Rökkur - 01.08.1938, Blaðsíða 16
128
RÖKKUR
lcemur, og ræ'ður að sjálfsögðu
öllu um það eftir það, hvar það
verður sett upp o. s. frv.
Sýningarhús Islands í New
York liggur milli tveggja gatna
og verður inngangur frá hvorri
götunni um sig. Við annan inn-
ganginn verður afsteypa af
Leifsstyttunni. Verður hún við
aðalinnganginn, en raunar er
hinn inngangurinn, þar sem
Þorfinnslíkanið verður, engu ó-
veglegri og umferð meiri þeim
megin.
Vestur-íslendingar hafa, seg-
ir Haraldur Árnason ennfrem-
ur, byrjað samskot til þess að
afla fjár upp í kostnaðinn við
afsteypuna af Leifsstyttunni.
Munu samskotin ganga mjög að
óskum.
Hugmynd Vestur-íslendinga
er, að afsteypan verði sett upp
á einhverjum viðeigandi stað í
Bandaríkjunum, t. d. í Wash-
ington D. C. Fullnaðarákvarð-
anir um það hafa þó ekki verið
teknar enn.
Þessi hugmynd, að hafa af-
steypu af Leifsstyttunni og
styttu Þorfinns karlsefnis við
inngöngudyr sýningarhússins,
er góðra gjalda verð, og mun
vafalaust hafa mikil áhrif til
þess að draga menn að sýning-
unni. Það er og ánægjulegt, að
sú leið skuli hafa verið valin,
sem að framan getur, að hafa
afsteypuna af Leifsstyttunni á
völdum stað í Bandarikjunum,
er heimssýningunni lýkur. Það
mun vekja varanlega athygli á
íslandi - og því, hvaðan sá mað-
ur var, er fann Vínland liið
góða. Og þá má oss íslending-
um vera það ánægjuefni, að af-
steypa af Þorfinns-styttunni
verður sett hér upp.
Framvegis ætti að leggja
meiri stund á að prýða bæinn
með slíkum listaverkum.
Dtgefandi: Axel Thorsteinson.
Afgreiðsla: Hávallagötu 7 éausturenda). Afgreiðslutími 7—9
e. m. Sími 4558. — Útgefandi Rökkurs vinnur kl. 4—7 daglega,
fvrst um sinn, á Fréttastofu útvarpsins (erlendar fréttir) í
Landsímahúsinu.
Félagsprentsmiðian