Rökkur - 01.08.1938, Page 9

Rökkur - 01.08.1938, Page 9
RÖKKUR 121 mikið af togleðri. Samgönguæð- arnar eru Kongofljót og þverár þess. Siglingaleiðir landsins á ánum eru 11.500 kilometrar á lengd. Hefir nýlendustjórnin yf- ir 50 skip í förum á ánum. — Járnbrautir hafa og verið lagð- ar allvíða um landið. Yfirmaður nýlendustjórnarinnar er ný- lendumálaráðherrann, sem á sæti i belgisku stjórninni. Er hann forseti 14 manna nýlendu- ráðs, sem skipað er af þjóð- þingi Belgíu og konungi. Land- stjórinn er skipaður af konungi Belgíu og einnig eru nokkr- ir aðstoðar-landstjórar. Höfð- ingjar blökkumanna njóta enn allmikilla réttinda, en þau eru ákveðin af nýlendustjórninni. Nýlendan hefir sinn eigin 14.000 —15.000 manna her, til þess að aðstoða við að lialda uppi lög- um og rétti í landinu. Landkönnuðurinn frægi, Stan- ley, ferðaðist sem kunnugt er um Afríku 1874—1877, og fékk Leopold II Belgiukonungur mikinn áhuga fyrir hinum ný- könnuðu löndum, og stofnaði hann félagið Comité d’Etudes du Haut Congo (1878). Stanley kannaði landið frekara fyrir Leopold konung og kom á stofn bækistöðvum fyrir félagið víða við fljótið. Félaginu var nú breytt og tók það sér nafnið Association Internationale du Congo og stofnaði Kongo-ríkið, sem Leopold konungur hét vernd sinni. Á alþjóðaráðstefnu i Berlín 1885 var Kongoríkið viðurkent og lýst yfir lilutleysi þess. Siglinga- og verslunar- frelsi í landinu var heitið öllum þjóðum, þrælasala bönnuð o. s. frv. Það yrði alt of langt mál, að rekja hér sögu Kongo til árs- ins 1908, en það ár tók Belgía við landinu og upp frá því hefir það verið belgisk nýlenda. Og það er frá þeim tíma, sem fram- farirnar hafa verið mestar. — Samkvæmt Versalasamningun- urn fékk Belgía og umráðarétt (mandatory rights) yfir héruð- unum Buanda og Urundi og svæðinu kringum Kiuvivatn, fyrir hönd Þjóðabandalagsins. Landstjórinn og æðstu em- bættismenn landsins búa í Stan- leyville, en undir-embættismenn eru í hinum ýmsu lilutum landsins. Hafa þeir strangt eftir- lit með, að hinir innfæddu höfð- ingjar fari vel með þá, sem undir þá eru gefnir. „Blökkumennirnir i Kongo nú á dögum“, sagði belgiskur embættismaður í Kongo við Helen M. Bolleston, „eru hraust- ari og mannaðri en feður þeirra og mæður, sem komust hjá að vera seld mansali, af því að þau voru óhraust. Þrælasalarnir völdu úr hraustasta fólkið“.

x

Rökkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.