Víkurfréttir - 12.10.2022, Blaðsíða 14
Sporthúsið í Reykjanesbæ hefur verið starfandi í tíu ár og var
haldið upp afmæli líkamsræktarstöðvarinnar nú í byrjun október.
Áfanganum var fagnað með opnu húsi vikuna 3.–9. október og
margt í boði fyrir viðskiptavini og gesti. „Við teljum okkur hafa
lagt mikið af mörkum í að bæta heilsu Suðurnesjabúa og það
hefur gengið afskaplega vel,“ segir Ari Elíasson, eigandi Sport-
hússins, þegar hann horfir til baka á þau tíu ár sem stöðin hefur
verið starfrækt.
Ari segir mikið hafa breyst á þessum
tíu árum, meðal annars útlit, tæki
og aðbúnaður. „Við byrjuðum í
stóru húsi en samt smáu miðað
við hvernig það lítur út í dag. Við
byrjuðum með heilsurækt í rúmum
2.000 fermetrum árið 2012. Við
erum núna að fullnýta alla bygg
inguna sem eru rúmir 4.000 fer
metrar. Þann 1. október síðastliðinn
opnuðum við 900 fermetra stækkun
á nýjum hóptímasölum og með því
fá allir okkar viðskiptavinir betri
þjónustu og betra æfingasvæði. Það
má segja að við séum að komast á
tindinn þar sem við viljum vera.“
Hvað þýða þessar breytingar fyrir
starfsemina?
„Breytingin er kannski helst að
við erum með mikinn fjölda af
ungmennum í unglingaþjálfun
og unglinga Crossfit og við erum
núna komin með hliðarsal sem er
tengdur við Crossfitsalinn sem við
getum nýtt fyrir unglingatímana á
sama tíma og foreldrarnir fara í aðra
tíma eða í tækjasalinn. Með þessari
stækkun getur fjölskyldan verið öll
saman í þessu.“
Hvaða áhrif hafði Covid á rekstur
líkamsræktarstöðvarinnar?
„Covid reif hressilega í allar land
festar hjá okkur. Við vorum lokuð
vegna faraldursins í ríflega sex
mánuði. Núna haustið 2022 er allt
að komast í eðlilegt horf hjá okkur og
starfsemin farin að verða eðlileg, eða
eins og þetta var áður en Covid skall
á. Haustið hefur verið gott, veður
farslega séð, og fólk hefur verið að
njóta þess en við finnum það núna
þegar við erum komin inn í október
að allt að fara á fullt skrið. Covid
var náttúrlega alveg fram í febrúar
þannig við fengum ekki þessa
nýárstraffík sem kemur alltaf inn í
þennan bransa í janúar hverju sinni.
Við nýttum tímann þegar stöðin var
lokuð í að ráðast í miklar breytingar.
Við máluðum, settum upp nýja
veggi, tókum niður veggi og í raun
bættum aðstöðuna til að vera í stakk
búin til að fara í fulla þjónustu aftur.
Með þessum breytingum erum við
orðin líkamsræktarstöð á heims
mælikvarða hvað varðar aðstöðu
og fjölbreytileika, vil ég segja. Eins
og slagorð okkar Sporthússins segir:
„Heilsurækt fyrir alla“, við erum með
krakka hérna alveg frá tíu ára og sá
elsti er rétt tæplega níræður þannig
við erum með ansi fjölbreytta flóru
af viðskiptavinum.“
Hvers vegna er fjölbreytileikinn
ykkur mikilvægur?
„Það er mikilvægt að við séum með
fjölbreytileika í tímum og að þjálf
arar okkar séu fjölbreytilegir. Við
erum ekki öll steypt í sama mótið
og veljum okkur öll mismunandi
hreyfingu svo ég tel að það sé alveg
gríðarlega stór þáttur,“ segir Eva
Lind Ómarsdóttir, unnusta Ara, en
hún er einnig eigandi Sporthússins.
Hvað er í boði af tímum?
„Það er gríðarlega mikið framboð af
tímum, bæði námskeið og tímar eins
og Crossfit, Þitt form, Stepfit og Súp
erform en það eru um 35–40 tímar
sem hægt er að velja úr í hverri
viku,“ segir Ari og Eva bætir við:
„Það er nóg af hóptímum og nám
skeiðum fyrir fullorðna og ungmenni
í sérhæfðum sölum, bæði heitum og
ekki heitum. Svo erum við einnig
með spa sem er aðgengilegt við
skiptavinum alla daga.“
Hvað er framundan hjá Sport
húsinu? Er framkvæmdum lokið?
„Við gerum ráð fyrir að fram
kvæmdum innanhúss verði að
mestu leyti lokið um áramót en við
höfum einbeitt okkur að því að klára
allt sem snýr að viðskiptavininum
innan þess tímaramma. Strax næsta
vor munum við ráðast í töluverðar
breytingar á utanverðu húsinu. Við
ætlum að taka í gegn heildarútlit
hússins, húsið verður málað og lóðin
tekin í gegn en við erum nú þegar
byrjuð að útbúa um það bil 1.000
fermetra útiæfinga aðstöðu sem
tengist ákveðnum sölum hérna. Svo
munum við koma til með að setja
stóra og mikla glugga á bygginguna
og færa þannig lífið úr stöðinni út
á götu og birtuna inn í hús þannig
að ásýnd hússins verður hin glæsi
legasta,“ segir Ari.
Hefur bætt heilsu
Suðurnesjamanna
Sporthúsið í Reykjanesbæ fagnar tíu ára afmæli
Með þessum
breytingum
erum við orðin
l íkamsræktarstöð
á heimsmælikvarða
hvað varðar aðstöðu
og fjölbreytileika . . .
Thelma Hrund Hermannsdóttir
thelma@vf.is
sport