Rökkur - 01.08.1938, Qupperneq 4

Rökkur - 01.08.1938, Qupperneq 4
116 RÖKKUR til kveldnámskeiða fyrir bænd- ur og bændaefni og sveitakon- ur og stúlkur. Þá hefir ráðu- neytið haft forgöngu í því, að ungir bændur stofnuðu með sér félög, það gefur út blöð og bún- aðarrit og styður ýmiskonar nýjar tilraunir á sviði landbún- aðar. Æðri búnaðarleg fræðsla fer fram í búnaðarháskólanum í Dotnava, en þar eru 45 kenn- FRÁ VILNA. arar, og er stofnun þessi að öllu leyti rekin af ríkinu. Búnaðar- háskólinn hefir aðsetur á stórri bújörð og er það vitanlega eitt af mestu fyrirmyndarbúum ríkisins. Þar fá nemendurnir einnig tækifæri til þess að stunda verklegt nám og fylgj- ast með ýmiskonar búvísinda- legum rannsóknum. Miklar breytingar hafa orðið í þessum efnum frá því er var fyrir heimsstyi’jöldina, því að þá miðaði ekki áfram á þessu sviði frekar en öðrum, þvi að Rússar létu sig litlu skifta vel- ferð fylkisins. Rússneska stjórn- in lagði aðaláherslu á að finna rnarkaði fvrir landbúnaðaraf- urðir Ukraine og Sibiriu, og sá fyrir svo ódýrum flutningi á korni þaðan, að korn frá Ukra- ine fékst með lægra verði í Memel og Riga en frá Lithau- en, rétt hjá. Landið var að mestu leyti í eigu manna, sem litið skiftu sér af því og bjuggu ekki í fylkinu. Eftir uppreistina 1861 var mik- ið land i Litbauen tekið eignar- námi og fengið Rússum í hend- ur, en eftir byltinguna 1905 varð sú breyting á, að talsvert inörgum litháiskum bændum var gefinn kostur á að eignast land til ræktunar, og tókst þeim að koma sér sæmilega áfram, með aðstoð banka og samvinnu-

x

Rökkur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.