Rökkur - 01.08.1938, Blaðsíða 7

Rökkur - 01.08.1938, Blaðsíða 7
RÖKKUR 119 að taka kröfur Þjóðverja um endurheimt nýlendna sinna til greina, og þá má vel vera, að tekið verði til athugunar í heild réttlátari skifting nýlendnanna milli þjóðanna. Og það þyrfti engan að undra, þótt einhver til- raun yrði gerð til þess að koma nýlendum Belgíumanna og Hol- lendinga með i taflið — og ef til vill nýlendum Portugals- manna líka. Þessar þrjár þjóð- ir eru ekki mikils megnugar hernaðarlega og það er mikil- vægt fyrir þær, að fá að vera í friði með nýlendur sínar, því að eigi geta þær varið þær, ef í liart færi, fyrir stórveldunum, einu eða fleirum. En þessar þrjár smáþjóðir eiga allar mikl- ar nýlendur. Belgía á ekki nema eina nýlendu, en hún — þ. e. Belgiská Kongo — er víðáttu- mikið land og auðugt að mörg- um náttúrugæðum. Belgiska Kongo er um 2.365.000 ferkílómetrar og nær að Atlantshafi, en strandlengjan er að eins um 40 km. og eru þar ósar Kongo-fljótsins. Að norðanverðu á ströndinni er Kamerun, fyrrverandi þýsk ný- lenda, að sunnanverðu Angola, portugalska nýlendan, en að öðrum hlutum landsins liggja nýl. Frakka og Breta. í landinu eru sléttur, fjöll (alt að 6000 m. há) og frumskógar miklir. Loftslag er heitt og rakt og ó- holt hvítum mönnum. Dýralífið í frumskógum Kongo er afar fjölskrúðugt. i Belgiska Kongo eru, að því er ætlað er, 15—20 miljónir blökkumanna, og eru sumir mannætur enn í dag, en mjög er þjóðin að siðast og mannast yí'iileilí, sem fyrr var að vikið. Aðeins fá þúsund hvítra manna eru í þessari víð- lendu nýlendu, flestir Belgíu- menn. Blökkumenn stunda mais-, sykurrækt o. fl. með ófullkomn- um vinnuaðferðum, en mikið liefir verið gert til þess að koma á nútímavinsluaðferðum, ekki að eins í þeim greinum, sem að framan voru nefndar, heldur og við kaffi og kakaóbaunarækt, sem Belgíumenn hafa innleitt. Nýlendustjórnin hefir gert ýms- ar ráðstafanir til þess að koma í veg fyrir illa meðferð á blökkumönnum. Skatt þann, sem á þá er lagður, greiða þeir í togleðri (kautschuk), en tré, sem framleiða það, eru um alt landið.Náttúrugæði landsins eru langt frá því lcönnuð lil fullrar hlitar enn í dag, en menn vita að þau eru feikn mikil. I Kat- anga eru kopar- og tinnámur, sem ef til vill eru auðugustu kopar- og tinnámur heims. Ár- lega er flutt út kopar og tin fyrir tugi miljóna króna og

x

Rökkur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.