Rökkur - 01.08.1938, Page 6

Rökkur - 01.08.1938, Page 6
118 R Ö K K U R Belgiska Congo. Nýlendustjórninni belgisku hefir orðið mikið ágengt í um- bótastarfsemi sinni. — Kjör hinnar innfæddu þjóðar liafa verið bætt og á undanförnum árum hefir hún verið á bægu en stöð- ugu þroskaskeiði. Helen H. Rolleston, sem ferð- ast liefir um belgiska Kongo — bina miklu Afríkunýlendu Belgíumanna — og skrifað um ferð sína í amerísk blöð, segir að þeir, sem ferðist um nýiend- una komist fljótlega að raun um, að nýlendustjórninni hafi tekist að koma þar góðri reglu á alt, aga þjóðina og bjálpa henni og gera margt, sem til framfara liorfir. Blökkumenn- irnir l)era virðingu fyrir valdi hins livíta manns og það er mikill styrkur í því, ef valdinu er réttilega beitt og' hóflegur agi stundaður, og það er það sem Belgíumönnum liefir tekist í Kongo. Þeir hafa ástundað hóf- legan aga og aflað sér trausts blökkumannanna, en ýmsir þeirra standa enn á mjög lágu menningarstigi. Belgiska Kongo er eitt þeirra landa, sem nú er nefnt í frétt- um við og við, og það er vegna þess, að kröfurnar um nýlend- ur eru á dagskrá. Þvi að það er engan veginn víst, að hægt verði fyrir stórveldin að komast hjá milli Litliáa og Pólverja er gömul. Hefir borgin alla tið komið mjög við sögu. Litháar áttu Vilnahérað forðum, en Svi- ar hertóku borgina á 18. öld og síðar Rússar. Fengu Rússar borgina eftir skiftingu Póllands 1795. — 1831 og 1863 var borg- in miðstöð byltingarmanna, sem reyndu að hrinda af sér ánauð- aroki Rússa árangurslaust. Eft- ir heimsstyrjöldina gerðu Lit- háar kröfu til Vilnu, en Pól- verjar komu með hermenn og tóku borgina. Tilraunir Þjóða- bandalagsins til að miðla mál- um báru ekki árangur. Vilna er mikil miðstöð korn- verslunar. Ibúatalan er um 200.000. — Á myndinni sést hin rómversk kaþólska kirkja borg- arinnar. — Þjóðhetja Pólverja, Josef Pilsudski, er fæddur i Vilnu.

x

Rökkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.