Víkurfréttir - 12.10.2022, Blaðsíða 8
„Það er bara allt að gerast í Gerða-
skóla. Við erum með svo flott starfs-
fólk sem er alltaf tilbúið til að skoða
nýjungar með það fyrir augum að
bæta skólastarf. Auðvitað erum við
með það gamla með en erum alltaf að
þróa okkur hægt og rólega í tækninni,
að samþætta námsgreinar og ýmis-
legt,“ segir Eva Björk Sveinsdóttir,
skólastjóri Gerðaskóla.
Er það ekki áskorun fyrir grunn
skóla á Íslandi í dag að vera með
börn af mörgum þjóðernum?
„Jú, en það er bara svo skemmtilegt
og lífgar upp á allt starfið. Auðvitað
er það áskorun þegar það kemur
barn sem talar enga íslensku eða
ensku en hér finnur fólk út úr hlut
unum.“
Maður sér hverja viðbygginguna
af annarri hér við skólann. Hefur
hann verið að vaxa stöðugt í
gegnum tíðina?
„Já, í rauninni. Ég kom hingað til
starfa fyrir fimm árum síðan og það
eru tuttugu fleiri nemendur í dag en
þá. Það er einn bekkur á ekki lengri
tíma, þannig að það er góð fjölgun.“
Hver er nemendafjöldinn í dag?
„Við erum með um 250 nemendur
í dag og það eru um 60 starfsmenn
við skólann.“
Er Gerðaskóli með einhverja sér
staka stefnu þegar kemur að tækni
nýjungum í kennsluháttum?
„Við erum að búa til nýtt tæknirými
þar sem við getum verið með þróun
á allan hátt. Það eru allir nemendur
með tæki. Nemendur í 1. til 6. bekk
eru með iPad en nemendur í 7. til 10.
bekk eru með Chromebooktölvur.
Þegar þú segir stefna, þá finnst mér
þetta þurfa að koma frá kennur
unum, hvað vilja þeir? Þeir vilja
fara í þessa átt og þróa sig þarna. Við
erum hægt og rólega að fikra okkur
áfram.“
Er kennslubókin í landafræði og
stærðfræði að detta inn í stafrænt
form?
„Það kemur að því. Við erum ennþá
aðeins með bækur en verkefnavinna
fer mikið fram í tölvunni. Þetta eru
bæði tölvur og bækur en ég held að
við vitum það öll að við erum að
þróast áfram í tækninni.“
Hver eru viðbrögðin hjá krökk
unum hvað það varðar? Þau eru að
grípa þetta mjög hratt, er að ekki?
„Jú, jú. Þau eru miklu klárari en við.
Þess vegna er svo gaman að við
fórum fljótlega eftir að ég byrjaði
hérna í gang með snillitíma á mið
stigi. Það eru tímar þar sem nemandi
fær að ráða hvað hann vill læra og
rannsaka. Það er svo gaman þegar
nemandinn sjálfur fær að velja. Við
erum kannski með nemanda í grunn
skóla í tíu ár sem er frábær söngvari
og það veit enginn að hann kunni
að syngja. Með því að draga fram
styrkleika hjá öllum í svona vinnu,
þá komumst við að þessu. Svo erum
við núna á unglingastigi að sam
þætta námsgreinar og vinna með
verkefni. Það er mikið í tölvunni og
þar eru grunnverkefni sem allir þurfa
að gera og skila af sér. Svo erum við
með meistaraverkefni sem þau geta
svo fengið framúrskarandi fyrir ef
þau kjósa svo.“
Var mikill undirbúningur fyrir
þennan afmælisdag þar sem 150
ára afmæli Gerðaskóla var fagnað?
„Við fórum að hugsa þetta í febrúar
og settum þá saman nefnd í skól
anum. Við ætluðum nú að byrja þá
en ef ég á að vera alveg hreinskilin
þá byrjuðum við ekki fyrr en í ágúst.
Þá fór allt á fullt og við höfum verið
að síðan þá. Við höfum unnið þetta
jafnt og þétt og fengið muni frá
bæjarbúum sem tengjast skólanum.
Hingað komu svo bæði gamlir kenn
arar og nemendur. Það var gaman að
hitta allt þetta fólk og maður sá að
það skein ánægja úr andlitum fólks
að rifja upp gamla tíma og ótrúlega
gaman að fá svo marga hingað í dag,“
sagði Eva Björk, skólastjóri, í sam
tali við Víkurfréttir í lok afmælishá
tíðarinnar.
Óperusöngvararnir Una María Bergmann og Bjarni Thor
Kristinsson eru bæði gamlir nemendur Gerðaskóla. Þau
sungu fyrir gesti afmælishátíðar í tilefni af 150 ára af-
mæli Gerðaskóla við undirleik Sigrúnar Gróu Magnús-
dóttur. Yngra söngfólk úr Gerðaskóla söng einnig fyrir gesti við
undirleik nemenda Tónlistarskólans í Garði.
Fjölmennt var í Gerðaskóla í Garði síðasta föstudag þegar af-
mæli skólans var fagnað. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson,
þekktist boð skólans og var á meðal gesta á þessari hátíðlegu stund
í skólanum. Eiríkur Hermannsson, sem var skólastjóri Gerðaskóla í
tíu ár seint á síðustu öld, hefur kíkt í kirkjubækur og tekið saman
sögu Gerðaskóla. Hann flutti brot úr þeirri sögu á hátíðinni.
Gerðaskóla bárust góðar gjafir í tilefni tímamótanna. Meðal
annars gaf Suðurnesjabær skólanum leir- og glerbrennsluofn. Einar
Jón Pálsson, forseti bæjarstjórnar, afhenti gjöfina í forföllum Magn-
úsar Stefánssonar, bæjarstjóra. Þá barst skólanum vegleg gjöf frá
Kvenfélaginu Gefn. Þegar formlegri dagskrá lauk á sal skólans var
gestum boðið upp á veitingar og að skoða sýningar sem unnið hefur
verið að í tilefni tímamótanna. Nemendur hafa unnið með sögu
skólans og þá voru gamlar myndir úr skólastarfi til sýnis sem gestir
sýndu mikinn áhuga.
Forseti Íslands sýndi afmælinu mikinn áhuga og var tvær klukku-
stundir í afmælisveislunni, skoðaði sýningar og ræddi við gesti.
Nemendur Gerðaskóla voru t.a.m. duglegir að taka af sér svokallaðar
„sjálfur“ með forsetanum. Guðni lauk svo heimsókn sinni í Gerða-
skóla með því að skoða nýtt listaverk sem nemendur hafa unnið
að og er sólarlagsmynd frá Garðskaga sem gerð er úr plasttöppum.
Forseti Íslands heiðraði Gerðaskóla á stórafmæli
Tölvur taka yfir skólabækurnar
Guðjón Árni Antoníusson, aðstoðarskólastjóri, Særún Rósa Ástþórsdóttir, deildarstjóri,
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, og Eva Björk Sveinsdóttir, skólastjóri.
Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands kemur til afmælishátíðar Gerðaskóla. Mynd: Forseti.is
Sirkusfólk skemmti nemendum Gerðaskóla í íþróttahúsinu á afmælisdaginn. VF-mynd: Thelma Hrund
Falleg sólsetursmynd frá Garðskaga sem nemendur unnu úr töppum.
Gerðaskóli færir Dósaseli Þroskahjálpar þakkir fyrir veitta aðstoð.
Tónlistarfólk lét ljós sitt skína í afmælisveislu skólans.
Þau sungu og léku á hljóðfæri fyrir afmælisgesti Gerðaskóla.
Svona var starfsmannaklæðnaðurinn á afmælisdaginn.
Gamlar ljósmyndir úr skólastarfinu vöktu óskipta athygli gesta.
8 // vÍkurFrÉttir á SuðurNeSJuM