóa
í Reykjanesbæ og ræddi við hana
(sjá viðtal á vf.is). Þar var ráðherra
með vinnuaðstöðu um morguninn
en í hádeginu fór hún á Réttinn í
hádegismat og hitti þar fjölda fólks.
Eftir hádegi hitti hún fólk m.a. í HS
Orku, Reykjanesbæ, í Keili á Ásbrú
og í Samkaupum.
Mikil vitundarvakning um umhverfis-
mál og mikilvægi þess að endurnýta
Þórlaug Jónatansdóttir er FLA kona mánaðarins
Nafn: Þórlaug Jónatansdóttir.
Aldur: 57 ára.
Menntun: BS í viðskiptafræði frá
Háskólanum á Akureyri og MBA
nám frá Háskóla Íslands. Þá er
ég með alþjóðleg kennararétt-
indi í Kundalini jóga.
Við hvað starfar þú og hvar?
Eigandi og framkvæmdastjóri
Trendport ehf. sem er staðsett á
Hafnargötu 60 í Reykjanesbæ. Þá
er ég formaður samtakanna Betri
bær en tilgangur félagsins er að efla
samvinnu verslunar og þjónustu
fyrirtækja í Reykjanesbæ.
Hver eru helstu verkefnin?
Verkefnin sem fylgja því að vera
eigandi fyrirtækis eru fjölmörg og
það þarf að halda mörgum boltum
á lofti í einu hvort sem kemur að
markaðsmálum, fjármálum, tölvu
málum eða starfsmannamálum – en
fyrirferðamest eru samskipti við við
skiptavini, hvort sem eru básaleigj
endur eða kaupendur í versluninni.
Þá þarf stöðugt að vera að huga að
umbótum og bæta verkferla.
Er eitthvað sem gerir verkefnið eða
fyrirtækið einstakt, forvitnilegt?
Trendport er svokallaður lopp
umarkaður, þar sem viðskiptavinir
geta selt og keypt notaðan fatnað og
fylgihluti. Þegar ég ákveð að stofna
Trendport þá hafði þetta rekstrar
form verið að ryðja sér til rúms á
höfuðborgarsvæðinu og það kom
mér á óvart að þessi þjónusta væri
ekki í boði á svæði sem telur 27.000
manns og ákvað að láta reyna á það
og viðbrögðin fóru fram úr björtustu
vonum. Að sjálfsögðu þurfti að að
laga reksturinn að Covid en í dag
hefur eftirspurnin heldur betur tekið
við sér og allir básar meira og minna
í útleigu. Þá er stöðugur straumur af
erlendum ferðamönnum sem koma
í verslunina enda staðsetningin
frábær í hjarta Keflavíkur og hótel
og gistiheimili allt í kring. Það hefur
orðin mikil vitundarvakning í þjóð
félaginu um umhverfismál og mikil
vægi þess að endurnýta. Á öllum
heimilum safnast mikið af notuðum
flíkum sem ekki er notaður lengur.
Þar liggja mikil verðmæti og flestum
þykir í dag sjálfsagt að selja vel með
farnar flíkur og í sumum tilfellum
ónotaðar, frekar en að vera með
fullar geymslur og skápa. Svo er
náttúrlega allra hagur að taka þátt í
hringrásarhagkerfinu.
Eitthvað áhugavert sem þú ert að
gera?
Áhugamál mín eru fjölmörg og hef
ég lagt áherslu á að stunda hreyfingu
nokkrum sinnum í viku því ég geri
mér grein fyrir mikilvægi þess að
rækta líkama og sál þegar álagið er
mikið. Seinustu ár hef ég stundað
Superform í Sporthúsinu og síðan
hef ég verið að hlaupa aðeins og er
nýbyrjuð að æfa með hlaupahóp 3N
sem er mjög spennandi.
Hvað hefur þú verið að gera, hvað
ertu að gera núna, framtíðarplön?
Foreldrar mínir eru Sólveig Þórðar
dóttir, ljósmóðir, og Jónatan Björns
Einarsson sem er látinn. Ég er gift
Sigurgesti Guðlaugssyni, verkefna
stjóra atvinnuþróunar hjá Reykja
nesbæ, og við eigum tvær dætur
og tvær hressar ömmustelpur. Við
fjölskyldan höfum verið að ferðast
mikið innanlands í hjólhýsinu okkar
undanfarið og stefnum á að gera
áfram.
Reynsla: Áður en ég stofnaði Trend
port starfaði ég hjá viðskiptafræði
deild Háskóla Íslands sem markaðs
stjóri og verkefnastjóri. Þar áður var
ég yfirmaður innheimtumála hjá
endurskoðunarfyrirtækinu Deloitte.
Hversu lengi hefur þú búið á Suður
nesjum?
Ég er fædd og uppalin í Keflavík,
fyrstu árin á Sólvallagötu 2 (gamla
bókabúðin) og síðan hef ég búið í
hinum ýmsu hverfum Reykjanes
bæjar, fyrir utan eitt ár sem ég bjó
í Reykjavík.
Hverjir eru kostir þess að búa á
Suðurnesjum?
Kostirnir eru fjölmargir, en fyrir mér
er það helst hvað það er gaman að
lifa og starfa í svona kraftmiklu og
fjölbreyttu samfélagi sem Reykja
nesbær er. Það hefur verið virkilega
gaman að fylgjast með allri þeirri
uppbyggingu sem hefur átt sér stað
síðustu áratugi. Þegar ég var að alast
upp þekktu allir alla en í dag hefur
það breyst mjög mikið. Þá skiptir
mig það máli að fjölskyldan mín býr
á svæðinu, ég er yngst af fimm systk
inum og búa þau öll á Suðurnesjum
fyrir utan eitt, við erum dugleg að
hittast og gera eitthvað skemmtilegt
saman. Þá er gaman að segja frá því
að afi minn, Þórður Einarsson, rak
vinsæla sjoppu sem var kölluð Dorró
beint á móti þeim stað sem Trend
port er núna og er hún núna sumar
bústaður fjölskyldunnar vestur í
Dölum.
Hvernig líst þér á nýja félagið
okkar, FKA Suðurnes?
Ég var mjög ánægð þegar ég frétti að
þessar frábæru konur hefðu tekið af
skarið og stofnað Suðurnesjadeild,
því ég hafði oft hugsað um að það
væri þörf á því í okkar samfélagi, þar
sem svo margar magnaðar konur eru
að gera flotta hluti.
Hvað varð til þess að þú skráðir
þig í FKA, Félag kvenna í atvinnu
lífinu?
Ég skráði mig í FKA því góð vinkona
mín úr MBAnáminu, sem var í fé
laginu í Reykjavík, var dugleg að fá
mig með sér á viðburði og þá sá ég
hvað þetta var bæði uppbyggilegur
og skemmtilegur félagsskapur.
Hvað finnst þér FKA gera fyrir þig?
Mér finnst frábært að geta hitt aðrar
konur í atvinnulífinu og að við getum
deilt reynslu. Ég vonast til að geta
verið duglegri að mæta á viðburði í
vetur en þeir sem ég hef sótt hingað
til hafa heppnast mjög vel.
Heilræði/ráð til kvenna á Suður
nesjum?
Hugrekki felst í því að taka áhættu
og sá sem aldrei gerir mistök gerir
aldrei neitt.
Markmið með verkefninu er að vekja athygli
á FKA konum í atvinnulífinu á Suðurnesjum,
fyrirtækjunum þeirra eða verkefnunum sem
þær sinna og sýna hversu megnugar og
magnaðar þær eru.
Þórlaug opnaði Trendport ehf. síðla sumars 2020.
Þórlaug er dugleg að hreyfa sig.
Áslaug Arna, ráðherra háskóla, iðnaðar og
nýsköpunar á skrifstofu „sinni“ í Reykjanesbæ.
Áslaug Arna heimsótti HS Orku
og ræddi við stjórnendur þar.
Með Heiði Björk Friðbjörnsdóttur
og Gunni Líf, tveggja stjórnenda hjá
Samkaupum, í heimsókn til þessa
stóra fyrirtækis á Suðurnesjum
Í heimsókn í Keili á Ásbrú.
Ráðherra heimsótti skrifstofur
Reykjanesbæjar og ræddi við
Kjartan Má, bæjarstjóra, og fleiri.
BLEIKI DAGURINN
Bleiki dagurinn verður á föstudaginn, 14.október, og verður
opinn dagur á Heilsugæslustöð HSS frá kl. 13 til 15.
n Hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar og næringafræðingur kynna starfsemi
heilsugæslunnar og verða í boði blóðsykursmælingar, heyrnamælingar,
öndunarpróf, blóðþrýstingsmælingar, ýmiskonar ráðgjöf og leiðbeiningar
varðandi heilsu og lífstíl.
n SIgrún Elva Einarsdóttir frá Krabbameinsfélagi Íslands heldur fyrirlestur
um krabbamein kvenna og mikilvægi brjóst og leghálsskimana.
n Krabbameinsfélag Suðurnesja verður á staðnum og gefur gestum bleika
boli og kynnir starfsemi sína.
Léttar veitingar í boði fyrir gesti
Bestu kveðjur,
Sigríður Erlingsdóttir,
forstöðumaður Krabbameinsfélags Suðurnesja.
REYKJANESBÆR
vÍkurFrÉttir á SuðurNeSJuM // 5