Rökkur - 01.08.1938, Page 5

Rökkur - 01.08.1938, Page 5
ROKKUR 117 félaga, sem um þessar mundir fóru að koma til sögunnar. En vfirleitt voru framfarirnar litl- ar meðan Rússar réðu þar ríkj- um. Og meðan heimsstyrjöldin stóð j'fir var enn ver ástatt, þvi að þýski herinn, sem þar var, hirti framleiðslu bændanna, og var landbúnaður i Lithauen í rústum, er styrjöldinni lauk. En þegar sjálfstæðið var fengið tóku bændur i Litliauen til ó- spiltra málanna og hafa unnið að viðreisnarstörfunum af svo miklum áhuga og kappi, að fá dæmi eru til, með ágætum á- rangri, enda studdir vel af hinu opinbera svo sem að framan getur. Land var tekið eignarnámi af þeim, sem ekki áttu heima í landinu og fengið hændum í hendur, og hermenn, sem harist Jiöfðu fyrir sjálfslæði landsins, fengu land til ræktunar endur- gjaldslaust, en þeir, sem keyptu land af stjórninni, greiða fyrir ])að í 36 ár. Erfingjar þeirra, sem Rússar höfðu svift eignar- rétti á jörðum sínum 1861, fengu þær aftur. Ríkið hefir og tekið í sína umsjá alla skóga landsins og nauðsynlegt land undir til- raunastöðvar og fyrirmyndar- hú, sjúkrahús, elliheimili, Jjarnahæli og skóla. Yfirleitt verður eigi annað sagt en að Litháum Iiafi vegn- að vel síðan er þeir fengu sjálf- stæði sitt og alt er þar í fram- för. Og þeir, eins og hinar smá- þjóðirnar við Eystrasalt, sem fengu sjálfstæði sitt upp úr heimsstyrjöldinni, hafa leitað samvinnu við skandinavisku þjóðirnar, einkanlega Svía og Finna. En fá þessar smáþjóðir hinna nýju ríkja við Eystrasalt að vera í friði, og vinna að sinni eigin farsækl og menningu framvegis, eins og þessi tiltölu- lega fáu ár, sem liðin eru frá því þau fengu sjálfstæði sitt. Margir óttast, að það sé að eins timaspursmál, hvenær stór- þjóðirnar gleypi þær, Rússar, Þjóðverjar eða Pólverjar (sem eru stórþjóð í samanburði við Lithaua, Eistlendinga og Lett- lendinga). Litháar og Pólverjar hafa lengi deilt um Vilna og veldur deilan því, að fullur fjandskap- ur er undir niðri milli Pólverja og Litháa, þótt hinir síðar- nefndu hafi í öllum deilum sín- um við Pólverja orðið að láta í minni pokann. Litháar höfðu til skamms tima engan stjórn- málafulltrúa í Póllandi og hót- uðu Pólverjar að beita vopna- valdi, ef Litháar tæki ekki upp stjórnmálalega og viðskiftalega samvinnu. — Deilan um Vilna

x

Rökkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.