Rökkur - 01.08.1938, Blaðsíða 10

Rökkur - 01.08.1938, Blaðsíða 10
122 RÖKKUR Allir embættismenn og starfs- menn, sem belgiska stjórnin sendir til Kongo, eru sérstak- lega undir starf sitt búnir, og þeir og konur þeirra verða að sækja nýlenduskólann í Briiss- el, áður þau fara, til þess að vita sem gerst skil á öllu í Kongo og hvað bíður þeirra þar. Belgíumenn í Kongo leggja mikla áherslu á að kenna Mökkumönnum nútíma aðferð- ir við ræktun á banönum, kar- töflum, hrísgrjónum, korni o. fl. Áður fyrr var það svo, að blökkumennirnir ræktuðu lítið eða ekkert — lifðu á því, sem jörðin framleiddi fyrirhafnar- laust, og þegar illa áraði hrundu blökkumenn niður af fæðu- skorti. Þetta er nú alt breytt, því að í landi eins og Kongo þarf aldrei að vera skortur mat- væla. Belgiska stjórnin hefir og tekið sér fvrir hendur að flytja íbúana saman á þau svæði, sem ræktunarskilyrði eru best. Eitthvert erfiðasta viðfangs- efni belgiskra embættismanna er að uppræta starfsemi leyni- félaga blökkumanna. Er þar fylgt fornum venjum og liafa leynifélögin óspart beitt kúgun- arvaldi við þorpsbúana, en einnig á þessu sviði liefir ný- lendustjórninni orðið mikið á- gengt, þó að við raman reip sé að draga, þvi að þorpsbúarnir (blökkumenn búa flestir í þorp- um) eru einfaldir og óttast „vf- irnáttúrlegt vald“ þeirra, sem í leynifélögunum eru. Nýlendustjórnin hefir komið upp skólum í bæjunum, til- raunabúgörðum og garðræktar- stöðvum, en velferðarstarfsemi er aðallega í höndum trúboða. Blökkumenn í Kongo nú á dögum eru agaðir, en það er vel með þá farið, og þeir njóta eins mikils frjálsræðis og þeim er holt. Nýlendustjórnin lítur á blökkumennina sem þá menn, er fyrst og fremst eigi að njóta gæða landsins, og blökkumönn- um er veiðiskapur heimill og frjáls, en hvítir menn verða að fá leyfi nýlendustjórnarinnar til þess að stunda veiði, og það er síður en svo fyrirhafnarlítið. YEGNA NÝRRA ÁSKRIFENDA skal tekið fram, að seinustu tvö tölublöð hvers árgangs Rökk- urs koma altaf eftir áramót, en nýr árgangur byrjar i mars eins og áður.

x

Rökkur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.