Rökkur - 01.08.1938, Blaðsíða 12

Rökkur - 01.08.1938, Blaðsíða 12
121 RÖKKUR ungverskum uppruna. Drotn- ingin, Geraldine, er fríð sýnum og fjörleg, alþýðleg og ræðin, og síðan er hún settist á drotn- ingarstólinn er kominn alt ann- ar og skemtilegri bragur á hirð- lifið en áður var á því og al- banskar konur líta aðdáunar- augum á hina vel klæddu og glæsilegu drotningu, og taka liana sér til fyrirmyndar, að svo miklu leyti sem þeim er unt, efna vegna og annara ástæðna. En í þessu afskekta landi, þar sem menningin er enn á frekar lágu stigi á ýmsum sviðum, fær hin nýja drotning vafalaust að kenna á ýmsum erfiðleikum, en hún hefir þegar unnið fyrsta leikinn í þeirri haráttu, með því að vinna sér liylli fyrir al- þýðulega framkomu. Hætturnar, sem kunna að verða á vegi hennar, eru miklu minni, en verið hefði á vegi þeirrar konu sem sest hefði á drotningarstól fyrir tíu árum eða fvrr. Og höfuðborgin er miklu skemtilegri staður til dvalar en hún var þá. Það er einnig breyting sem þakka má manni hennar, Zog konungi. Því að það er hann, sem hefir bygt upp Albaniu nú- tímans, hina einu Albaniu, sem nokkuru sinni hefir í raun og veru verið sjólfstætt ríki og sameinað. Og sjálfur stofnaði hann konungdóminn í landinu. Hann gerði sjálfan sig að kon- ungi. Það, sem mesta athvgli vek- ur, þegar litið er vfir feril und- angenginna tíu ára, er það, að Albanir njóta nú samúðar og velvildar allra þjóða. Við liá- tíðahöldin voru fulltrúar frá ríkisstjórnum allra nágranna- þjóðanna. Albania á nú ekki i deilu við neitt erlent ríki um nokkurt vandamál, sem alvarlegt getur talist. Hér er vissulega orðin mikil breyting á, þegar athugað er, að áður fyrr áttu Albanir í stöðugum deilum við nágrannaþjóðimar og stórveldin óttuðust oft og tiðum, að í þessu „tundurhorni“ Balkanskagans niundi verða sú sprenging, sem setti alt í hál i þessum hluta álfunnar og ef til vill allri álfunni. Þjóðabanda- lagið hafði um langt skeið hin- ar mestu áhyggjur af Albaniu. Orðsendingar frá óánægðum nágranna þjóðum voru alt af að berast til Genfar. En í stjórnar- tíð Zogs konungs liefir smám saman færst í rétta átt. Albanir áttu í miklum deilum við Grikki og jafnvel Itali, sem þó eru „verndarar“ þessa litla kon- ungsríkis. Og Jugoslavar voru yfirlýstir fjandmenn þeirra. Tirana var miðstöð pólitískra samsærismanna. En þetta er

x

Rökkur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.