Rökkur - 01.08.1938, Blaðsíða 3

Rökkur - 01.08.1938, Blaðsíða 3
R Ö K K U R 115 þar sem landnám var hafið fyr- ir 2—3 árum eru komin upp snotur og skrautleg íveruhús. Mesta vandamál bænda í Lit- liauen er að fá, gott verð fyrir afurðir sínar, en verðlagið fer eftir skilyrðum heimsmarkaðs- ins frekar en eftirspurninni heima fyrir. Yfirleilt má segja, að bændastéttin geri minní kröfur til þæginda en alment tíðkast í vesturhluta álfunnar. Og bændur í Lithauen verða flestir að standa stranm af nokkurum skuldum í bönkum, en skuldir þeirra eru yfirleitt minni en í öðrum landbúnaðar- ríkjum álfunnar. En skulda- liyrðin er þeim erfið vegna þess, að til skulda var stofnað þegar verðlag á landbúnaðarafurðum var hærra en nú. Ríkið hefir reynt að koma bændum til hjálpar í þessum efnum, og lög hafa verið sett til þess að ákveða launakjör þeirra sem vinna hjá bændum, en vinnufólki eru greidd laun að nokkuru leyti í reiðu fé -og að nokkuru með landbúnaðarafurðum. Bændur í Lithauen ræktuðu til skamms tíma aðallega korn, hafra, bygg, rúg og hveiti, kart- öflur, ertur o. s. frv., en á síðari árum hefir verið meiri stund lögð á griparækt og mjólkur- framleiðslu. Ríkið hefir komið upp tilrauna- og fyrirmyndar- búum, og þaðan fá bændur úr- valsgripi. Bændum er þar leið- beint um fóðrun og alla með- ferð gripa og afurða, til þess að þeir geti fengið sem best verð fyrir kjöt sitt og mjólkurafurð- ir. Sérstök áhersla er lögð á að veita smábændum og landnemr um alla aðstoð í té í þessum efnum og nú er svo komið, að þeir eiga flestir góða gripi og hafa mikinn áhuga fyrir að eiga sem besta gripi og að vanda framleiðsluna sem mest. Land- búnaðarráðuneytið hefir stofn- að eftirlitsstöðvar, þar sem sér- fræðingar starfa og ferðast um meðal bænda, leiðheina þeim, og hafa eftirlit með höndum lijá öllum hændum sem stunda svínarækt og útflutning á fleski fyrir augum. Á þessum eftir- litsstöðvum eru gerðar fóðurtil- raunir, og þangað flytja bænd- ur framleiðslu sina til skoðunar og flutnings. Ríkiseftirlit er með öllum flesk-útflutningi, fram- leiðshi mjólkurafurða og út- flutningi þeirra. Er því að eins flutt út fyrsta flokks vara og útflutningur af fleski og smjöri eykst með ári liverju. Landbúnaðarráðuneytið liefir með ýmsum ráðstöfunum kom- ið fram menningarlegum um- hótum til hagsbóla fyrir hænda- stéttina í Lithauen. Þannig hafa verið stofnaðir bændaskólar og

x

Rökkur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.